Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 14
4 . j ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð sport Stjarna dagsins á HM 2018 HM 2018 í Rússlandi, 16-liða úrslit Svíþjóð - Sviss 1-0 1-0 Emil Forsberg (66.). Kólumbía - England 1-1 1-0 Harry Kane (58.)., 1-1 Yerry Mina (90+3.). England vann í vítakeppni, 4-3. Markvörðurinn Jordan Pickford vann hug og hjörtu Englendinga í gær þegar hann varði vítspyrnu Carlos Bacca. Reyndist það skilja liðin að því stuttu síðar innsiglaði Eric Dier sigurinn fyrir England. Varð Pickford með því fyrsti enski markvörðurinn sem ver vítaspyrnu í vítaspyrnukeppni í tuttugu ár. David Seaman varði þá vítaspyrnu frá Hernan Crespo en það skilaði litlu, England féll úr leik í vítaspyrnukeppninni. Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, treysti á Pickford frekar en Pope og Butland í að- draganda mótsins og er nú að upp- skera eftir því. Þrátt fyrir rólegan dag í gær var Pick- ford tilbúinn þegar á reyndi og átti meðal annars stór- brotna mark- vörslu undir lok leiksins. Er fótboltinn loksins á heimleið? Englendingar ærast úr kæti eftir að Eric Dier skoraði úr fimmtu vítaspyrnu Englands gegn Kólumbíu sem kom þeim áfram í 8-liða úrslitin. Fram að þessu hafði England aldrei unnið vítaspyrnukeppni á HM og voru komin 22 ár síðan landsliðið vann síðast leik eftir vítakeppni. NordicphotoS/gEtty Valur - Þór/KA 0-0 . hK/Vík. - ÍBV 1-0 1-0 Fatma Kara (56), Efri Þór/KA 20 Valur 19 Breiðablik 18 Stjarnan 13 ÍBV 8 Neðri Selfoss 8 HK/Víkingur 7 Grindavík 6 FH 3 KR 3 pepsi-deild kvenna FótBoltI Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson samdi í gær við Qarabag, meistarana í Aser­ baídsjan en hann kemur til liðsins frá Randers í Danmörku. Gekkst Hannes undir læknisskoð­ un í æfingabúðum liðsins í Austur­ ríki í gær en Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hannesar, staðfesti það í samtali við Fótbolti.net í gær. Hannes vakti athygli á heimsvísu þegar hann varði vítaspyrnu Lionels Messi í leik Íslands og Argentínu á dögunum. Greindu forráðamenn Randers frá því að þeir hefðu strax fundið fyrir áhuga á íslenska lands­ liðsmarkverðinum. Hefur hann verið á mála hjá Randers í tvö ár en hann hefur einn­ ig leikið með NEC Nijmeg en í Hol­ landi og Bodö/Glimt, Sandnes Ulf og Brann í Noregi á atvinnumannsferli sínum. Qarabag tekur þátt í undan­ keppni Meistaradeildar Evrópu í sumar en þeir komust alla leið í riðlakeppnina í fyrra þar sem þeir voru með Roma, Atletico Madrid og Chelsea í riðli. Hafa þeir einnig verið reglulegir gestir í riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem sýnir styrk nýja liðs Hannesar. – kpt Hannes Þór til AserbaídsjanGolF Tiger Woods, Jordan Spieth, Phil Mickelson, Rory McIlroy, Dustin Johnson og Haraldur Franklín Magnús, atvinnu­ kylfingur úr GR. Allir eiga þeir það sameiginlegt að þeir verða meðal þátt­ takenda á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fer fram á Carnoustie­vellinum í Skotlandi eftir rétt rúmar tvær vikur. Varð Haraldur Franklín í gær fyrsti íslenski karlkyns kylfingur­ inn sem kemst inn á eitt af risa­ mótunum fjórum í golfi þegar hann lenti í öðru sæti í úrtökumóti á The Prince’s vellinum í Kent. Ásamt honum komust Tom Lewis og Retief Goosen sem vann á sínum tíma Opna bandaríska meistaramótið tvívegis áfram úr úrtökumótinu. Lauk hann mót­ inu á tveimur höggum undir pari en leiknar voru 36 holur á einum degi og þrír kylfingar af 72 fengu þátt­ tökurétt á Opna breska meistaramótinu. Allir golfáhuga­ m e n n þ e k k j a þetta sögufræga mót, elsta golfmót heims, það þriðja á árinu af risamótunum og það stærsta af risamótunum fjórum. Er þetta í áttunda skiptið sem mótið fer fram á Carnoustie­ vellinum og í 147. skiptið sem þetta sögu­ fræga mót fer fram en það fór fyrst fram árið 1860. Allir þekktustu k yl f i n g a r h e i m s verða á staðnum, þar á meðal Tiger Woods, sem gerir atlögu að fjórða m e i s t a r a t i t l i sínum á Opna breska meistara­ mótinu. taugarnar þandar H a ra l du r va r m e ð a l f y r st u kylfinga í klúbb­ húsið og í efsta sæti en hann þurfti því að fylgjast með á meðan aðrir kylfingar luku l e i k . H a n n segir að það hafi verið afar tauga­ trekkjandi og hann hafi ákveðið að leggja sig þegar hann er spurður hvað hann hafi gert á meðan. „Ég hafði ekki taugar í að fylgjast með. Ég fór bara inn í búnings­ herbergi, stillti vekjaraklukku og ætlaði að reyna að sofa aðeins. Síðan vaknaði ég til að hita upp ef ég myndi enda í umspili en þess gerðist ekki þörf, “ segir Haraldur sem kvartar ekki undan veðrinu, það var mikill vindur sem hentaði íslenska kylfingnum vel. „Það var hávaðarok þarna. Það voru úrtökumót víðsvegar um Eng­ land og þar voru menn að koma í hús á mun betra skori. Ég hugsa að þau hefðu verið það hjá okkur líka ef veðrið hefði verið öðruvísi en veðrið hjálpaði mér í dag.“ Heilt yfir lék hann vel, fékk sex fugla og aðeins fjóra skolla á hringj­ unum tveimur. „Ég var að spila mjög vel og mér leið vel inni á vellinum. Ég reyndi að halda mig fjarri þeim sem sýna stöðuna á mótinu. Ég leit aðeins á þá þegar níu holur voru eftir og sá að ég þyrfti kannski aðeins að gefa í og það gekk upp.“ Lítið um fagnaðarlæti Haraldur segist hafa lítinn tíma til að fagna þessum árangri en hann var að fara í flug til Svíþjóðar þar sem hann leikur á Nordic League­ mótaröðinni um helgina. Er hann á öðru ári sínu á mótaröðinni en hann var valinn nýliði ársins í fyrra. „Markmiðið var einfaldlega að gera allt sem ég gæti til að kom­ ast áfram og inn á Opna breska meistaramótið. Ég hef lítinn tíma til að fagna þessu, ég flýg til Sví­ þjóðar í nótt fyrir mót sem hefst þar á fimmtudaginn. Ætli maður kíki ekki í bað til að mýkja bakið aðeins,“ segir Haraldur sem ætlar að æfa stíft fram að móti. „Ég kem til Skotlands þremur dögum fyrir mót en ég verð meira og minna á golfvellinum allt fram að mótinu,“ sagði Haraldur glað­ beittur. kristinnpall@frettabladid.is Reyndi að sofa stressið af sér Haraldur Franklín Magnús komst fyrstur Íslendinga inn á Opna breska meistaramótið í golfi, eitt elsta og virtasta golfmót heims í gær. Hann lagði sig í búningsklefanum á meðan hann beið eftir lokatölunum. Hann er mikill Íslandsvinur og ég held að það hafi aldrei mætt fleiri á mót en þegar hann var á Íslandi. Það var mikill heiður fyrir mig að ná að vera fyrir ofan hann. Haraldur Franklín Magnús um Retief Goosen 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -C 0 9 8 2 0 5 0 -B F 5 C 2 0 5 0 -B E 2 0 2 0 5 0 -B C E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.