Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Blessuð blíðan Þessar nunnur gengu rösklega yfir Lækjargötuna í gær þegar sólin lét svo lítið að skína svolitla stund á borgarbúa, en Esjan náði ekki að rífa af sér öll skýin.
Hari
Sveitarfélögin leika
æ stærra hlutverk í ís-
lensku samfélagi.
Hvernig til tekst við
rekstur þeirra hefur
ekki aðeins bein áhrif á
daglegt líf okkar allra
heldur veruleg óbein
efnahagsleg áhrif. Á
þessu ári er áætlað að
heildartekjur A-hluta
sveitarfélaganna verði
357 milljarðar króna og þurfa að vera
skatttekjur um 280 milljarðar. Í fjár-
málaáætlun til næstu fimm ára er
reiknað með að heildartekjur A-hluta
sveitarfélaganna verði orðnar liðlega
460 milljarðar árið 2023 eða um 103
milljörðum hærri en á þessu ári. Við
þetta bætast um 107 milljarða tekjur
B-hluta.
Útsvarstekjur eru mikilvægasti
tekjustofn sveitarfélaganna eða nær
80% af skatttekjum og 62% af heild-
artekjum. Eina sveitarfélagið á höf-
uðborgarsvæðinu sem leggur á há-
marksútsvar – 14,52% – er Reykja-
vík, en lægst er álagningin á Sel-
tjarnarnesi og í Garðabæ. Af 74
sveitarfélögum er útsvarsprósentan í
hámarki í 56.
Í samantekt Samtaka atvinnulífs-
ins [SA], sem var birt nýlega, kemur
fram að frá árinu 1993 hafi útsvars-
prósentan nær tvöfaldast en aðeins
fjórðung hækkunarinnar megi rekja
til yfirfærslu verkefna frá ríki til
sveitarfélaga. Skattheimtan hefur því
aukist á undanförnum árum umfram
það sem réttlætist af auknum lög-
bundnum verkefnum sveitarfélaga,
segir SA.
Sveitarfélögin hafa notið góðæris
undangenginna ára og hafa skatt-
tekjur hækkað verulega. Í fjármála-
áætlun 2019-2023, kemur fram að
útsvarstekjur hafi aukist að jafnaði
um 9,9% að raunvirði á ári síðustu tvö
ár og fasteignaskattar um 8,8%. Frá
árinu 2011 þegar útsvar var hækkað
vegna tilfærslu málefna fatlaðs fólks
til sveitarfélaganna, hafa tekjur af út-
svari sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu
hækkað úr 7,4% í 8,1%.
Reiknað er með að
tekjur af útsvari haldi
áfram að aukast á kom-
andi árum og verði 8,3%
af vergri landsfram-
leiðslu árið 2023 þegar
þær verða um 72 millj-
örðum hærri en á þessu
ári.
Tekjur sveitarfélaga
hafa aukist um 296
milljarða króna á föstu
verðlagi frá 2011. Samtök atvinnulífs-
ins benda á að þar af hafi 170 millj-
örðum (57%) verið ráðstafað í aukinn
launakostnað en einungis 12% hafi
skilað sér í bættri afkomu.
Garðabær og
Seltjarnarnes bera af
Í samantekt SA kemur fram að
hlutfall skulda af tekjum samstæðu
sveitarfélaga hafi lækkað hratt á und-
anförnum árum. Ríflega helmingur
lækkunarinnar er vegna hærri tekna,
(hlutfallið lækkar með hærri tekjum
jafnvel þótt engar skuldir séu greidd-
ar), en hinn helminginn má rekja
annars vegar til gengisstyrkingar ís-
lensku krónunnar og hins vegar nið-
urgreiðslu skulda.
Staða sveitarfélaganna er misjöfn
og það virðist vera samhengi milli
skattheimtu og skulda. Þetta ætti
ekki að koma á óvart. Sterk fjár-
hagsleg staða – lítil skuldsetning –
gefur viðkomandi sveitarfélagi svig-
rúm til að halda álögum í lágmarki en
á sama tíma nýta tekjurnar í þjón-
ustu við íbúana fremur en að þjónusta
lánadrottna.
Þannig eru þessu farið í Garðabæ
og á Seltjarnarnesi. Í þessum sveitar-
félögum eru skuldir á íbúa lang-
lægstar en í þriðja sæti er Akranes
og Kópavogur er í því fjórða. Reykja-
vík er, ásamt Reykjanesbæ, skuldset-
tasta sveitarfélagið miðað við skuldir
samstæðu á hvern íbúa.
Í greinargerð Samtaka atvinnulífs-
ins er dregin fram sú staðreynd að
Seltjarnarnes, Garðabær og Vest-
mannaeyjar innheimta hlutfallslega
lægstu skattana af meðaltekjum íbúa
sinna. Akureyri, Fjarðabyggð og
Reykjavík taka hlutfallslega mest til
sín.
Best í stakk búin
Eitt er víst. Þau sveitarfélög sem
eru lítið skuldsett og hafa gætt hóf-
semdar í álögum á íbúana, eru betur í
stakk búin en önnur til að takast á við
áskoranir á komandi árum. Hvort
sem þær áskoranir eru fólgnar í um-
svifamiklum fjárfestingum eða efna-
hagslegum þrengingum. Þar sem
ekki er borð fyrir báru – skuldir mikl-
ar og álögur eins þungar og lög leyfa
– verður erfitt að glíma við óhagstæð
ytri skilyrði s.s. lækkun tekna vegna
samdráttar í efnahagslífinu og hækk-
un skulda vegna gengislækkunar
krónunnar. Þau sveitarfélög eiga fáa
aðra kosti en að safna skuldum og/eða
skera niður þjónustu við íbúana.
Ekki þarf að skoða ársreikninga
sveitarfélaga lengi til að komast að
þeirri niðurstöðu að það sé hrein
mýta að halda því fram að hugmynda-
fræði skipti litlu eða engu þegar kem-
ur að vali í sveitarstjórnir. Enginn
getur efast um að ákveðin hug-
myndafræði liggur til grundvallar við
rekstur sveitarfélaga ekki síður en við
rekstur ríkissjóðs. Það er ákveðin
hugmyndafræði að byggja upp sveit-
arfélag þar sem tekist hefur að sam-
þætta öfluga þjónustu við íbúana, hóf-
samar álögur og lágar skuldir.
Fyrir launafólk skiptir miklu hvaða
stefna er rekin í skattheimtu sveitar-
félagsins. Útsvarsprósentan skiptir
láglaunafólk meira máli en hvað ríkis-
sjóður ákveður að innheimta í tekju-
skatt. Sá sem hefur 300 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun greiðir helmingi
meira í útsvar en í tekjuskatt til ríkis-
ins (ef hann greiðir þá nokkuð). Í
heild greiða Íslendingar mun meira í
útsvar en tekjuskatt. Lækkun út-
svars er stærra hagsmunamál fyrir
flesta en að þoka tekjuskattsprósentu
ríkisins niður.
Með öðrum orðum: Skattastefna
sveitarfélaga hefur meiri áhrif á
launafólk en stefna ríkisins við álagn-
ingu tekjuskatts. Lagfæringar á
tekjuskattskerfi ríkisins, þar sem
dregið er úr jaðarskattheimtu og
skattprósenta lækkuð, er til lítils ef
almenningi er síðan refsað af sveitar-
félaginu með álagningu útsvars.
Líkt og sést á meðfylgjandi línuriti
hafa umsvif sveitarfélaganna aukist
verulega á síðustu áratugum enda
hafa þau tekið yfir verkefni sem áður
voru hjá ríkinu s.s. grunnskóla og
málefni fatlaðra. Tekjur og gjöld
sveitarfélaganna eru um og yfir 13%
af vergri landsframleiðslu en þetta
hlutfall var innan við 12% um alda-
mótin og rétt rúmlega 7% árið 1980.
Það skiptir því æ meira máli hvernig
til tekst við reksturinn og hefur bein
áhrif á lífskjör allra.
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosn-
inga eru gefin loforð um allt land –
flest eru fyrirheit um aukin útgjöld.
En svo eru frambjóðendur sem telja
farsælast að gæta aðhalds og fremur
lækka álögur á íbúana. Hugmynda-
fræði þeirra er í sjálfu sér einföld.
Þetta er hugmyndafræði frjálsræðis
sem hefur gefist vel í þeim sveitar-
félögum sem best standa fjárhags-
lega og þar er ánægja íbúanna mest.
En svo eru aðrir sem telja rétt að
nýta alla tekjustofna til hins ýtrasta,
eru áhyggjulitlir yfir skuldum (og að
sífellt stærri hluti tekna fer í að þjón-
usta skuldir en ekki íbúana). Þeir
geta sótt fyrirmyndina til Reykjavík-
ur.
Eftir Óla Björn
Kárason
» Það er ákveðin hug-
myndafræði að
byggja upp sveitarfélag
þar sem tekist hefur að
samþætta öfluga þjón-
ustu við íbúana, hóf-
samar álögur og lágar
skuldir.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Mýtan um að hugmyndafræði skipti litlu
Sveitarfélögin taka stærri sneið til sín
Hlutfall tekna og gjalda A-hluta af vergri landsframleiðslu frá 1980
16%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
1980 1986 1992 1998 2004 2010 2016
Heimild: Hagstofa Íslands
Tekjur % af vergri landsframleiðslu
Gjöld % af vergri landsframleiðslu
Skipting tekna
A-hluta hins opinbera
Ríki Sveitarfélög
Heimild: Fjármálaáætlun 2019-2023
70%
30%