Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 11
Fjöldi klínískra kennara í ljósmóðurfræði hefur nú sagt starfi sínu lausu til að knýja á um bætt kjör. Það hefur áhrif víða. Í haust mæta ljós- mæðranemar í skólann og ég veit ekki hverjir eiga að kenna þeim í klínísku námi.F yrir nokkrum dögum sat ég ráðstefnu sem bar yfirskriftina ‘Normal Labour & Birth Re­ search Conference’ þar sem fjallað var um rannsóknir í tengslum við eðlilegt ferli meðgöngu, fæðingar og fyrstu dagana eftir fæðingu. Ráð­ stefnan var nú haldin í 13. sinn en hún er haldin til skiptis á Englandi og í einhverju öðru landi þar sem sérstaklega þykir þurfa að vekja athygli á heilbrigðisþjónustu við verðandi mæður og nýbura. Í ár var ráðstefnan í Michigan í USA. Í umfjöllun um þjónustu við barnshafandi konur og útkomu fæðinga er stuðst við samhæfða skráningu á nokkrum þáttum til að auðvelda samanburð milli landa. Árið 2008 voru Bandaríkin þann­ ig í 30. sæti þegar ungbarnadauði (e. infant mortality) er skoðaður. Samhengi er milli nýbura­ og ung­ barnadauða og fyrirburafæðinga en tíðni fyrirburafæðinga í Banda­ ríkjunum er töluvert hærri en í mörgum löndum Evrópu. Árið 2010 var tíðni keisaraskurða í USA rúm 30%. Í Bandaríkjunum sinna ljós­ mæður tæplega 11% fæðinga, þær hafa starfsleyfi í flestum fylkjum en kerfið er flókið og ákvarðanir um hvernig þjónustan skuli veitt og hver skuli veita hana byggir ekki á bestu þekkingu á hverjum tíma. Á síðustu fjórum árum hafa t.d. birst nokkrar vísindagreinar um ljósmæðrastarf í hinu virta tímariti Lancet, þar sem áhersla er á aðkomu ljósmæðra til að byggja upp hágæða heilbrigðisþjónustu fyrir verðandi mæður og nýbura. Í greinunum er jafnframt vakin athygli á að of miklum fjármunum sé varið í lítinn hluta þjónustu við verðandi mæður og nýbura, þ.e. í bráðatilvik og flókin viðfangsefni, á kostnað þess að byggja frekar upp góða og jafnari þjónustu við allar verðandi mæður. Þannig er mögulega hægt að fyrir­ byggja ýmis vandamál s.s. fjölda fyrirburafæðinga og nýta fjármuni þá betur. Upphaf að góðri heilsu Mæðra­ og ungbarnadauði hér á landi er með því lægsta sem þekk­ ist. Á sama tíma eru færri keisara­ skurðir gerðir hér en í flestum öðrum löndum. Þannig sýna rann­ sóknir að miðað við önnur lönd er áhætta við meðgöngu og fæðingar lítil á Íslandi og mjög öruggt að fæð­ ast hér. Stöðugt bætist við ný þekk­ ing um mikilvægi þess að móðir og barn fái góða þjónustu á meðgöngu og fyrstu vikum eftir fæðingu en þessi tími er upphaf að góðri heilsu til lengri tíma. Þó árangur í heilbrigðisþjónustu sé vissulega háður flóknu samspili félagslegra, efnahagslegra og póli­ tískra þátta, þá er hægt að færa rök fyrir því að greitt aðgengi að grunn­ heilbrigðisþjónustu sem veitt er af viðeigandi fagfólki skilar sér í bættu heilsufari þjóðar. Á Íslandi er löng hefð fyrir starfi ljósmæðra en á næsta ári fagnar Ljósmæðrafélag Íslands 100 ára afmæli. Starfssvið ljósmæðra hefur tekið breytingum til samræmis við þekkingu og kröfur á hverjum tíma. Ljósmæður sinna verðandi móður á meðgöngu, veita fæðingarhjálp og þjónustu fyrstu vikuna eftir fæðingu. Þær vinna innan sjúkra­ húsa, á heilsugæslustöðvum, á fæðingarstofum og í heimahúsum. Ljósmæður sinna ráðgjöf um kyn­ heilbrigði, brjóstagjafarráðgjöf og ráðgjöf eftir erfiða fæðingarreynslu. Þær sjá jafnframt um flestar reglu­ bundnar ómskoðanir sem gerðar eru í tengslum við meðgöngu hér á landi og vinna við krabbameinsleit svo nokkuð sé nefnt. Hverjir eiga að kenna? Í haust munu tíu nemendur hefja nám við Námsbraut í ljósmóður­ fræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Þessir nemendur eru teknir inn í ljósmóðurnámið að undangengnu forvali þar sem fleiri sækja um en komast inn. Við höfum hingað til búið við þann munað að starfssviðið þykir eftirsótt og því getum við valið úr umsækjendum. Nám í ljósmóðurfræði er tveggja ára nám eftir hjúkrunarfræði og í ljósmóðurnámi er u.þ.b. 60% tím­ ans þjálfun á klínískum vettvangi. Til að mennta hæfar ljósmæður þurfum við því ljósmæður í klínísku starfi. Þær ljósmæður hafa margar hverjar langa reynslu að baki en þær eru kjölfestan í því að okkur takist að viðhalda þeim gæðum sem við viljum hafa á okkar námi til að geta skilað hæfum ljósmæðrum til starfa. Nú blasir það við að í jafn fámennri stétt þá skiptir hver einstaklingur máli. Mikið hefur verið lagt í til að við­ halda góðri menntun heilbrigðis­ stétta hér á landi. Fjöldi klínískra kennara í ljósmóðurfræði hefur nú sagt starfi sínu lausu til að knýja á um bætt kjör. Það hefur áhrif víða. Í haust mæta ljósmæðranemar í skólann og ég veit ekki hverjir eiga að kenna þeim í klínísku námi. Heimildir: https://www.cdc.gov/ nchs/data/databriefs/db23.pdf h tt p : / /w w w.e u r o p e r i st at .co m / reports/european-perinatal-health- report-2010.html Kjaradeila íslenskra ljósmæðra: áskorun eða ógn? Helga Gottfreðsdóttir prófessor, for- maður náms- brautar í ljós- móðurfræði, Hjúkrunarfræði- deild Háskóla Íslands Octavia Limo G-Tec Sjálfskiptur Listaverð: 3.550.000 kr. Afsláttur: -360.000 kr. Verð frá: 3.190.000 kr. ŠKODA Superb Limo Ambition Listaverð: 5.060.000 kr. Afsláttur: -480.000 kr. Verð frá: 4.580.000 kr. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is Nú bjóðum við takmarkað magn valdra bíla frá ŠKODA á frábæru tilboðsverði. Stundum þarf maður ekki að hugsa sig tvisvar um – gríptu þetta einstaka tækifæri og náðu þér í nýjan ŠKODA á snilldarverði. Hlökkum til að sjá þig! 5 á ra á by rg ð fy lg ir f ól ks bí lu m H E K LU a ð up pf yl lt um á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d Šumarverð ŠKODA ŠKODA Á SNILLDARLEGU SUMARTILBOÐI! Kíktu á hekla.is/skodasu mar og sjáðu öll sumartilboðin ! S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 4 . j ú L í 2 0 1 8 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -D 9 4 8 2 0 5 0 -D 8 0 C 2 0 5 0 -D 6 D 0 2 0 5 0 -D 5 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.