Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Það var sorglegt og
jafnframt einkar dap-
urlegt að lesa í Morg-
unblaðinu sl. laugar-
dag viðtal við borgar-
fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, Kjartan
Magnússon. Þar segir
hann frá samskiptum
sínum við einn borg-
arfulltrúa vinstri
manna í núverandi
meirihluta Reykja-
víkurborgar. Sá er kona að nafni
Elsa Yeoman. Þessi kona hefur
ekki aðeins orðið sjálfri sér til
ævarandi skammar, heldur veitt
mörgum sjúkum djúp svöðusár.
Upplýsir Kjartan að á fundi hafi
téð Elsa Yeoman spurt hann end-
urtekið hvort hann væri með alz-
heimer-sjúkdóminn.
Af heilasjúkdómum er alzheimer
algengastur. Milljónir manna, jafnt
á Íslandi sem annars staðar í heim-
inum, þjást djúpt af þessum skelfi-
lega sjúkdómi. Ennþá er því miður
engin lækning fundin, en vísinda-
menn um víða veröld vinna ötullega
að viðvarandi lækningu.
Það er því með ólíkindum að
stjórnmálakona skuli spyrja póli-
tískan andstæðing sinn hvort hann
sé haldinn þessum skelfilega sjúk-
dómi. Hversu djúpt getur fólk lagst
í stjórnmálum til að sverta mann-
orð pólitísks andstæð-
ings þótt þá greini á
um einstök veraldleg
mál ?“
Einkenni alzheim-
ers-sjúkdómsins eru
mörg. Byrja oft sem
minnisglöp, síðar m.a.
málstol, ranghug-
myndir, depurð og
þunglyndi. Sjúklingur-
inn lýkur svo lífsgöng-
unni oft löngu fyrr, lif-
andi horfinn sínum
nánustu.
En téð Elsa Yeoman á banda-
mann, sjálfan borgarstjórann og
lækninn Dag B. Eggertsson. Eða
hvað skyldi Dagur hafa að segja um
þetta í sömu frétt. Jú, orðrétt segir
hann „Allir borgarfulltrúar ættu nú
að þekkja húmor Elsu Yeoman,
sem getur verið svartur og alls-
konar“. Svartur húmor. Það var allt
sem borgarstjóranum lá á hjarta í
þessu máli!
Geta tvö hjörtu vinstri borgar-
fulltrúa slegið öllu taktfastar?
Ertu með alzheimer?
Eftir Magnús
Erlendsson
Magnús
Erlendsson
» Svartur húmor. Það
var allt sem borgar-
stjóranum lá á hjarta í
þessu máli!
Höfundur er nánasti
ættingi alzheimersjúklings.
Tæplega helmingur
borgarbúa er gælu-
dýraeigendur og stór
hluti þeirra er hunda-
eigendur sem greiða
um það bil 35 milljónir
í gjöld árlega en hljóta
sáralitla ef einhverja
þjónustu fyrir. Hunda-
eigendur eru skiljan-
lega ekki sáttir við að
fá enga þjónustu fyrir
gjöldin sem þeir greiða, þeir vilja
annaðhvort fella niður hundagjöldin
eða fá þjónustu á borð við hunda-
gerði og svæði sem er vel við haldið
og skemmtileg fyrir hunda. Við ætl-
um að bæta úr þessu og fjölga
hundagerðum á útivistarsvæðum
sem fjölskyldur vilja
sækja, ekki staðsetja
þau eins og einhver
olnbogabörn við um-
ferðargötur eins og
staðan er nú.
Dýraþjónusta
Reykjavíkur er okkar
tillaga til að einfalda
kerfið og fella öll mál-
efni sem snúa að dýr-
um, eftirliti og þjón-
ustu undir hana. Við
viljum stuðla að friðun
villtra dýra og standa
vörð um líffræðilegan fjölbreytileika
ásamt því að opna dýraathvarf í
samráði við þau samtök sem nú þeg-
ar vinna öflugt starf í þágu dýra en
skortir húsnæði og fjármagn. Það er
tímabært að fólk fái að eiga gæludýr
í félagslegu húsnæði og þjónustu-
íbúðum og að veitingahúsaeigendur
og þjónustuaðilar fái að bjóða gælu-
dýr velkomin ef þau svo kjósa.
Öll dýr, hvort sem þau eru villt
eða ekki, eru undir áhrifavaldi
mannsins í dag og það er á okkar
ábyrgð að stuðla að velferð þeirra.
Dýrin í borginni
Eftir Valgerði
Árnadóttur » Píratar eru eini
flokkurinn í Reykja-
vík sem er með sérstaka
stefnu í dýravelferðar-
málum og þjónustu við
gæludýraeigendur.
Valgerður Árnadóttir
Höfundur er frambjóðandi Pírata í 5.
sæti í Reykjavík.
vala@piratar.is
Það er komið árið
2018 og traust á Alþingi
hefur ekki tekist að
endurnýja, segir núver-
andi forsætisráðherra,
Katrín Jakobsdóttir.
Hver skyldi nú vera að-
alástæða þess? Gæti
verið að hún sé sú að
VG og Samfylkingin
siguðu hrægömmunum
á íslensk heimili eftir
hrun? Hægt hefði verið að fara marg-
ar aðrar leiðir eins og allir vita sem
kunna að leggja saman tvo og tvo.
Spænskir íbúðareigendur gátu t.d.
fryst sín húsnæðislán án afborgana í
allt að fimm ár frá 2009. Á Íslandi
fengu hrægammarnir kröfurnar á
nokkur prósent en rukkuðu svo ís-
lensk heimili upp í topp af einstakri
óbilgirni. Það er svo ótrúlegt að nor-
ræna velferðarstjórnin hafi ekki stað-
ið í lappirnar með heimilum landsins
og neyðarlögunum og að höfuðpaur-
inn sé nú forseti Alþingis. Væri ekki
heiðarlegast af þeim Steingrími J. og
Jóhönnu Sig. að viðurkenna van-
hæfni sína gagnvart vogunarsjóð-
unum og opna á öll skjöl í þessu
óþverramáli? Þau voru kosin af borg-
urum þessa lands en ekki hræ-
gammasjóðunum. Ekki dettur mér
það í hug í eina einustu mínútu að þau
hafi eitthvað að fela. Þeirra flokkar
hafa farið fremst í því
að hafa allt uppi á borð-
um.
Ég las um daginn að
Theodóra Þorsteins-
dóttir, fyrrverandi al-
þingismaður, sagði að
við (þjóðin) þyrftum að
fá nýja skýrslu frá
rannsóknarnefnd Al-
þingis um aðgerðir
Steingríms og félaga
eftir hrun. Hún tók sér-
staklega fram að sér
þætti það alveg magnað
hvað hann gat verið kokhraustur í
ræðu á Alþingi miðað við þá ábyrgð
sem hann bar á hörmungum margra
eftir hrun.
Þá má nefna að á haustdögum 2016
kom fram í þættinum á Sprengisandi
á Bylgjunni í viðtali við Jóhannes
Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmann
og einn af aðalsamningamönnum
norrænu velferðarstjórnarinnar, við
hrægammasjóðina, að hann hefði vilj-
að að ríkisvaldið hefði farið öðruvísi
að gagnvart bæði SPRON og Dróma.
Katrín! Hvað þarf að segja meira?
Auðvitað verður að rannsaka þessi
Spron- og Drómamál strax frá a-ö.
Þessi skaðræðisfyrirtæki höfðu
ekki einu sinni tilskilin leyfi til inn-
heimtunnar.
Þá má nefna það að Steingrímur
var með þessa líka gráðugu og gírugu
innheimtumenn á prósentum við inn-
heimtu á lánum SRON og Dróma.
Þess vegna segi ég við þig, frú for-
sætisráðherra: Ef þú vilt endurnýja
traust á Alþingi verður þú að byrja á
því að skoða bæði SPRON- og Dró-
maglæpinn frá a-ö. Fyrr verður ekk-
ert traust í þessu annars góða landi.
Rannsakið hvernig farið var með
venjulegt fólk í landinu í skeyting-
arleysi um hag heimilanna, algjör-
lega að óþörfu eftir hrun.
Ástæða þess að ég rita þessar línur
núna er aðallega sú að ég þekki fólk
sem er að flytja aftur heim til Íslands
frá Noregi. Þetta er gott fólk sem
Drómi flæmdi úr híbýlum sínum á ár-
unum eftir hrun og nú eru þau byrjuð
að leita réttlætis og vilja vita hvar
þau standa í dag. Hvar eiga þau að
byrja? Málið er komið í hring.
Ef Katrínu Jakobsdóttur, forsætis-
ráðherra, er alvara með að vilja auka
traustið á Alþingi í þjóðfélaginu, á
hún að byrja á málefnum SPRON og
Dróma. Einnig þætti mér vænt um
að fréttahaukarnir á RUV kynntu sér
stöðu þessara mála. Ég trúi því að
réttlætið sigri að lokum.
Katrín, hvað þarf að segja meira?
Eftir Halldór
Úlfarsson » Auðvitað verður að
rannsaka þessi
Spron- og Drómamál
strax.
Halldór Úlfarsson
Höfundur býr í Mosfellsbæ.
doriulfars@gmail.com
Jæja, er karma lífs-
ins að elta uppi þann
hóp þingmanna er
lögðu hart að sér við að
koma Hönnu Birnu úr
ráðherrastóli með yfir-
lýsingu um vantraust?
Já, Katrín, Svandís
Svavars, Píratar og öll
þið hin sem tókuð þátt í
þeirri árás, að ykkar
sögn vegna leka úr
ráðuneytinu. Hvernig ætlið þið nú að
höndla míglekann frá velferðarnefnd
og Halldóru Mogensen til Stundar-
innar, ef rétt reynist, og ef Píratar
veita Stundinni upplýsingar frá
þinginu. Auðvitað gerið þið ekkert,
en ég sem skattgreiðandi mótmæli
og neita að borga Pírataflokknum
laun, það fólk er ekki þingtækt. Að-
hald hvað? Frá þessu fólki koma að-
eins árásir og þvæla. Ekkert til góða
fyrir land og þjóð, því að þau virðast
ekki vita, til hvers þau eru á þingi.
Já, það eru tröll á þingi. Ég set
hér setningu sem Albert Einstein á
að hafa sagt: „Með vaxandi tækni
kemur heil kynslóð hálfvita.“ Hans
orð. Alþingi er orðið ógeðfellt.
Að öðru. Því er verið að gera ör-
þjóðina Íslendinga að peningavél
fyrir óráðsíuna úti í heimi? Það er
ekki bara verið að gefa
landið okkar heldur eru
allar klær úti með að ná
í peninga, fyrir utan
það sem við þjóðin, rík-
ið, lætur af hendi
rakna. Er það ekki sið-
blinda, að UNICEF
birti grein og höfði til
elstu kynslóðarinnar að
gefa nú af erfðafé – það
er að fara í erfðaskrár
fólks – og ekki vantar
hjálpsemi Guðrúnar
Ögmundsdóttur hvern-
ig þetta fari nú fram, bara tala við
lögfræðing UNICEF, hann sjái um
málin! Einmitt það, hm, rauðsokk-
urnar hafa alltaf verið svo hjálp-
samar. Herjið nú endilega á við-
kvæma elstu kynslóðina. Hafið
skömm þið sem standið að þessu.
Það má líka huga að Rauða kross-
inum. Alltaf munu verða stríð og
hörmungar, og hvað ætlið þið stjórn-
völd og þeir sem endalaust betla eft-
ir peningum að gera þegar pen-
ingana þrýtur? En það mun gerast.
Að enn öðru. Það eru hræringar á
Balkan, púðurtunnunni þeirri. Og
hér hleypið þið einmitt inn fólki sem
hefur verið fjandmenn í gegnum ald-
irnar og haldið þið að lögreglan ráði
við þau mál þegar upp úr sýður? Í
Bosníu-Hersegóvínu, um 150 km
norðaustur af Sarajevo, eru ISIS-
liðar með æfingabúðir og bíða bara
eftir réttu augnabliki. Albanar vilja
berja á Serbum, það var ekki nóg að
þeir fengju Kosovo. Og Pútín ætlar
að vera til staðar, þegar og ef skellur
saman. Rússar og Grikkir munu
ætíð styðja Serba og Pútín vill líka
koma í veg fyrir að Nato hreiðri um
sig á Balkan. Svo að þannig mun allt-
af verða ófriður og ég spyr mig: Eig-
um við Íslendingar endalaust að
reyta af okkur til þeirra sem kunna
sig ekki?
Í lokin. Látið erfðamál elstu kyn-
slóðarinnar í friði, þið viljið hvort eð
er lítið af okkur vita. Er hvergi skjól
fyrir þessu endalausa peningaáreiti?
Við erum kynslóð sem unnum
hörðum höndum að okkar, öfugt við
margan nútímamanninn, sem stend-
ur bara á pöllum blaðrandi endalaust
og lítið kemur út úr því. Og auðvitað
þarf sálfræðinga inn á Háskóla Ís-
lands, eftir að þið hafið blaðrað í
hringi og gert þetta einfalda líf okk-
ar erfitt og ruglingslegt.
Ýmislegt um samfélagsmál
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur » Látið erfðamál elstu
kynslóðarinnar í
friði, þið viljið hvort eð
er lítið af okkur vita.
Stefanía Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 GMC Sierra SLT
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning
innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
Litur: Silver, svartur að innan.
Einnig til Stone Blue, Dark Slate og Red Quartz
VERÐ
9.590.000 m.vsk
2018 GMC Denali
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
Nýr 2018 Denali (nýja útlitið). Vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, sóllúga, geymsluhólf undir aftur-
sæti, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti
og heithúðaður pallur. Öll standsetning innífalin í
verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
9.990.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Q6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og
loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning
innífalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
Litur: Stone blue, svartur að innan.
Einnig til Dark Slate, Silver og Red Quartz
VERÐ
9.590.000 m.vsk
2018 GMC Denali - 35” breyttur
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ. Vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, sóllúga, geymsluhólf undir aftursæti,
BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og
heithúðaður pallur. 35” breyttur með brettakanta,
35” dekk og krómfelgur. Öll standsetning innífalin í
verði ásamt ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
10.690.000 m.vsk