Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 24
Þjóðfélagið í heild nýtur góðs af öflugri frumkvöðlastarf-semi,“ segir Sigurður Björns- son, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís. Undir sviðið heyrir Tækniþróunarsjóður en lögbundið hlutverk hans er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðurinn, sem er samkeppnis- sjóður, heyrir undir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og er heimilt að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vís- inda- og tækniráðs. Allar umsóknir eru metnar af fagráði sem leggur til ráðgefandi álit um styrkveitingu til stjórnar sjóðsins. Áhrifamat 2009-2013 „Tækniþróunarsjóður veitti styrki fyrir 4,1 milljarð á árunum 2009-2013 en fjárveitingar hafa aukist verulega á undanförnum árum og eru ríflega 9,5 milljarðar á árabilinu, 2014-2018. Nýlega kom út mat á áhrifum styrkja sem sjóðurinn veitti á þessu tímabili og niðurstöður þess gefa til kynna að sjóðurinn gegni mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnulífi og sé gjarnan forsendan fyrir því að þekking og drifkraftur sem býr í íslenskum frumkvöðlum nái að skila raunverulegum árangri, og ekki síður hvatning til starf- andi fyrirtækja til að takast á við ný og krefjandi verkefni,“ segir Sigurður en Rannsóknamiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti, sem er starfrækt innan Viðskipta- fræðistofnunar Háskóla Íslands, vann úttektina. „Þessi niðurstaða kemur í sjálfu sér ekkert á óvart. Það er almennt viðurkennt að stuðningur við frumkvöðla, einkum þá sem eru drifnir áfram af nýjum tækifærum sem þeir trúa á, er jafnframt drif- kraftur hagvaxtar,“ segir Sigurður. Þar kemur einnig fram að styrk- þegar telja Tækniþróunarsjóð skilvirkasta tækið sem íslenskum fyrirtækjum stendur til boða til að auka árangur í nýsköpun en mat af þessu tagi er gert á fimm ára fresti. „Það er mikilvægt að leggja mat á árangur sjóðsins, greina í hvað styrkir sjóðsins fara og hvaða áhrif þeir hafa. Samkvæmt þessu mati hefur sjóðurinn jákvæð áhrif á efnahagslífið og velta jókst hjá 75% styrkþega og aðgengi að nýjum mörkuðum innanlands og erlendis jókst í 70% tilfella,“ segir Sigurður. Í mati á nýsköpun og færni kemur fram að þekking og hæfni starfsfólks jókst í nær 100% tilfella og tengslanet efldist til muna, bæði innanlands og erlendis, að sögn Sigurðar. Hvað þjóðfélagsleg áhrif varðar sköpuðust ný störf í 70% tilfella og hlutdeild ungs fólks og kvenna jókst. „Styrk- irnir eru forsenda fyrir stofnun og vexti fyrir tækja. Án styrkja Tækniþróunarsjóðs hefðu 75% fyrirtækja ekki orðið að veruleika, samkvæmt þessu mati,“ bendir Sigurður á. Stefnumótun Tækniþróunarsjóður hefur tekið miklum breytingum frá stofnun hans 2004 þegar styrktarkerfið var einfalt og fjármagn takmarkað. Sjóðurinn óx þó jafnt og þétt, en með stefnu og aðgerðaáætlun Vís- inda- og tækniráðs, sem árið 2014 fól í sér verulega stækkun sjóðsins, var ráðist í stefnumótunarvinnu til að mæta fyrirhugaðri stækkun. Innleiðingu stefnumótunar- innar lauk haustið 2016 en hún er þó í stöðugri endurskoðun. Tryggja þarf hæfilega nýliðun, ýta undir tækniyfirfærslu verkefna úr háskólum yfir í atvinnulífið og alþjóðleg tengsl þarf að efla. „Að okkar mati hefur tekist vel til. Á hverju ári sækir fjöldi frum- kvöðla um styrk úr Tækniþróunar- sjóði en hægt er að sækja í mis- munandi styrktarflokka eftir eðli og stærð verkefna. Þrátt fyrir að efnahagslífið sé almennt jákvætt og atvinnustig hátt fjölgar umsækj- endum verulega. Á árunum 2015- 2017 fjölgaði umsóknum um 90%. Það er áhugavert fyrir þær sakir að í góðu efnahagslegu árferði er talið einfaldara að ráða sig til starfandi fyrirtækja í staðinn fyrir að fara út í áhættusama frumkvöðlastarf- semi en þetta sýnir hversu mikil gróska er í nýsköpun hér á landi. Þetta sýnir líka að sú stefnumótun sem sjóðurinn stóð fyrir hefur tekist vel og er að skila árangri,“ segir Sigurður en markmið stefnumótunarinnar eru áhersla á fjölbreytni, snarpari framkvæmd og árangur. Þessar breytingar hafa skilað sér í fleiri umsóknum frá breiðari hópum úr atvinnulífinu, en að sama skapi er orðið talsvert snúið að komast í gegn því innan við fimmtungur umsækjenda fær styrk. Atvinnulífið Öllum er frjálst að sækja um styrki í Tækniþróunarsjóð og hvert verk- efni er vegið og metið eftir gæðum og hvaða áhrif það getur haft á vöxt og viðgang viðkomandi fyrir- tækis, auk þróunar á efnahags- og atvinnulífið. „Ef við skoðum söguna frá 2004, en þá verður sjóðurinn til í núverandi mynd, kemur í ljós að verkefni sem eru tengd hagnýtingu lífríkis sjávar og ferskvatns eru einna fyrirferðarmest. Það kemur ekki á óvart því við búum þar að mikilli þekkingu og því eðlilegt að líftækni skipi stóran sess, ekki síst til verðmætasköpunar úr aukaafurðum sem ekki voru nýttar áður. Sem dæmi má nefna Matís, sem hefur verið öflugt við að þróa vörur úr lífríki hafsins, Zymetech sem framleiðir m.a. pensím úr fiskslógi og Kerecis sem framleiðir sárastoðefni úr fiskpróteinum,“ upplýsir Sigurður. Hann segir að ekki sé hægt að ætlast til að öll verkefni sem Tækniþróunarsjóður styrki vaxi og dafni upp í það að verða að stórum og öflugum fyrirtækjum. Sum þeirra komist aldrei upp úr vaxtar- verkjum og verði jafnvel ekki að Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5442 Almennt er viðurkennt að stuðningur við frumkvöðla, einkum þá sem eru drifnir áfram af nýjum tækifærum, er drifkraftur hagvaxtar, að sögn Sigurðar. Framhald af forsíðu ➛ Tækniþróunarsjóður hefur styrkt verkefni sem eru tengd hagnýtingu lífríkis sjávar og ferskvatns og einnig hátækniverkefni. Það kemur ekki á óvart því hérlendis búum við þar að mikilli þekkingu og því eðlilegt að líftækni skipi stóran sess, ekki síst til verðmætasköpunar úr aukaafurðum sem ekki voru nýttar áður. Á árunum 2014-2018 veitti Tækniþróunarsjóður 9,5 milljarða í styrki. Nýlega kom út mat á áhrifum styrkja sem sjóðurinn veitti og niðurstöður þess gefa til kynna að sjóðurinn gegni mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnulífi og sé gjarnan forsendan fyrir því að þekking og drif- kraftur sem býr í íslensk- um frumkvöðlum nái að skila raunverulegum árangri. Sigurður Björnsson 2 KYNNINGARBLAÐ 4 . j Ú L í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýSKöpuN Á íSLANdI 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -F 6 E 8 2 0 5 0 -F 5 A C 2 0 5 0 -F 4 7 0 2 0 5 0 -F 3 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.