Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mundu að mannorðið er meira virði
en efnahagslegur ávinningur. Hlustaðu eftir
vísbendingum í líkamanum og farðu til
læknis ef eitthvað er að.
20. apríl - 20. maí
Naut Eirðarleysi er ekki endilega merki um
að þú þarfnist breytinga. Áttu einhverju
ólokið sem er að trufla þig?
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú verður að létta einhverjum
verkefnum af þér, ef ekki á illa að fara. Þú
verður fyrir barðinu á reiðum við-
skiptavinum. Láttu það sem vind um eyru
þjóta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það mun skila þér góðum árangri að
vinna með nágrönnum í dag. Reyndu að
sýna þolinmæði því við vinnum ekki öll á
sama hraða.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þér sé illa við að vera í sviðsljós-
inu, koma þær stundir í þínu starfi að þú
verður að ganga fram fyrir skjöldu. Fólk sem
ýtir undir vellíðan þína er uppáhalds fé-
lagsskapurinn þinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Lífið er fullt af möguleikum, bæði
spennandi og ógnvekjandi. Fáðu útrás fyrir
listamanninn í þér ef þú mögulega getur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Lífið er ævintýri, kúnstin er bara að
kunna að lifa því með réttu hugarfari. Vertu
þolinmóð/ur og leggðu álitamál til hliðar þar
til niðurstaða liggur fyrir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert kærleiksrík/ur og hefur
svo mikið að gefa að jafnvel ókunnugir fá að
njóta þess. Láttu af gagnrýnu hugarfari og
að dæma aðra of fljótt.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Afþreying hefur verið þér efst í
huga á síðustu vikum. Þú átt skilið að gera
þér glaðan dag. Félagslífið er fjörugt og það
líkar þér vel.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú er full/ur af sköpunarþrá, og
það besta er að hugmyndir þínar eru bráð-
snjallar og auk þess hagnýtar. Varastu að
líta á ástvini þína sem sjálfsagðan hlut.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ólík öfl togast á hið innra með
þér og þú veist ekki í hvern fótinn þú átt að
stíga. Reyndu að koma í veg fyrir að ung-
viðið fari sér að voða í umferðinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Smávegis hugulsemi er það sem
færir öðrum hamingju og um leið ertu í
rauninni að gleðja sjálfa/n þig. Fólk sem
kallar fram það besta í þér á skilið meira af
tíma þínum.
Enski boltinn er gullnáma. Þarþrútna buddur og veski tútna út.
Efnahagssveiflur hafa þar engin
áhrif. Allt er upp á við og hefur verið
frá því enska úrvalsdeildin tók á sig
núverandi mynd 1992. Sérstaða
ensku deildarinnar er alger og mun-
ar þar mest um sjónvarpsréttinn. Á
leiktímabilinu 2016/17 fengu liðin 20
í deildinni 2,75 milljarða evra (337,5
milljarða króna) í tekjur, hálfum
milljarði evra meira en leiktímabilið
á undan. Chelsea, sem varð meistari
í fyrra, fékk 173 milljónir evra í sjón-
varpsréttargreiðslur. Fallliðið Sun-
derland fékk einnig væna summu,
alls 107 milljónir evra, um 30 millj-
ónum evra meira en Bayern
München fyrir sýningarréttinn á
leikjum liðsins í þýsku deildinni.
x x x
Á mánudag kom út á þýsku ogensku bókin Football Leaks þar
sem fjallað er um peninga og bak-
tjaldamakk í fótboltanum. Bókin
byggist á umfangsmiklum gagna-
leka þar sem er að finna fróðlega
leikmannasamninga. Verð og laun
leikmanna hafa hækkað gríðarlega
og er það ekki síst rakið til þess að
næstum öll stóru ensku félögin eru í
eigu milljarðamæringa. Eitt dæmi
er hollenski varnarmaðurinn Virgil
van Dijk sem tilkynnt var 1. janúar
að hefði gengið til liðs við Liverpool.
Hann var keyptur fyrir 70 milljónir
punda (9,7 milljarða króna). Fjórar
milljónir punda (557 milljónir króna)
bætast við nái hann að leika 150 leiki
fyrir liðið á næstu fjórum árum og
verði liðið að staðaldri meðal efstu
fjögurra liðanna í deildinni. Van Dijk
fær á viku (að frátöldum árangurs-
tengdum greiðslum) 124.058 pund
(17,3 milljónir króna). Það er meira
en Egyptinn Mohamed Salah, liðs-
félagi hans og markakóngur, fær í
grunnlaun. Vikulaun Salah eru
123.030 pund (17,1 milljón króna).
x x x
Salah fær aukalega 2,5 milljónirpunda nái hann að skora eða
leggja upp 35 mörk eða meira á leik-
tímabili. Því náði hann í janúar.
Varnarmaðurinn Van Dijk fær hins
vegar 750.000 punda bónus nái liðið
að halda hreinu í minnst 22 leikjum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
En ég mæni í von til Drottins, bíð eftir
Guði hjálpræðis míns. Guð minn
mun heyra til mín.
(Míka 7.7)
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Vísnakeppni Safnahússins hefurverið fastur liður Sæluvikunnar
á Sauðárkróki frá árinu 1976 og nýt-
ur enn vinsælda. Úrslit keppninnar í
ár voru kynnt á setningunni og voru
veitt verðlaun annars vegar fyrir
besta botninn og hins vegar fyrir
bestu vísuna. Besta botninn að þessu
sinni átti Ingólfur Ómar Ármannsson
og bestu vísuna, eða öllu heldur vís-
urnar átti Jón Gissurarson.
Botn Ingólfs Ómars er á þessa leið:
Vetur hopar, vorið nær
völdum næstu daga.
Viður brumar, völlur grær
vermir sólin haga.
Besta vísan, eða vísurnar mynd-
uðu skemmtilega lýsingu á Þórði
kakala.
Girtur sverði gengi hann um stræti,
gullinn hjálmur þar á höfði sæti.
Kakali sér kynni ekki læti,
karlinn myndi dansa ef hann gæti.
Inn til landsins fögru fjallasala
færi hann með okkur til að smala.
Kátur myndi konur einnig fala,
kyssa heimasætur fram til dala.
Karlinn yrði eðal-Skagfirðingur,
ætíð væri þar sem Heimir syngur
Vart hann myndi hræðast glasa glingur,
gjarna léki þá við hvern sinn fingur.
Fyrir tveim vikum birti Einar
K. Guðfinnsson á fésbókarsíðu
sinni mynd, sem hann tók frá
heimili sínu í Bolungarvík og þar
sem myndefnið var Ísafjarðar-
djúp. Þó sumarið sé komið, sáust
ekki handa skil og ekki grillti í
Djúpið. Myndinni fylgdi þessi
texti: „Alltaf er jafn fallegt að
horfa inn Djúpið. Sérstaklega
svona að sumarlagi.“
Gunnar Rögnvaldsson á Löngu-
mýri í Skagafirði sendi honum um
hæl:
Aftur birtir inn við Djúp,
ykkar hverfur mæði.
Þó sumarmorgun mjallarhjúp
máttarvöldin klæði.
Og svo er það Eurovision. „Höld-
um höfði!“ segir Ármann Þor-
grímsson á leir:
Okkur vonin enn þá brást,
ungir draumar þarna frusu
en upplýsingar aldrei fást
um hvað margir símar kusu.
Oft þó fiskist illa á sjó
áfram munum leita fanga
Heiðrum Ara, höldum ró,
hann mun seinna aftur ganga.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísur úr Skagafirði
og Eurovision
„ÓKEI – EN ÉG ÆTLA AÐ HALDA NAFNINU
MÍNU, SKJÁNAFNINU MÍNU, VIÐURNEFNINU
MÍNU OG NOTENDANAFNINU MÍNU.“
„HVAR HEFURÐU VERIÐ? ÞÚ VARST Í
SÍÐASTA SÆTI!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann segir það
sem þú veist nú þegar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG SÉ AÐ ÞÚ HEFUR
EIGNAST NÝJA VINI
ÞÚ TÝNIR ALDREI NEITT UPP
EFTIR ÞIG!!
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ
HEPPNI EDDI SKILUR
EKKI NÆRBUXURNAR
SÍNAR EFTIR Á
GÓLFINU!
AUÐVITAÐ EKKI! ÞIÐ MYNDUÐ
ALDREI BJÓÐA MÉR AFTUR Í
HEIMSÓKN!
‘EG ELSKA ÞIG!