Morgunblaðið - 16.05.2018, Qupperneq 26
P
álína Jónsdóttir fæddist á
Siglufirði 16.5. 1968 en
ólst upp inni í Sundum í
Reykjavík. Auk þess var
hún í sveit á sumrin, á
Grund í Eyjafirði, hjá föðurfólki sínu,
og fór einnig til Siglufjarðar, til móð-
urfólks síns.
Pálína var allan sinn grunnskóla-
aldur í Langholtsskóla 1974-84,
stundaði síðan nám við Mennta-
skólann við Sund og lauk þaðan stúd-
entsprófi 1988. Þá æfði hún ballett við
Ballettskóla Þjóðleikhússins frá níu
ára aldri og tók þátt í mörgum upp-
færslum á vegum leikhússins og í
söngleikjum hjá Leikfélagi Reykja-
víkur.
Pálína stundaði nám í heimspeki og
bókmenntum við HÍ, hélt síðan til
Lyon í Frakklandi í listdansnám, lauk
Post graduate í nútímadansi og kó-
reógrafíu 1991, við Conservatoire
National Superieure de Musique et
de la Dance í Lyon, útskrifaðist sem
leikari frá Leiklistarskóla Íslands
1995, lauk Diplóma í leiklistarkennslu
frá Listaháskóla Íslands 2009 og
meistaragráðu í leikstjórn frá Col-
umbia-háskólanum í NY 2017.
Pálína var leikari frá 1995 og hefur
verið leiklistarkennari og leikstjóri
frá 2009. Auk þess kom Pálína að
Pálína Jónsdóttir leikstjóri – 50 ára
Skálað í vinahópi á góðri stund Talið frá vinstri: Ólöf Ólafsdóttir, Ugla Hauksdóttir, dóttir afmælisbarnsins,
Aimee Mullins, afmælisbarnið sjálft, Eiríkur Guðmundsson og loks Ruppert Friend.
Hugfangin af starfi sínu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glæsikona á besta aldri Pálína Jónsdóttir, leikstjóri og leiklistarfræðingur.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK14.700
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK27.400
Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur.
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bæklingurinn
okkar fyrir 2018 er
kominn út. Í honum
finnur þú fullt af
tilboðum og
verðdæmum. Hægt
er að nálgast hann á
www.smyrilline.is
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
Bjarni Viðar Þor-steinsson, mat-reiðslumaður á
Sjávargrillinu, á 30 ára af-
mæli í dag. Hann hefur
unnið þar frá 2011 með
einni pásu.
„Ég fór í vinnu með
þægilegri vinnutíma árið
2014 þegar börnin voru
mjög lítil og þurftu meiri
athygli. Ég fór að vinna
hjá heildsölufyrirtækinu
Garra en það flytur inn
mat og ég hélt mér því í
matartengdu. Það gerði
fullt fyrir mig að vinna
þar og maður áttaði sig á
hlutum sem maður gerði
ekki áður, en planið var
alltaf að snúa til baka.“
Sjávargrillið er á horni
Skólavörðustígs og Óðins-
götu. „Við leggjum
áherslu á sjávartengdan
mat. Við erum líka með ís-
lenskt kjötmeti en það er í
minni kantinum.“
Bjarna finnst mjög
skemmtilegt að vinna með fisk, en er sjálfur alæta á mat. „Mér
finnst rosa gott að fá mér grillað svín, það er algjört sælgæti. Við
erum ekki með það hjá okkur á Sjávargrillinu en við erum með
svínasíðu.
Það kemst svo lítið að annað en vinnan,“ segir Bjarni spurður um
áhugamál. „Ég hef gaman af ferðalögum og við fjölskyldan förum
mikið út í sveit þar sem móðursystir konunnar minnar býr, á Spóa-
stöðum í Biskupstungum, og þar erum við að leika okkur að rækta
matvæli, gúrkur, kál og kartöflur meðal annars. Það er líka gaman
fyrir börnin að fylgjast með þessu vaxa og eins að kynnast dýrunum
þar.“
Kona Bjarna er Dagný Vermundsdóttir, nemi í trésmíði, og börn
þeirra Þórdís Lilja, f. 2010, Matthildur Rós, f. 2013, og Sara Sóley, f.
2014.
„Við hjónakornin ákváðum að skella okkur út að borða tvö ein í
tilefni dagsins. Við ætlum í Matarkjallarann í Aðalstrætinu. Þar er
geggjaður matur og ennþá betri kokteilar. Það verður að skoða um-
hverfið í kringum sig.“
Grillað svín er
algjört sælgæti
Bjarni Viðar Þorsteinsson er þrítugur í dag
Matreiðslumaðurinn Bjarni Viðar
Þorsteinsson vinnur á Sjávargrillinu.
Akureyri Lísa Lind
Vignisdóttir fæddist 23.
júní 2017 kl. 20.50 á
Akureyri. Hún var 4.208
g að þyngd og 51 cm að
lengd. Foreldrar hennar
eru Vignir Már Vignisson
og María Björg
Ásmundsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is