Morgunblaðið - 16.05.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ný plata tónlistarmannsins Indriða,
ding ding, kemur út á föstudaginn
kemur. Fyrsta sólóplata hans, Mak-
ríll, kom út fyrir tveimur árum og
hlaut verðskuldað lof. Indriði hefur
komið víða við í tónlistarlífinu á und-
anförnum árum, meðal annars með
hávaðarokksveitinni Muck auk þess
sem hann er menntaður myndlistar-
maður frá Listaháskóla Íslands. Þá
hefur hann tekið þátt í hinum ýmsu
gjörningum, til að mynda gjörningi
Ragnars Kjartanssonar í Hafnar-
húsinu í fyrra.
Tónlist Indriða er áhugaverð;
þægileg áheyrnar og frumleg í senn,
og í henni bæði blíða og bit, ekki síst
þegar hraðinn er
keyrður upp.
Vann hann lengi
að þessari nýju
plötu, ding ding?
„Ég byrjaði að
semja sum af
þessum lögum
um það leyti þegar Makríll kom út
en haustið 2016 fann ég að það var
kominn tími til að gera nýja plötu.
Ég fór í gegnum þau lög sem ég átti
og fann til grind sem ég samdi rest-
ina út frá. Þannig fannst mér frekar
auðvelt að finna út hvað vantaði og
hver stefnan ætti að vera,“ segir
hann. Og það er mismunandi hvort
lög fæðast fyrst eða textar.
„Sum lögin og textarnir komu
strax til mín, saman, það eru þau
sem eru mestu dægurlögin, hefð-
bundnust. Svo eru önnur eins og það
sem ég samdi fyrra erindið við
svona þremur árum áður en seinna
erindið varð til.“
Á fyrri sólóplötunni lék Indriði
mikið til á öll hljóðfæri sjálfur, auk
þess að syngja og taka hana upp
sjálfur. „Alfreð Finnbogason tók
þessa nýju plötu upp „læf“ og við
Albert og Tumi Árnason spiluðum
og sungum þá grunnana inn. Svo
bættust fleiri hljóðfæraleikarar við,
eins og Ingibjörg Elsa Turchi á
bassa og Magnús Trygvason Elias-
sen og Gylfi Sigurðsson spiluðu í
nokkrum lögum hvor á trommur.
Hekla Magnúsdóttir spilar á þeram-
ín.“
Indriði segir skemmtilegra að
leika frá upphafi með öðrum hljóð-
færaleikurum heldur en að vera að
spila á allt sjálfur. „Og næst langar
mig að semja plötu frá grunni með
hljómsveit. Það er alltaf gaman, þó
ég leyfi mér líka að vera smá ein-
ræðisherra … Þar er mikilvægast
finnst mér að ráða því alveg með
hverjum ég spila, með fólki sem ég
hef trú á og gef lausan tauminn, þótt
hugmyndirnar séu yfirleitt mínar.“
Þegar Indriði er spurður að því
hvort myndlistarmenntunin nýtist
honum í tónlistinni þá hugsar hann
sig um og segist svo vona að svo sé.
En hann sé þó ekki viss um hvernig.
„Ég er inni á milli verkefna að mála
og teikna en myndlistin og tónlistin
tengist ekki beint og það er erfitt að
vinna í hvoru tveggja á sama tíma.“
En svo hefur Indriði talsvert unnið
með öðrum listamönnum, eins og í
gjörningi Ragnars Kjartanssonar í
fyrra þar sem hann lék á kassagítar
dögum saman með fleiri gítarleik-
urum. „Ég fíla það mjög vel og hef
oft tekið þátt í slíkum verkefnum, til
dæmis með Styrmi Guðmundssyni
gjörningalistamanni. Og ég hef ver-
ið fenginn í að gera tónlist við alls-
kyns myndlistar- og gjörningaverk-
efni. Það er gaman. Ég held ég sé
hentugur starfsmaður í slíku.“
Indriði verður með útgáfutónleika
6. júní á Húrra og hefur hann sett
saman band fyrir þá, með sumum
þeim sem leika á plötunni.
„Svo er ég að flytja aftur til Berl-
ínar og ég vinn líka með hljómsveit
þar – ég er kominn með band í báð-
um löndum,“ segir hann og hlær.
„Það er búið að bóka tónleika í Berl-
ín og svo er útgefandi plötunar, Fig-
ureeigt, að setja saman tónleika-
ferðalag um nokkur Evrópulönd
sem stendur til að fara í október og
mögulega endar með tónleikum hér
á Airwaves.“
Morgunblaðið/Hari
Tónlistarmaðurinn Indriði heldur útgáfutónleika á Húrra 6. júní og flytur
síðan til Berlínar þar sem frekari spilamennska með hljómsveit hans bíður.
„Leyfi mér að vera
smá einræðisherra“
Ný plata Indriða, ding ding, kemur út á föstudag
Í kvöld klukkan 20 heldur kvennakórinn Vox feminae tónleikana Ave
Maria í Háteigskirkju í Reykjavík. Á efnisskrá eru Maríubænir og ýmsir
sálmar auk þess sem kórinn mun flytja kafla úr Missa. Op. 187 eftir Josef
G. Rheinberger. Stjórnandi kórsins er Margrét J. Pálmadóttir og Guðný
Einarsdóttir leikur á orgel. Vox feminae er 25 ára um þessar mundir og
eru tónleikarnir liður í dagskrá afmælisárs. Miðar eru seldir á tix.is, hjá
kórkonum og við inngang og kosta 2.500 kr.
Það var árið 1993 sem Margrét J. Pálmadóttir stofnaði Vox feminae, en
frá upphafi hefur trúarleg tónlist ásamt íslenskum þjóðlögum og söng-
lögum einkennt lagaval kórsins og dagskrána á öllum tónleikum hans.
Kórinn hefur einnig lagt rækt við samtímatónlist eftir íslensk tónskáld. Að
undanförnu hefur 25 ára afmæli kórsins verið minnst með ýmsu móti og sú
dagskrá heldur áfram allt þetta ár. Þann 21. júlí í sumar heldur kórinn tón-
leika á Húsavík undir heitinu Hásláttur og í haust er margt spennandi á
döfinni.
Vox feminae í Háteigskirkju í kvöld
Söngur Vox Femine æfa í Háteigskirkju og þar verða tónleikarnir í kvöld. Þegar flogið er yfir Græn-land virðist ríkja ró og frið-ur á ísi klæddu landinu enþegar skyggnst er undir
yfirborðið kemur stundum annað í
ljós. Sú er raunin við lestur spennu-
sögunnar Flúruðu konunnar, þar
sem spillingin
nær hæstu hæð-
um og engum má
treysta.
Samfélagið í
Nuuk er mið-
punktur frásagn-
arinnar. Lík-
fundur á Græn-
landsjökli 2014
verður til þess að
óupplýst morð frá
1973 fá nýtt líf. Eftir því sem danski
blaðamaðurinn Matthew Cave gref-
ur dýpra þeim mun meira þrengist
hættuhringurinn að honum, því
sannleikurinn kemur ekki öllum vel
og allra síst má falla kusk á hvít-
flibbann.
Sagan, eins óhugguleg og hún er,
er virkilega vel skrifuð og raunveru-
leg. Valdabaráttan og klifrið upp
metorðastigann á sér engin takmörk
og barnaníðið ristir í gegnum merg
og bein. Þegar vel er að gáð er víða
stutt í villimanninn, þegar kynferðis-
legt ofbeldi er annarsvegar, og oft
ekki skýr mörk á milli villidýra og
þeirra sem þó teljast til mannkyns.
Það skýtur þess vegna skökku við
þegar Tupaarnaq Siegstad er lýst
sem villidýri, þó hún hafi verið í
haldi í dönsku fangelsi í mörg ár.
Helstu persónurnar eru eftir-
minnilegar. Matthew Cave vill kom-
ast að sannleikanum, hvað sem það
kostar, og Tupaarnaq Siegstad
minnir einna helst á Lisbeth Saland-
er í Milleniumþríleik Stiegs Lars-
sons. Það getur tekið á að leita rétt-
ar síns og þar sem óvissa ríkir um
fjölskyldubönd verður allt einhvern
veginn vonlaust og óyfirstíganlegt.
Nema hjá töffurum.
Nýlega hafa verið gefnar út í ís-
lenskri þýðingu tvær bækur sem
varpa ljósi á mannlíf á Grænlandi,
annarsvegar skáldævisagan Kalak
eftir Kim Leine og hins vegar
spennusagan Flúraða konan eftir
Mads Peder Nordbo. Þær eiga það
sameiginlegt að vera upplýsandi,
hvor á sinn hátt, um næstu nágranna
Íslands og þá skuggalegu veröld,
sem margir virðast enn búa þar við.
Höfundurinn Mads Peder Nordbo varpar ljósi á mannlíf á Grænlandi.
Engum treyst í
spennu og spillingu
Spennusaga
Flúraða konan bbbbn
Eftir Mads Peder Nordbo.
Ingunn Snædal þýddi.
Veröld 2018. Kilja. 357 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s
Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s
Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s
Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s
Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Fim 17/5 kl. 20:00 31. s Lau 19/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 35. s
Fös 18/5 kl. 20:00 32. s Fös 25/5 kl. 20:00 34. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 16/5 kl. 20:30 aukas. Lau 19/5 kl. 20:30 aukas. Lau 26/5 kl. 20:30 aukas.
Fim 17/5 kl. 20:30 23. s Fim 24/5 kl. 20:30 aukas. Fim 31/5 kl. 20:30 aukas.
Fös 18/5 kl. 20:30 24. s Fös 25/5 kl. 20:30 aukas.
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Hin lánsömu (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 20:00 4. s
Kraftmikil og kómísk saga 8 systkina sem lifa velmegunarlífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn
Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 25/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 31/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 26/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Aðfaranótt (Kassinn)
Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn
Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn
Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/5 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200