Morgunblaðið - 16.05.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
»Glatt var á hjalla þegar nýjasta mynd
Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð,
var heimsfrumsýnd í Cannes. Hún fjallar um
konu sem er tilbúin að fórna öllu fyrir móður
jörð og hálendi Íslands þar til munaðarlaus
stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar.
Kona fer í stríð heimsfrumsýnd á Critics‘ Week í Cannes við góðar viðtökur
Ljósmyndir/ Pierre Caudevelle/57e Semaine de la Critique
Stjarna Halldóra
Geirharðsdóttir
brá á leik á frum-
sýningardag. Kvik-
myndarýnar Gu-
ardian og Variety
hrósa frammistöðu
hennar í myndinni.
Gleði Leikstjórinn, aðalleikkonan
og hljómsveit kvikmyndarinnar
ásamt prúðbúnum söngdísum.
Töffarar Halldóra og
Benedikt tóku sig vel
út á rauða dreglinum.
Fagnaðarlæti Kvik-
mynd Benedikts Erlings-
sonar var vel fagnað að
frumsýningu lokinni í
Cannes um helgina.
Viðtökur nýjustu kvikmyndar
danska leikstjórans Lars Von
Trier, The House that Jack Built, á
kvikmyndahátíðinni í Cannes voru
vægast sagt misjafnar. Fréttaritari
Independent segir áhorfendur hafa
verið varaða við því fyrirfram að í
myndinni væru hryllilegar senur
en hún mun fjalla um fjöldamorð-
ingja sem hlutar fórnarlömb sín
sundur. Þrátt fyrir viðvörun er
sagt að yfir eitthundrað gestir hafi
gengið út af myndinni. „Þetta er
viðbjóður,“ hefur blaðamaðurinn
eftir konu sem gekk út og karl sem
horfði á myndina til enda líkti upp-
lifuninni við „tvo tíma í víti“. Engu
að síður fékk leikstjórinn von
Trier, sem áður hefur gert um-
deildar myndir eins og Nymphom-
aniac og Antichrist, standandi lófa-
tak í lokin
Margir gengu út af kvikmynd von Trier
Stjörnurnar Leikarar og leikstjóri: Sofie
Gråbøl, Bruno Ganz, Lars Von Trier, Matt
Dillon og Siobhan Fallon Hogan.
Kanadíska leikkonan Margot Kidd-
er, sem öðlaðist frægð í hlutverki
Lois Lane, kærustu Súperman, í
kvikmyndum á áttunda og níunda
áratugnum, er látin 69 ára að aldri.
Kidder lék í um 130 kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum frá því seint á
sjöunda áratugnum en sló fyrst í
gegn þegar hún lék á móti Christ-
opher Reeve í Superman árið 1978
og var myndin sú næst vinsælasta
það árið, á eftir Grease. Í kjölfarið
fylgdu þrjár kvikmyndir til um
Súperman, á næstu níu árum.
Kidder var einnig í aðalhlutverki
í hryllingsmyndinni The Amityville
Horror (1979) sem einnig sló í gegn
og meðal annarra þekkta mynda
sem hún lék í má nefna The Great
Waldo Pepper (1975) með Robert
Redford, The Reincarnation of Pet-
er Proud (1975) og Some Kind of
Hero (1982) þar sem hún lék á móti
Richard Pryor. Seinna varð glíma
Kidder við geðhvarfasýki þekkt en
hún fjallaði oft um veikindi sín á op-
inberum vettvangi.
Margot Kidder, sem lék Lois Lane, látin
Vinsæl Árið 2005 áritaði Kidder myndir
af þeim Súperman á ofurhetjuhátíð.
)553 1620
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Veisluþjónusta
Lauga-ás
Afmæli
Árshátíð
Gifting
Ferming
Hvataferðir
Kvikmyndir
Íþróttafélög
Við tökum að okkur að skipuleggja
smáar sem stórar veislur.
Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta
gæðaflokki og getur komið hvert sem
er á landinu og sett upp gæða veislu.
Er veisla framundan hjá þér?
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð.
ICQC 2018-20