Morgunblaðið - 16.05.2018, Side 12
AFP
Ilmurinn Einn mikilvægasti
parturinn af vínsmökkun er
að lykta af víninu.
er fjarri því að vera uppskrúfuð
eins og kannski mætti ætla af
manneskju, sem lifir og hrærist í
heimi vínsins. Þvert á móti kennir
hún lesendum m.a. að velja rétt vín
og tilheyrandi glös, þekkja vín, lesa
upplýsingar á flöskumiða, geyma
vín, láta ekki glepjast af fagurgala
markaðsaflanna og kollvarpar ýms-
um mýtum um vín og vínsiði. Hér
eru nokkrar af tíu þjóðsögum, sem
hún nefnir og gefur lítið fyrir.
„Því dýrara,
þeim mun betra“
Bestu kaupin eru í víni sem
kostar milli 8 og 20 pund flaskan
[um 1.100 til 2.800 ísl.kr. Hafa ber í
huga að verðlagning er öðruvísi hér
á landi en á Bretlandi]. Ef vín er
ódýrara en það er líklegt að gæðin
séu mjög lítil þar sem kostnaðurinn
liggur aðallega í umbúðum og skött-
um. Ef vín er dýrara á kaupandinn
á hættu að vera að borga fyrir upp-
blásið egó, markaðssetningu og tikt-
úrur á markaðnum.
„Því þyngri sem flaskan
er, þeim mun betra vín“
Sumir vínframleiðendur, sér-
staklega í spænskumælandi löndum,
einhverra hluta vegna, hafa notað
þykkt gler sem tæki til markaðs-
setningar en það er afar óumhverf-
isvænt og flestir bestu vínframleið-
endur eru skynsamari en svo.
„Vín frá gamla heiminum
er alltaf betra en vín úr nýja
heiminum“
Það er alls staðar til bæði gott
og vont vín.
„Mjög gott vín má þekkja
á því að botninn á flöskunni
er íhvolfur“
Slíkar dældir eru oft aðeins út
af markaðssetningu.
„Bleikt vín og sætt
vín er fyrir konur“
Kommon.
„Hálffullt glas eða hálftómt?“
Þá segir Robinson engin rök
fyrir því að hvítvín sé borið fram í
minni glösum en rautt, aðalatriðið
sé að þau séu þrengri um brúnina
en um belginn til að hægt sé að
sveifla víninu í hringi án þess að
upp úr skvettist. „Þannig kemst
sem mest af víninu í snertingu við
súrefni og öll anganin safnast fyrir í
glasinu ofan við yfirborðið. Til að
hafa gott pláss fyrir vínilminn er
Vínsérfræðingar
á sólarhring – skál
Hafið þið, lesendur góð-
ir, tekið „fullkomið skref“
inn í heim vínsins?
Forði okkur nú allar
góðar vættir hugsa nú
trúlega einhverjir og
gera því strax skóna
að verið sé að
spyrja á rósa-
máli hvort
þeir eigi við
áfengis-
vandamál
að stríða.
Svo er ei. Á
kápu Litlu vínbókar-
innar – Sérfræðingur á
24 tímum segir að „hið
fullkomna skref“ inn í
þennan heim sé einfald-
lega bókin sjálf.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Árúmlega 100 blaðsíðumí Litlu vínbókinni – Sér-fræðingur á 24 tímum eruvínfræðunum gerð skil á
aðgengilegan máta og ekki glímt við
alvarlegri áfengisvandamál en þau
að velja rétt vín með matnum og
þvíumlíkt. Allt saman á afar
fræðilegum og gagnlegum
nótum.
Höfundur bókarinnar,
sem Drápa hefur gefið út
í þýðingu Ingunnar
Snædal, er Jancis Rob-
inson, einn virtasti
víngagnrýnandi og vín-
skríbent heims að mati
tímaritsins Decanter og sú
fyrsta utan víniðnaðarins til að
hljóta nafnbótina Master of Wine
eða Meistari vínsins. Markmið
hennar er að deila sérþekkingu
sinni svo lesendur geti orðið vínsér-
fræðingar á 24 tímum og fengið
sem mesta ánægju út úr þessum
dularfulla og dásamlega drykk eins
og hún segir.
Það verður að segjast eins og
er að henni tekst býsna vel upp og
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
M.BENZML 350 BLUETEC 4MATIC
nýskr. 09/2013, ekinn 66 Þ.km, dísel (259hö),
sjálfskiptur. Glæsilegt eintak! Verð 7.390.000 kr.
Raðnúmer 287767
KIA SPORTAGE LUXURY
nýskr. 03/2017, ekinn 59 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
leður, 19“ felgur o.fl. Tilboðsverð 4.190.000 kr.
Raðnúmer 230787
ÓSKUM EFTIR BÍLUM Á SÖLUSKRÁ - LAUS STÆÐI
MINI ONE COUNTRYMAN
nýskr. 07/2014, ekinn 54 Þ.km, bensín, 6 gíra.
Geggjaður bíll! Verð 2.880.000 kr.
Raðnúmer 257394
KIA SPORTAGE EX
nýskr. 03/2017, ekinn 60 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur. Mjög snyrtilegt og flott eintak!
Tilboðsverð 3.950.000 kr. Raðnúmer 230790
KIA SPORTAGE LUXURY
nýskr. 11/2016, ekinn 40 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
leður, aukafelgur, krókur o.fl.Verð 4.290.000 kr.
Raðnúmer 257865
Bílafjármögnun Landsbankans
Ungu áhugafólki um handverk gefst í
sumar tækifæri til að taka þátt í
skapandi starfi í Norrænum hand-
verksbúðum, sem haldnar verða dag-
ana 8. - 12. ágúst í Akershus, nálægt
Osló í Noregi. Búðirnar eru á vegum
The Norwegian Folk and Crafts sam-
takanna. Fimm íslenskum ungmenn-
um á aldrinum, 16 - 22 ára, býðst að
taka þátt í sumarbúðunum, en með í
för verður íslenskur hópstjóri/farar-
stjóri.
Haldnar verða vinnustofur þar sem
þátttakendur geta valið um handverk
af ýmsu tagi; smíðar, saumaskap,
prjón og sitt hvað fleira.
Skráning þátttöku er á heimasíðu
Heimilisiðnaðarfélags Íslands,
www.heimilisidnadur.is, en þar eru
einnig nánari upplýsingar um vinnu-
stofurnar og önnur hagnýt atriði.
Skráningarfrestur er til sunnudags-
ins 27. maí.
Norrænar handverksbúðir
fyrir ungt fólk
Vinnustofur Þátttakendur geta með-
al annars lært að prjóna lopapeysu.
Skapandi starf
í sumarbúðum
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Vortónleikar Raddbandafélags Reykja-
víkur verða haldnir í Laugarneskirkju
kl. 20 í kvöld, miðvikudaginn 16. maí.
Söngvar um ástir, konur og vín verða í
hávegum hafðir auk þess sem félag-
arnir bregða sér í draumaheim rakara-
stofunnar og taka nokkur „barber-
shop“ lög.
Einsöngvarinn og tenórinn Elmar
Gilbertsson, mætir til leiks, en hann
söng með Raddbandafélagi Reykjavík-
ur um árabil. Kórinn er nýkominn frá
Ítalíu þar sem meðal annars var sung-
ið af miklum eldmóði á sardínísku.
Raddbandafélag Reykjavíkur
Syngja um ást-
ir, konur og vín
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Einsöngvari Elmar Gilbertsson.