Morgunblaðið - 16.05.2018, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
svæðum sem Ísraelar hafa lagt undir
sig í austurhluta Jerúsalem. Samein-
uðu þjóðirnar líta á landtökubyggð-
irnar sem brot á þjóðarétti en Ísrael-
ar neita því. Með því að viðurkenna
Jerúsalem formlega sem höfuðborg
Ísraels hefur Trump styrkt Ísraela í
deilunni um landtökubyggðirnar.
„Tekin af samningaborðinu“
Þing Bandaríkjanna samþykkti ár-
ið 1995 lög þar sem kveðið er á um að
viðurkenna eigi Jerúsalem sem
höfuðborg Ísraels og flytja eigi sendi-
ráðið þangað. Bandaríkjaforseti fékk
þó heimild til að fresta gildistöku
ákvæðisins vegna öryggishagsmuna
landsins. Forverar Trumps nýttu
þessa heimild og frestuðu gildistöku
ákvæðisins með hálfs árs millibili.
Trump hefur sagt að með ákvörð-
un sinni hafi hann viðurkennt þann
„augljósa veruleika“ að Jerúsalem sé
höfuðborg Ísraels. Embættismenn
hans hafa tekið undir þetta og sagt að
hægt verði að semja um framtíðar-
stöðu Jerúsalem í samningaviðræð-
unum. Skilaboðin frá Washington eru
hins vegar misvísandi í þessu máli –
eins og mörgum öðrum – því að for-
setinn hefur sagt að með ákvörðun-
inni hafi deilan um Jerúsalem verið
„tekin af samningaborðinu“. Hann
hefur ekkert sagt um þá kröfu Palest-
ínumanna að Austur-Jerúsalem verði
höfuðborg ríkis þeirra og virðist hafa
tekið eindregna afstöðu með Ísr-
aelum sem líta á Jerúsalem sem „ei-
lífa og óskipta höfuðborg Ísraels“.
Aaron David Miller, fyrrverandi
samningamaður Bandaríkjastjórnar í
Mið-Austurlöndum, segir að forverar
Trumps í forsetaembættinu hafi stutt
Ísraela en reynt að sýna leiðtogum
Palestínumanna skilning og koma til
móts við sjónarmið þeirra. Trump og
embættismenn hans hafi hins vegar
farið yfir strikið með stuðningi sínum
við Ísraela í þessu erfiða deilumáli.
Martin Indyk tekur í sama streng.
„Þeir hafa hrakið Palestínumenn frá
samningaborðinu og gefið þeim
ástæðu til að koma ekki að því aftur,“
hefur fréttaveitan Reuters eftir hon-
um.
Þjóðinni þjappað saman
Khaled Elgindy, fyrrverandi ráð-
gjafi leiðtoga Palestínumanna, telur
mjög ólíklegt að Palestínumenn fall-
ist á að hefja viðræður við Ísraela á
grundvelli friðaráætlunar Banda-
ríkjastjórnar. „Til að það geti gerst
þarf Trump að minnsta kosti að
hvetja Ísraela til að hætta drápum á
óvopnuðum mótmælendum,“ hefur
Reuters eftir honum.
Leiðtogar Bretlands, Frakklands
og fleiri Evrópuríkja hafa gagnrýnt
manndrápin síðustu daga, sagt að
Ísraelar hafi rétt til að verja landa-
mæri sín en hvatt þá til að sýna still-
ingu og forðast að beita of mikilli
hörku. Mannréttindasamtökin Am-
nesty International sögðu að mann-
drápin væru „viðbjóðslegt brot á
mannréttindum“, virtust hafa verið
framin af ásettu ráði og Ísraelsher
hefði því líklega gerst sekur um
stríðsglæpi.
Donald Trump skellti hins vegar
allri skuldinni á Hamas-samtökin
sem stóðu fyrir mótmælunum og
hvöttu Palestínumenn til að ráðast yf-
ir landamærin og inn í Ísrael. Leið-
togar Hamas sögðu að mótmælunum
yrði haldið áfram og ýjuðu að því að
samtökin kynnu að gera á árás á Ísr-
ael sem gæti leitt til nýs stríðs á
Gaza-svæðinu.
Fréttaskýrendur breska ríkis-
útvarpsins segja að leiðtogar Hamas
líti á ákvörðun Trumps og manndráp
Ísraela sem tækifæri til að þjappa
Palestínumönnum saman og beina at-
hyglinni frá slæmri frammistöðu
Hamas-manna á Gaza-svæðinu sem
hefur verið undir stjórn samtakanna.
Hamas og aðrar íslamskar hreyf-
ingar Palestínumanna hafa nú fengið
„þjóðernislegt og trúarlegt málefni
sem þær geta sameinast um: að verja
Jerúsalem,“ hefur The New York
Times eftir Aaron David Miller.
„Sendiráðið er orðið að áþreifanlegu
tákni í þeirri baráttu.“
Friðar-
horfurnar
versna enn
Ákvörðun Trumps og manndráp
Ísraela minnka líkur á friðarsamningi
Lokað svæði
Byggist á skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í júlí 2017
Lífskjörin á Gaza-svæðinu
Heimild: Sameinuðu þjóðirnar
42%
Lítið, þéttbýlt svæði í herkví Ísraela
362
km2
785
km2
5 km
Eina
raforku-
verinu
er lokað
reglulega
Erez
Rafah
Kerem Shalom
Beit
Lahiya
JabaliyaGAZA
Deir
el-Balah
Khan
Yunis
Khouza
Rafah
Flugvöllur eyðilagður
árið 2002
5.479
íbúar
á km2
Íbúar nú
Eftirlitsstöðvar
NewYorkGaza
Þéttbýl svæði
Flóttamannabúðir
af
íbúunum
26 til 46%
af eftirspurninni
er fullnægt
3,8%
39%
Öruggt drykkjar-
vatn úr vatnsbólum
47%
Hlutfall þeirra sem
búa við fæðuóöryggi
Hlutfall fátækra
Atvinnuleysi
Aðgangur að rafmagni
1,42 læknar eru á
hverja 1.000 íbúa
Heilsugæsla
Girðing Múr
202
0
201
6-
201
7
201
1-
201
2
Í
mil
ljón
um
1.6
2
2.2
Sp
á
Í SRAEL
50 km
Tel Avív
EGYPTA-LAND
JÓ
RD
A
N
ÍA
VESTUR-BAKKINN
M
ið
ja
rð
ar
ha
f
Jerúsalem
LÍB.
Sjúkraflutningar
leyfðir í sumum
tilvikum
(Vöruflutningaeftirlit)
(Sjaldan
opin)
2 milljónir
Vilja óháða rannsókn
» Stjórnvöld í Belgíu, Bret-
landi, Sviss, Þýskalandi og fleiri
ríkjum hafa hvatt til óháðrar
rannsóknar á manndrápum Ísr-
aelshers við landamærin að
Gaza-svæðinu.
» Bandaríkjastjórn kom í veg
fyrir að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti ályktun
um slíka rannsókn.
» 60 Palestínumenn biðu bana
í mótmælum við landamærin í
fyrradag, þ.á m. átta börn.
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Líkurnar á því að bandarísk stjórn-
völd geti knúið fram varanlegan
friðarsamning milli Ísraela og Palest-
ínumanna eru nú minni en nokkru
sinni fyrr vegna þeirrar ákvörðunar
Donalds Trump Bandaríkjaforseta að
flytja sendiráð landsins í Ísrael til
Jerúsalem og vegna drápa Ísraels-
hers á tugum mótmælenda við landa-
mærin að Gaza. Þetta er mat margra
fréttaskýrenda og sumir þeirra telja
jafnvel að líkurnar á friðarsamningi
fyrir milligöngu bandarískra stjórn-
valda séu nánast engar.
Á meðal þeirra svartsýnustu er
Martin Indyk, sem var sérlegur
sendimaður Bandaríkjastjórnar í til-
raunum til að koma á friði milli Ísr-
aela og Palestínumanna í forsetatíð
Baracks Obama. Hann segir að yfir-
lýsingar bandarískra embættis-
manna um að flutningurinn á sendi-
ráðinu geti stuðlað að friðarsamningi
séu „fáránlegar“.
Embættismenn í Washington hafa
sagt að tengdasonur forsetans, Jared
Kushner, og Jason Greenblatt, aðal-
samningamaður Trumps í alþjóða-
málum, séu að leggja lokahönd á nýja
áætlun um friðarsamning milli Ísr-
aela og Palestínumanna. Ákvörðun
Trumps um að flytja sendiráðið frá
Tel Aviv til Jerúsalem varð til þess að
leiðtogar Palestínumanna sögðu að
þeir myndu ekki ljá máls á viðræðum
fyrir milligöngu Bandaríkjastjórnar.
Brot á þjóðarétti
Með ákvörðun sinni vék Trump frá
stefnu sem bandarísk stjórnvöld hafa
fylgt síðustu áratugi í deilu Ísraela og
Palestínumanna um Jerúsalem sem
gyðingar, kristnir menn og múslímar
líta á sem helga borg. Hún hefur ver-
ið eitt af erfiðustu deilumálum Ísraela
og araba og torveldað mjög friðar-
samninga. Palestínumenn hafa kraf-
ist þess að Austur-Jerúsalem verði
höfuðborg ríkis þeirra þegar fram
líða stundir. Bandarísk stjórnvöld
hafa fylgt þeirri stefnu að leysa eigi
deiluna um Jerúsalem í friðarvið-
ræðum, eins og kveðið er á um í
samningi Ísraela og Palestínumanna
frá árinu 1993.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti árið 1947 áætlun um
skiptingu Palestínu í tvö ríki, gyðinga
og araba, og samkvæmt henni átti
Jerúsalem, Betlehem og nálægir
helgistaðir að vera undir stjórn al-
þjóðasamtakanna. Gyðingar sam-
þykktu áætlunina um skiptinguna en
arabaríki höfnuðu henni og hófu stríð
gegn Ísrael eftir að ríkið var stofnað
árið 1948. Þegar átökunum lauk ári
síðar tilheyrði austurhluti borgar-
innar Jórdaníu en vesturhlutinn Ísr-
ael. Ísraelar hernámu austurhlutann í
sex daga stríðinu 1967 og síðan hefur
öll borgin verið undir stjórn Ísraels.
Austurhlutinn var innlimaður í landið
árið 1980 með lögum þar sem Jerú-
salem var lýst sem „eilífri og óskiptri
höfuðborg Ísraels“. Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna fordæmdi innlim-
unina, sagði hana vera brot á þjóða-
rétti, og samtökin hafa aldrei viður-
kennt hana.
Eftir innlimunina hafa borgarmörk
Jerúsalem verið færð út með lögum
sem samþykkt hafa verið á þingi Ísr-
aels. Alls búa um 200.000 gyðingar á
Aðalfundur Haga hf. 6. júní 2018
Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinnmiðvikudaginn
6. júní 2018 og hefst hann kl. 09:00 áHilton Reykjavík Nordica,
Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður
fram til samÞykktar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2017/18.
4. Tillaga að eftirfarandi breytingum á samÞykktum félagsins:
a) Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um kr. 41.831.651
að nafnvirði með eftirfarandi viðbót við gr. 2.1 í samÞykktum félagsins:
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um kr. 41.831.651 að
nafnvirði. Forgangsréttur hluthafa skv. gr. 2.3 í samÞykktum félagsins gildir
ekki um hið nýja hlutafé. Stjórnin skal ráðstafa hlutafjárhækkuninni til greiðslu
fyrir hlutafé í Olíuverzlun Íslands hf. í samræmi við kaupsamning Þar að lútandi
á genginu 47,5 kr. á hlut. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá
skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Hlutafé félagsins eftir hækkun verður
kr. 1.213.333.841. Framangreind heimild stjórnar Haga hf. rennur út á
aðalfundi félagsins árið 2019 sem áætlaður er Þann 7. júní. Heimild Þessi skal
felld úr samÞykktum Þegar hún hefur verið nýtt.“
b) Grein 3.18 um dagskrá aðalfundar verði breytt Þannig að við dagskrá
fundarins bætist við kosning tilnefningarnefndar.
c) Grein 4.11 um verkaskiptingu stjórnar verði breytt, til samræmis við
starfsreglur stjórnar, að stjórn kjósi sér varaformann.
5. Ákvörðun um Þóknun til stjórnarmanna.
6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.
7. Kosning tilnefningarnefndar.
8. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
9. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
10.Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Ítarlegri upplýsingar um tillögur stjórnar, ársreikning og önnur gögn, ásamt upplýsingum um póstatkvæðagreiðslu,
rétt hluthafa til að bera fram tillögur og framboð til stjórnar er að finna á vefsíðu félagsins,
http://www.hagar.is/fjarfestaupplysingar/adalfundur/
Stjórn félagsins vill einnig árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, Þ.e. forsvarsmenn fyrirtækja,
lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga og annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn.
Einnig verða einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum.
Stjórn Haga hf.