Morgunblaðið - 16.05.2018, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Tíu börn fjarlægð af heimili sínu
2. Þakíbúð á rúmar 400 milljónir
3. Pabbi Meghan hættur við að …
4. Bömmer að íbúðin sé komin á sölu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Jónsson & More á
Múlanum í kvöld
Tríóið Jónsson & More kemur fram
hjá Jazzklúbbi Múlans á Björtuloftum
Hörpu í kvöld kl. 21 og kynnir áhorf-
endum nýja tónlist sem ætlunin er að
hljóðrita í haust. Gestaleikari er
Haukur Gröndal á saxófón og klarin-
ett. Tríóð skipa Ólafur Jónsson á
saxófón, Þorgrímur Jónsson á bassa
og Scott McLemore á trommur.
Eftir að hafa
leikið víða um
lönd síðustu
misserin kemur
hljómsveitin
Mammút fram á
tónleikum í
Bæjarbíói í
Hafnarfirði annað
kvöld, fimmtudag,
kl. 20.30. Nýja plata sveitarinnar,
Kinder Versions, var valin Rokkplata
ársins í fyrra og leikur sveitin lög af
henni og önnur eldri.
Mammút treður upp í
Bæjarbíói á morgun
Teitur Magnússon og Mads Mouritz
Gjellerod leika saman og hvor í sínu
lagi á tónleikum á Vínyl við Hverfis-
götu í kvöld kl. 20. Við
sama tækifæri verður
frumsýnt nýtt mynd-
band við lag Teits,
Hverra manna?
sem leik-
stýrt er
af The Ice-
landic Love
Corporation.
Tónleikar og nýtt
myndband á Vínyl
Á fimmtudag Gengur í suðaustan 10-15 m/s með talsverðri rign-
ingu, en hægari og úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 7 til 15 stig.
Á föstudag Suðvestan 5-13 m/s og dálítil él eða skúrir, en þurrt
og bjart norðan- og austanlands. Hiti 3 til 10 stig að deginum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 og skúrir, en þurrt að kalla
austantil. Hiti 3 til 9 stig, en heldur hlýrra á morgun.
VEÐUR
Ekki skýrðist í gærkvöldi
hvort það verður FH eða
ÍBV sem hefur Íslandsbik-
arinn í handknattleik karla
í vörslu sinni næsta árið.
Eftir tap í Vestmannaeyjum
á laugardaginn bitu FH-
ingar frá sér á heimavelli í
gærkvöldi. Þeir unnu með
þriggja marka mun, 28:25,
og jöfnuðu þar með metin
í rimmu liðanna. Þriðji leik-
urinn er í Eyjum annað
kvöld. »1
FH-ingar jöfnuðu
metin gegn ÍBV
Kári Árnason, einn af lykilmönnum ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu
undanfarin ár, er kominn aftur heim
til Íslands eftir fjórtán ár sem at-
vinnumaður í knattspyrnu erlendis.
Hann er genginn til liðs við uppeldis-
félag sitt Víking en byrjar þó ekki að
spila með liðinu
fyrr en eftir
heimsmeist-
arakeppnina í
Rússlandi í
sumar. »1
Kári aftur í Víking eftir
fjórtán ár erlendis
Breiðablik er áfram með fullt hús
stiga í Pepsi-deild kvenna í knatt-
spyrnu eftir 3:1 sigur í grannaslag
gegn HK/Víkingi í gærkvöld og er
jafnt Þór/KA á toppi deildarinnar.
Valur er í þriðja sæti eftir 3:0 sigur í
Grindavík og Stjarnan er í fjórða sæti
eftir mjög nauman sigur á Selfossi,
1:0. FH fékk sín fyrstu stig með því að
vinna KR, 2:1. »2-3
Breiðablik með fullt hús
stiga á toppnum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mikil ásókn er í orlofsferð hús-
mæðra í Suður-Þingeyjarsýslu í
haust og komast færri að en vilja.
„Hingað til hafa allir umsækjendur
komist með í auglýstar ferðir hjá
okkur en nú erum við í hálfgerðri
klemmu og þurfum að forgangs-
raða í ferðina,“ segir Inga Árna-
dóttir sem er á þriðja og síðasta ári
í orlofsnefndinni.
Innan Kvenfélagasambands Ís-
lands (KÍ) starfa 17 héraðssam-
bönd og í þeim starfa yfir 150
kvenfélög. KÍ skiptir landinu í or-
lofssvæði. Héraðssambönd KÍ
kjósa orlofsnefndir fyrir orlofs-
svæðin hver í sínu umdæmi og
nefndirnar skipuleggja orlofin.
Kvenfélagasamband Suður-
Þingeyinga er elsta kvenfélaga-
samband landsins, stofnað 7. júní
1905 á Ljósavatni, og í því starfa
385 konur í 12 félögum, samkvæmt
heimasíðu KÍ.
Rök fyrir afnámi sterk
Allar konur sem hafa haldið
heimili án launagreiðslu hafa rétt
til þess að fara í orlofsferðir hús-
mæðra og fá til þess styrk úr hús-
mæðraorlofssjóði. Húsmæðraorlof
var fyrst ríkisstyrkt 1958 þegar
sérstök fjárveiting var samþykkt
vegna orlofs húsmæðra frá barn-
mörgum heimilum. Lög um orlof
húsmæðra voru síðan lögfest árið
1960 og ný heildarlög sett 1972.
Frumvarp um afnám þeirra laga
var fyrst lagt fram á Alþingi 2009
og reglulega síðan.
Samkvæmt lögunum er sveitar-
félögum nú skylt að greiða 110,91
kr. á hvern íbúa í orlofssjóð hús-
mæðra. Í auglýsingu um fyrirhug-
aða ferð húsmæðra í Suður-
Þingeyjarsýslu segir að stefnt sé
„að orlofsferð á slóðir hins fúla
Martins læknis á Cornwall á Eng-
landi dagana 4. til 8. október“ og
þetta sé „ferð sem engin kona í
Suður-Þingeyjarsýslu ætti að láta
fram hjá sér fara“, en bindandi
skráningu lauk 10. maí. Inga segir
að fjöldinn takmarkist við rými í
rútu og gistingu og því komist að-
eins 46 konur í ferðina. 15 konur
séu því á biðlista. „Við erum greini-
lega mjög áhugasamar um doktor
Martin,“ segir Inga, en gerð var
sjónvarpsþáttaröð um manninn og
var hún sýnd í íslenska ríkissjón-
varpinu.
Í fyrra var boðið upp á ferð í
Borgarfjörð og gistingu í Reykholti
en þá varð messufall. „Aðeins átta
konur skráðu sig og því var ferðin
felld niður, en árið þar á undan fór-
um við til Berlínar og þá fórum við
með um 15 konur,“ segir Inga.
Yfirleitt eru eldri konur í meiri-
hluta í þessum orlofsferðum. Inga
segir að gjarnan séu þetta konur
sem hafi haft minni tækifæri en
gengur og gerist til þess að ferðast
og það sé af hinu góða að þessi
möguleiki sé fyrir hendi. Oft treysti
þær sér ekki til þess að ferðast ein-
ar og þær gangi að ákveðnu öryggi
sem vísu í þessum ferðum.
Inga bendir á að tilgangur laga
um orlof húsmæðra hafi verið að
gera konum, sem annars áttu ekki
heimangengt, kleift að komast í frí.
Rökin fyrir afnámi þeirra séu hins-
vegar sterk, því þau gangi þvert á
jafnréttislög. „En þau eru enn í
gildi og á meðan svo er höldum
við áfram að bjóða upp á þessar
ferðir.“
Áhugasamar um doktor Martin
Mikil ásókn í orlofsferð húsmæðra í S-Þingeyjarsýslu og 15 konur á biðlista
Ljósmynd/Torfhildur G. Sigurðardóttir
Frá orlofsferð í Berlín 2016 Frá vinstri: Bergþóra Eysteinsdóttir, Inga Árnadóttir, Guðný Þorbergsdóttir og Linda Stefánsdóttir.