Morgunblaðið - 16.05.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
JÓN BERGSSON EHF
Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is
GARÐSKÁLAR Á HJÓLUM
Hentar þetta þínum garði, svölum,
rekstri eða sumarbústað?
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vesturverk sem áformar virkjun
Hvalár í Árneshreppi á Ströndum
er í meirihlutaeigu Íslendinga og
eru lífeyrissjóðir
þar stórir aðilar.
Þetta segir Ásgeir
Margeirsson, for-
stjóri HS Orku og
stjórnarformaður
Vesturverks, í til-
efni þeirra orða
Sigurðar Gísla
Pálmasonar að
virkjanafyrirtæki í
eigu erlendra auð-
manna svífist einskis til að ná sínu
fram.
„HS Orka er að tæplega helm-
ingi í eigu íslenskra lífeyrissjóða.
HS Orka á 70% í Vesturverki.
Vegna eignarhluta lífeyrissjóðanna
eiga flestallir Íslendingar sem nú
eru starfandi á vinnumarkaði eða
hafa nýlega verið það hagsmuna að
gæta í verkefninu. Erlenda eign-
arhaldið er hjá fyrirtækinu Inn-
ergex sem er skráð á hlutabréfa-
markaði í Kanada. Eignarhald þess
er mjög dreift, meðal annars eiga
lífeyrissjóðir hluti í því,“ segir Ás-
geir.
Sigurður Gísli gagnrýndi í viðtali
við Morgunblaðið í gær að fyrir-
tækið hefði boðið Árneshreppi ým-
iss konar fyrirgreiðslu með því skil-
yrði að fallist yrði á virkjun, meðal
annars verkefni sem kæmu fram-
kvæmdinni ekkert við. Ásgeir segir
að fyrirtækið fari í einu og öllu að
leikreglum samfélagsins, afli leyfa,
fari í gegnum kynningarferli með
verkefni sín, alla leið og alls staðar.
Hann hafnar því að verið sé að
bera fé á sveitarstjórnina. „Flest
fyrirtæki og öll góð fyrirtæki taka
þátt í samfélaginu þar sem þau
starfa. Þau styrkja íþróttastarf,
sérstaklega yngri kynslóðarinnar,
menningarlíf, góðgerðarstarfsemi
og umhverfismál. Þetta gera HS
Orka og Vesturverk. Ekkert
íþróttastarf yngri kynslóða er í Ár-
neshreppi. Í samtölum sveitar-
stjórnar og Vesturverks var rætt
um hvernig fyrirtækið gæti stutt
samfélagið. Hugmyndir að öllum
þeim verkefnum sem nefnd hafa
verið hafa komið frá heimamönn-
um. Sum þeirra tengjast beint
væntanlegum framkvæmdum, svo
sem lagning þrífasa rafmagns og
ljósleiðara og endurbætur á hafn-
arsvæði. Önnur má skilgreina sem
samfélagsverkefni,“ segir Ásgeir
Margeirsson, forstjóri HS Orku.
Blandar sér ekki í deilumál
Umræðan um Hvalárvirkjun
gaus upp á ný þegar það spurðist
út að hópur fólks hefði flutt lög-
heimili sitt í Árneshrepp í aðdrag-
anda sveitarstjórnarkosninga en ný
hreppsnefnd getur haft áhrif á
byggingu virkjunarinnar. Breyting-
ar á skipulagi hafa verið afgreiddar
frá hreppsnefnd en Skipulagsstofn-
un hefur ekki staðfest þær. Ásgeir
segir að fyrirtækið blandi sér ekki í
slík mál. „Ég og samstarfsfólk mitt
þekkjum ekki til þeirra sem komið
hefur fram að eigi hlut að máli,
nema í mesta lagi einhver nöfn af
afspurn í fjölmiðlum. Og við þekkj-
um heldur enga stuðningsmenn
okkar verkefnis sem flutt hafa lög-
heimili í hreppinn,“ segir Ásgeir.
Vesturverk í meirihlutaeigu Íslendinga
Forstjóri HS Orku segir að Vesturverk starfi eftir reglum samfélagsins Hafnar því að fyrirtækið
sé að bera fé á hreppsnefndina Hugmyndir að samfélagsverkefnum hafi komið frá heimafólki
Morgunblaðið/Golli
Hvalárvirkjun Mörg vötn eru á
áhrifasvæði virkjunarinnar.
Ásgeir
Margeirsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er ótrúleg spenna hér í Moskvu
út af þessu móti. Ef einhver heyrir
að maður sé íslenskur þá hrópar fólk
„Ísland, Ísland!“ Án gríns, fólki
finnst mjög skemmtilegt að Ísland
spili á þessu móti og það mun eflaust
fagna því að fá íslenskan bjór,“ segir
Árni Theodór Long, bruggmeistari
hjá Borg brugghúsi.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Árna í Moskvu í gærdag var hann að
ljúka við að brugga sérstakan HM-
bjór sem fer í sölu í Rússlandi í sum-
ar. Um samstarfsverkefni er að
ræða milli Borgar brugghúss og
rússneska brugghússins Bottle
Share sem þykir með þeim eftirtekt-
arverðari þar í landi. Bjórinn er
bruggaður í tilefni af þátttöku Ís-
lands á HM í knattspyrnu og mun
kallast húh! HM-bjórinn verður til
sölu í Moskvu og trúlega víðar.
Stefnt er að því að hann verði í það
minnsta til sölu í öðrum borgum sem
Ísland leikur í.
Bragðbætir með baldursbrá
„Þessir rússnesku bruggarar
hringdu daginn eftir að Ísland komst
á HM og óskuðu eftir samstarfi.
Þetta hefur reynst mjög skemmti-
legt verkefni,“ segir Árni sem segir
að ekkert annað nafn en húh! hafi
komið til greina.
„Við sáum okkur leik á borði að
geta framleitt þennan bjór óáreittir
frá íslenskum einkaleyfisskrán-
ingum,“ segir hann í léttum dúr.
Húh!-bjórinn verður svokallaður
Farmhouse IPA-bjór, þurrhumlaður
og með sveitageri. „Ég mætti svo
með íslenska baldursbrá hingað út til
að bragðbæta hann. Bragðinu af
henni svipar til kamillutes en er tölu-
vert íslenskara.“
Skálað með forseta í Finnlandi
Moskva er ekki eini viðkomu-
staður Árna í þessari ferð því í dag
verður hann í Helsinki. Þar mun
hann kynna bjór Borgar á sér-
stökum viðburði en í vikunni kemur
á markað samstarfsbjór Borgar og
Pinamo Hiisi sem kallast Liskodisko.
Árna er sömuleiðis boðið að verða
viðstaddur móttöku sem haldin er í
tilefni af opinberri heimsókn Guðna
Th. Jóhannessonar, forseta Íslands,
og Elízu Reid forsetafrúar til Finn-
lands. „Ég mæti þangað ef mér tekst
að leigja mér smóking. Ég er bara í
blómaskyrtu og gulum stuttbuxum
og las ekki boðskortið fyrr en eftir að
ég kom út,“ segir bruggarinn.
Húh! Árni Theodór Long , t.v., ásamt Marat Settarov og Alexey Sazonov.
Íslenskur húh!-bjór á HM í sumar
Bruggaður í Moskvu og seldur í kringum leiki Íslands Bragðbættur með ís-
lenskri baldursbrá Undanþeginn umdeildri einkaleyfisskráningu á húh!-inu
Kvikmyndafyrirtækið Pegasus ehf.
hefur fengið fimm leyfi með um-
sögnum Umhverfisstofnunar (UST)
vegna kvikmyndatöku á Suðurlandi
á tímabilinu 7.-23. maí 2018, sem
finna má á www.ust.is.
Um er að ræða leyfi til kvik-
myndatöku og/eða aksturs utan
vega við Skógafoss, friðlýstu
náttúruvætti, í Dyrhólaey, friðlýstu
friðlandi, í Dyrhólafjöru sem er ekki
á náttúruminjaskrá, við Hjörleifs-
höfða sem er ekki friðlýstur og í
Reynisfjöru sem er ekki friðlýst en
er á náttúruminjaskrá, skv. umsögn-
um í leyfunum.
Gjöld og ströng skilyrði eru fyrir
leyfisveitingunum. Bent er á að um
undantekningu sé að ræða, en varp-
tími fugla stendur nú yfir og sé öðr-
um óheimilt að leika þetta eftir án
leyfis stofnunarinnar. ernayr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Fegurð Reynisfjara og Dyrhólaey
eru vinsælir myndatökustaðir.
Fimm leyfi
frá UST
Kvikmyndataka
og akstur utan vega
Nýjasta viðbótin í samstarfs-
bruggi íslenskra brugghúsa og
erlendra kollega þeirra kemur
á markað í vikunni. Er um
samstarf Borgar og hins
finnska brugghúss Pinamo
Hiisi að ræða. Kallast bjórinn
Liskodisko og er ferskjubættur
nýbylgju IPA-bjór. Nafn bjórs-
ins vísar til finnsks hugtaks
um þynnku, einhvers konar
ofsatremma.
Bjórinn var
bruggaður á
Íslandi og
verður seldur
í Vínbúð-
unum. Skop-
myndateikn-
arinn
Halldór
Baldurs-
son á
heiðurinn
af mið-
anum á
flöskunni.
Finnskur
ofsatremmi
NÝR SAMSTARFSBJÓR