Morgunblaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
www.heimavellir.is
Traustur leigumarkaður sem byggir á langtímasambandi er mikilvægur partur
af heilbrigðum og stöðugum húsnæðismarkaði. Markmið okkar er að taka þátt
í að byggja upp leigumarkað á Íslandi eins og þekkist á Norðurlöndunum og
víðar í Evrópu. Um tvö þúsund fjölskyldur búa nú þegar í öruggri langtíma-
leigu hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
LANGTÍMASAMBAND Á LEIGUMARKAÐI
Til leigu fyrir
55 ára og eldri
VANDAÐAR ÍBÚÐIR
Glæsilega hannaðar íbúðir með
áherslu á birtu og rými, 79-148 m2
að stærð. Vandaðar innréttingar,
góð tæki, parket á gólfum en flísar
á baðherbergjum ogþvottahúsi.
Í eldhúsi fylgja uppþvottavél og
ísskápur.
Svalir eru á hverri íbúð en íbúðir
á jarðhæð hafa aðgang að útipalli.
Fullfrágengin sameign og lóð með
hita í stéttum.
EINFALDAÐU LÍFIÐ
Heimavellir bjóða nýjan valkost
á húsnæðismarkaði – örugga
langtímaleigu fyrir 55 ára og eldri.
Þú einfaldar lífið með því
að greiða fasta leigufjárhæð
mánaðarlega og losnar við allt
umstang t.d. við húsfélag, þrif á
sameign og viðhald á húsi.
NÁLÆGÐ VIÐ NÁTTÚRUNA
Boðaþing er staðsett í fallegu um-
hverfi þar sem stutt er að fara til að
njóta náttúrunnar við Elliðavatn
og í Heiðmörk.
Þá er Boðinn þjónustumiðstöð
fyrir eldri borgara í nágrenni
íbúðanna. Þar er hægt að sækja
fjölbreytta þjónustu þegar fram
líða stundir.
60 nýjar íbúðir til langtímaleigu í Boðaþingi í Kópavogi
Opið hús
Boðaþingi 18-20
mið. 16. maí
kl. 16-18.
Samgöngustofa hefur unnið drög að
nýrri reglugerð um starfrækslu far-
þegabáta og annarrar leyfisskyldrar
starfsemi í atvinnuskyni á sjó, ám og
vötnum. Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið hefur nú sett
umrædd drög inn á Samráðsgátt
stjórnvalda þar sem öllum gefst
kostur á að senda inn umsögn fram
til 25. maí. Þar segir að tilurð þess-
arar nýju reglugerðar sé sú að á
undanförnum áratug hafi orðið mik-
il þróun á umhverfi útsýnis- og skoð-
unarsiglinga með ferðamenn.
Lagt er til að útgerðir farþega-
báta hafi öryggisstjórnunarkerfi.
Kerfið sæti samþykki og úttekt Sam-
göngustofu sem geti gefið út starfs-
leyfi til allt að fimm ára í senn. Áður
en leyfi er gefið út mun Samgöngu-
stofa framkvæma heildarúttekt á
allri starfsemi hins leyfisskylda aðila
og á gildistíma fer fram að minnsta
kosti ein heildarúttekt að auki. Sam-
göngustofa getur raunar einnig
ákveðið að framkvæma fleiri úttekt-
ir á starfsemi fyrirtækja sem sækj-
ast eftir umræddum leyfum. Þannig
getur stofnunin framkvæmt skyndi-
skoðanir.
Ný lög um
farþegabáta
Samgöngustofa
gefur út starfsleyfi
Morgunblaðið/Hari
Hvalaskoðun Eftirlit með slíkum
farþegaskipum verði aukið.
Ábendingar um að neysluvörur hafi
minnkað þrátt fyrir að verð á þeim
standi í stað hafa borist bæði
Neytendastofu og Neytenda-
samtökunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Neytendastofu hafa framleiðendur
ekki lagalega skyldu til að greina
frá því ef umfang vöru er minnkað,
að því gefnu að nákvæmt magn sé
gefið upp á umbúðum.
Evrópskir neytendur létu í sér
heyra þegar svissneska súkkulaðið
Toblerone fór að skreppa saman
fyrir nokkrum misserum. Forsvars-
menn fyrirtækisins sögðu breyt-
inguna vera til þess gerða að halda
súkkulaðinu á viðráðanlegu verði.
Rannsókn bresku hagstofunnar
rennir frekari stoðum undir grun-
semdir neytenda þess efnis að
vörur séu sífellt að minnka. Fram
kemur á vef breska ríkisútvarpsins
BBC að niðurstaða rannsóknar
stofnunarinnar sé sú að 2.592 vörur
í stórmörkuðum þarlendis hafi
minnkað eða lést á fimm ára tíma-
bili, frá árinu 2012 til 2017. BBC
segir að lögfræðingurinn Edgar
Dworsky hafi lagst í ítarlega rann-
sóknarvinnu og komist að því að
hinar ýmsu vörur hafi orðið sífellt
minni með árunum, þrátt fyrir að
verð á þeim lækki ekki í samræmi
við það. Vörur eru minnkaðar þeg-
ar kostnaður við framleiðslu þeirra
hækkar, söluvænna þykir að
minnka umfang vöru en að hækka á
henni verðið þar sem neytendur
taki frekar eftir breytingum á verði
en breytingum á þyngd eða stærð
vöru. ragnhildur@mbl.is
Neysluvörur minnka
Scanpix
Verslun Kona verslar í matvöruverslun í Osló.
Umfang ýmissa vara fer minnkandi þó verð standi í stað
Vegagerðin hefur óskað eftir til-
boðum í hækkun og breikkun á þrem-
ur köflum hringvegar í Öræfasveit.
Um er að ræða svokallað hrað-
útboð því ekkert tilboð barst í verkið
þegar það var auglýst í fyrra skiptið.
Kaflarnir eru beggja vegna brúa
yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi,
Hólá og Stigá, en verið er að byggja
nýjar brýr yfir þær tvær síðar-
nefndu.
Verkinu hefur nú verið skipt í tvo
verkhluta og er bjóðendum heimilt að
gera tilboð í annan hvorn verkhlut-
ann eða báða. Verkkaupi, Vegagerð-
in, mun taka lægsta tilboði sem upp-
fyllir kröfur útboðslýsingar í hvorn
verkhluta fyrir sig, segir í útboðslýs-
ingu á vef Vegagerðarinnar.
Öllum þáttum við gerð vegar við
Stigá skal lokið fyrir 20. júlí 2018 og
verkinu öllu fyrir 10. september 2018.
Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 24.
maí nk. sisi@mbl.is
Hraðútboð
í vegarkafla
í Öræfasveit