Morgunblaðið - 16.05.2018, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
✝ Jóna Aðal-heiður Hannes-
dóttir fæddist á
Núpsstað 30. mars
1924. Hún andaðist
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 6. maí 2018.
Foreldrar Jónu
voru þau hjónin
Þóranna Þórarins-
dóttir húsfreyja, f.
14.5. 1886, d. 8.9.
1972 og Hannes Jónsson, land-
póstur og bóndi, f. 13.1. 1880, d.
29.8. 1968. Jóna var næstyngst í
röð tíu barna þeirra hjóna. 1)
Margrét, f. 1904, d. 2011. 2)
Dagbjört, f. 1905, d. 1998. 3)
Eyjólfur f. 1907, d. 2004. 4) Fil-
ippus, f. 1909, d. 2010. 5) Mar-
grét, f. 1910, d. 2006. 6) Jón, f.
1913, d. 2012. 7) Málfríður, f.
1914, d. 2002. 8) Sigrún, f. 1920,
d. 1982. 9) Ágústa Þorbjörg, f.
1930. Ágústa er ein systkinanna
er á lífi. Jóna sleit barnsskónum
á Núpsstað og gekk í skóla þar í
sveit og sinnti bústörfum. Árið
1945 fór hún til Reykjavíkur og
réð sig í vist að Egilsgötu 18. Í
Reykjavík kynntist hún eigin-
manni sínum, Tómasi Arnfjörð
Ágústssyni, f. 3.9. 1915, d. 30.4.
1964. Foreldrar hans voru Þór-
Hjálmar Jónsson, f. 8.9. 1957, d.
8.2. 1922. Jóna og Línberg fluttu
að Árskógum 6 árið 1993 og
bjuggu þar til æviloka.
Jóna starfaði við margt sam-
hliða uppeldi drengjanna. Hún
vann lengi hjá Póstinum og
einnig sem ræstitæknir hjá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð, auk þess bar hún út dag-
blöð. Jóna hafði yndi af sönglist.
Hefur sungið í mörgum söng-
hópum til að mynda í Skaft-
fellingakórnum í Reykjavík.
Hún var í hópi þeirra sem sungu
við vígslu Skeiðarárbrúarinnar
árið 1974. Með Gerðubergs-
kórnum söng hún í yfir 25 ár,
allt þangað til í desember á síð-
asta ári. Hún var formaður alt-
raddarinnar, var lagviss og
hafði næmt tóneyra. Einnig var
hún í öðrum sönghópum sem
sungu m.a. í Seljahlíð, á Drop-
laugarstöðum og víða við mess-
ur hjá eldri borgurum. Hún unni
ljóðum og var Davíð Stefánsson
í uppáhaldi hjá henni. Jóna spil-
aði bæði á orgel og harmonikku
þó hún hafi ekki notið tónlistar-
kennslu og lék á harmonikku
meðal annars á dansleikjum í
heimasveitinni. Eftir hana liggja
mörg falleg handverk. Eitt
þeirra er í bænhúsinu á Núps-
stað, heklaður hvítur dúkur sem
prýðir þar altarið. Tækifæris-
kort hennar eru algjör lista-
verk.
Útför Jónu fer fram í Selja-
kirkju miðvikudaginn 16. maí
kl. 13.
dís Kristjánsdóttir,
f. 1.10. 1891, d.
21.3. 1957 og Ágúst
Guðjón Jónsson, f.
17.8. 1893, d. 12.1.
1975. Jóna og Tóm-
as stofnuðu heimili
að Steinum við
Laugarásveg, en
fluttu síðan að
Tunguvegi 76. Þau
giftu sig 19.3. 1960.
Synir þeirra eru: 1)
Snorri Þór Tómasson, f. 6.11.
1946, kvæntur Kristjönu U.
Valdimarsdóttur, f. 3.9. 1947. 2)
Hannes Tómasson, f. 2.4. 1948,
kvæntur Hong Thanh Bui Thi, f.
5.3. 1981. 3) Ágúst Tómasson, f.
6.9. 1949, kvæntur Elísabetu
Þórdísi Guðmundsdóttur, f.
29.12. 1949. 4) Hörður Ingþór
Tómasson, f. 11.12. 1953, kvænt-
ur Sigrúnu Rögnu Jónsdóttur, f.
9.10. 1957. 5) Pálmi Tómasson, f.
9.9. 1958, kona hans er Sigríður
Poulsen, f. 11.8. 1959. Barna-
börn Jónu eru 20 og lang-
ömmubörnin orðin 27.
Árið 1988 kynntist Jóna Lín-
berg Hjálmarssyni, f. 8.4. 1917,
d. 9.5. 2003, frá Helgustöðum í
Fljótum í Skagafirði. Foreldrar
hans voru Sigríður Eiríksdóttir,
f. 28.6. 1883, d. 12.1. 1922 og
Hún var ekki hávaxin, konan
sem arkaði úr Nettó heim í Ár-
skóga. Bakpokinn var úttroðinn
af hveiti og mjólk til að nota í
pönnukökur. Hún gekk rösklega
á gödduðum skónum með göngu-
stafi í höndum. Fallegt hvítt hár-
ið stóð út undan fjólubláa hár-
bandinu og hún pírði augun í
hríðinni. Þannig voru göngu-
túrar tengdamóður minnar þrátt
fyrir eða vera komin yfir nírætt.
Hún fór allra sinna ferða í
strætó eða gangandi. Einhverju
sinni var hún spurð hvort hún
vildi ekki nota hnappinn sem
opnaði dyrnar á byggingunni
sem hún var að fara inn í. „Nei,“
svaraði hún „það styrkir hend-
urnar að toga í hurðina.“
Þrátt fyrir mótlæti lét Jóna
fátt stoppa sig í lífinu. Það hefur
trúlega verið henni þungbært að
verða ekkja nýorðin fertug, eftir
sviplegt andlát Tómasar. Styrk-
ur hennar fólst í jákvæðni og
bjartsýni ásamt einstöku æðru-
leysi. Það hefur ekki verið auð-
velt að tjónka við fimm stráka á
aldrinum fimm til sautján ára á
þessum árum. Þegar ég innti
hana eftir því hvort þetta hefði
ekki verið erfitt, vildi hún sem
minnst gera úr því, það hefðu
líklega margir átt erfiðari daga
en hún. Fyrstu jólin sem ég sat
með þeim til borðs á Tunguveg-
inum varð ég undrandi yfir því
að húsfreyjan settist aldrei nið-
ur. Hún var á þönum eftir sósu
og sultu. Það var eins og hún
sjálf þyrfti ekkert að borða. Síð-
ustu vikurnar sem hún var
heima hafði hún áhyggur af því
að hafa ekki orku til að hella á
könnuna handa mér. Hún var sí-
fellt að hugsa um aðra en sjálfa
sig.
Yfir Jónu var alltaf birta og
frá henni stafaði mikil hlýja. Út-
geislun hennar var einstök. Bros
hennar og hlátur gátu rekið
burtu mörg óveðursský. Hún var
mjög sjálfstæð og gat haft sterk-
ar skoðanir. Hún hafði ríka rétt-
lætiskennd og var meinilla við
neikvæðni og skildi ekki fólk
sem sífellt var að kvarta og
kveina.
Umhyggjan fyrir barnabörn-
um og langömmubörnunum var
einstök. Frá henni streymdi svo
mikil hlýja og brosið náði út að
eyrum þegar hún tók utan um
þau, og kyssti.
Sköpunargleði hennar var
ótrúleg, sama hvort það pappír,
garn eða útsaumur sem hún
hafði milli handanna. Úr því
urðu falleg listaverk. Þegar
langömmubörnin komu í heim-
sókn var henni ekkert eðlilegra
en að sitja flötum beinum á gólf-
inu og hjálpa þeim að skapa ger-
semar úr Legokubbum. Gamla
rokkinn hennar fengu þau að
prufa með nákvæmum leiðbein-
ingum um til hvers hann var not-
aður á árum áður.
Af tilviljun fylgdi ég henni í
Gerðuberg daginn eftir 90 ára
afmælið hennar með kaffibrauð
sem hún vildi deila með kór-
félögunum. Þarna hlustaði ég á
kórinn og laumaði mér í eitt sæt-
ið með sópraninum. Þannig byrj-
aði ég sjálf að syngja með og hef
verið þar síðan. Þetta varð til
þess að með okkur tókust enn
nánari bönd í gegnum sameigin-
legt áhugamál, sönginn. Djúp
virðing var borin fyrir henni í
kórnum þar sem hún var for-
maður altraddarinnar og hélt öll-
um nótum til haga. Það voru fá
lög í söngflórunni sem hún ekki
kunni.
Nú er söngur hennar hljóðn-
aður. Eftir lifa bjartar minning-
ar um einstaka móður og
tengdamóður, sem gaf okkur svo
mikið. Guð geymi hana.
Kristjana og Snorri.
Amma Jóna.
Fyrir mörgum árum eignaðist
ég ömmu sem var ein sú ömmu-
legasta sem ég hafði séð. Lítil,
brosmild, alltaf hlæjandi og með
alveg hvítt hár. Amma Jóna var
ljúf og elskuleg kona. Bros henn-
ar yljaði okkur alltaf um hjarta-
rætur.
Það var alltaf mikil tilhlökkun
að fara í borgina og hitta ömmu
Jónu. Að koma til hennar var
ævintýri. Það var vaknað
snemma og farið með að bera út
Morgunblaðið, te og ristað brauð
þegar heim kom og ekki má
gleyma pönnukökunum en
amma Jóna gerði bestu pönnu-
kökur í heimi.
Þessi litla og kvika kona var
dugleg að mæta þangað sem
henni var boðið og fylgdist hún
vel með öllum sínum afkomend-
um og vildi vita allt um alla.
Amma var ekki bara amma held-
ur var hún góð vinkona líka. Hún
deildi visku sinni til okkar allra
og kom með góð ráð. Allir voru
jafnir og mátti hún ekkert aumt
sjá.
Þegar ég flutti suður sem
unglingur bjuggum við hjá henni
fyrstu mánuðina og var sambúð-
in góð. Hún kenndi mér margt
um lífið og tilveruna sem hefur
fylgt mér alla tíð. Ég fékk að
fara með henni á kóræfingar og
flækjast með henni um bæinn.
Hún ferðaðist með strætó allar
sínar ferðir eða þangað til að
henni fannst leiðarkerfið svo
flókið að það væri ekki fyrir
venjulegt fólk að skilja það.
Núna er komið að leiðarlokum
og vil ég þakka fyrir öll árin sem
við áttum saman. Það er alltaf
erfitt að kveðja en þú varst tilbú-
in að fara frá okkur.
Þín,
Fanney Björnsdóttir.
Jóna Aðalheiður
Hannesdóttir
✝ Katrín Egils-dóttir fæddist
24. maí 1934. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 2.
maí 2018. Katrín
var dóttir Guð-
mundu Guðmunds-
dóttur og Egils
Guðmundssonar.
Systur hennar
eru Lea, f. 1938,
og Agla, f. 1942.
Katrín ólst upp í Hafnarfirði.
Þann 23. desember 1954
giftist hún Baldri Sigurðssyni,
f. 23. desember 1934, d. 20.
janúar 1973. Eftirlifandi maki
Katrínar er Sæmundur Pét-
ursson, f. 10. októ-
ber 1943. Börn
Katrínar og Bald-
urs eru: 1) G.
Eygló Baldurs-
dóttir, maki Gunn-
ar Maack, f. 14.
mars 1954, d. 8.
júlí 1994, sambýlis-
maður hennar er
Guðmundur Jó-
hannsson. 2) Kjart-
an Baldursson,
maki Edda Aradóttir. Sonur
Sæmundar er Árni Sæmunds-
son.
Barnabörnin eru sex og
barnabarnabörnin fimm.
Útför fór fram í kyrrþey.
Hvernig kveður maður vin
sinn og og félaga sem um leið er
móðir manns? Einfaldlega með
því að segja takk. Kærar þakkir
fyrir allar stundirnar okkar
saman. Kærar þakkir fyrir allan
stuðninginn í gegnum árin.
Þú varst alltaf tilbúin að
hjálpa öllum þegar til þín var
leitað, varst einstök amma og
barnabörnin og langömmubörn-
in nutu þess að vera hjá þér.
Hvað gerði þig svona heilsteypta
og æðrulausa? Var það upplagið,
uppeldið, reynslan, ástin og
sorgin, eða þetta allt? Allavega
leiddi það til þess að handleiðsla
þín varð okkur ómetanleg.
Elsku mamma, líf þitt var stund-
um erfitt, þú misstir pabba þinn
mjög ung og hann pabba okkar
aðeins 38 ára gömul. En hann
Sæmi kom eins og himnasend-
ing inn í líf okkar og það birti til
á ný. Hann hefur staðið þér við
hlið og reynst þér svo vel að eft-
ir er tekið. Við kveðjum þig,
kæra mamma, með söknuði en
um leið þakklæti fyrir allar liðn-
ar stundir. Megi minningin um
þig vera okkur eftirlifendum
vegvísir inn í komandi framtíð.
Eygló Baldursdóttir
og Kjartan Baldursson.
Elsku amma, það er sárt að
kveðja en á sama tíma er ég
þakklátur fyrir að hafa átt þig
að. Í gegnum árin hefur nær-
vera þín og þátttaka í lífi mínu
verið ómetanleg.
Þú varst mikill stuðningur á
erfiðum tímum, hlý og góð og
mikil fyrirmynd. Það verða seint
taldir upp allir þeir mannkostir
sem þú bjóst yfir.
Þú varst mikill áhrifavaldur í
lífi mínu og fjölskyldu minnar,
kær vinur okkar allra og hjálp-
arhella þegar á reyndi. Þau voru
mörg ferðalögin sem við bræð-
urnir fórum með ykkur afa um
landið, fórum á skíði eða áttum
góðar stundir í Grjótaselinu.
Þetta voru góðar stundir sem
skildu eftir minningar sem
munu lifa og ylja okkur um
ókomin ár.
Elsku amma, takk fyrir að
vera alltaf til staðar, takk fyrir
allt sem þú kenndir mér og takk
fyrir að gefa okkur svona stóran
part af sjálfri þér. Við kveðjum
með söknuði en geymum í hug-
skoti okkar mynd og minningu
um góða konu.
Baldur Maack og fjölskylda.
Katrín Egilsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,tengdafaðir, afi og langafi.
GUNNAR EGILSON,
fyrrv. flugumferðarstjóri og bóndi,
Grund 2, Eyjafjarðarsveit,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Sjúkrahúsinu
á Akureyri sunnudaginn 6. maí.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 23. maí
klukkan 13.30.
Auður Birna Egilson
Þorsteinn Egilson
Bryndís Egilson Stefán Sch. Árnason
Kjartan Steinarr Egilson
Snæfríð Egilson Ivan Falck-Petersen
Agla Egilson Jónas Kristjánsson
barna og barnabarnabörn
Innilegar þakkar til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og
langafa,
ARNÓRS AÐALSTEINS STÍGSSONAR
frá Horni.
Hjartans þakkir til starfsfólksins á
hjúkrunarheimilinu Eyri fyrir hlýju og góða umönnun.
Stígur Arnórsson Björk Helgadóttir
Svanfríður Arnórsdóttir
Elfa Dís Arnórsdóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæri,
REYNIR JÓNASSON,
fv. aðstoðarbankastjóri,
Birkihæð 12, Garðabæ,
er látinn.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Elín Þórhallsdóttir
Gunnar Ólafur Bjarnason Sigrún Sigfúsdóttir
Jónas Reynisson Hanna Lára Helgadóttir
Þórhallur Haukur Reynisson Kristín Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur bróðir okkar,
RAGNAR HALLSSON
frá Hallkelsstaðahlíð,
lést laugardaginn 12. maí í Brákarhlíð í
Borgarnesi.
Útförin fer fram frá Kolbeinsstaðakirkju
laugardaginn 19. maí klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar, sjá heimasíðu:
www.brakarhlid.is.
Sigríður Herdís Hallsdóttir
Anna Júlía Hallsdóttir
Sigfríður Erna Hallssdóttir
Margrét Erla Hallsdóttir
Sveinbjörn Hallsson
Elísabet Hildur Hallsdóttir
Halldís Hallsdóttir
Elskuleg systir okkar, mágkona
og frænka,
KATRÍN ÞÓRODDSDÓTTIR,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð
sunnudaginn 13. maí.
Sæmundur Þóroddsson
Baldvin Þóroddsson Petra Verschüer
Snjólaug Þóroddsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Kristín S. Þóroddsdóttir
Guðjón S. Þóroddsson Kristín M. Magnadóttir
og fjölskyldur
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIF SIGURÐARDÓTTIR
kennari,
Kvisthaga 27, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 29. maí klukkan 15.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Atli Heimir Sveinsson
Sjöfn Blöndal
Auðunn Árni Blöndal Stefanía Björg Eggertsdóttir
Edda Lúvísa Blöndal Páll Hólm Sigurðsson
og barnabörn