Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 52
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Síðustu þrjár vikurnar var veiðin afar róleg og það svæði sem helst var veiðivon á var lokað í heila viku vegna heræfinga,“ segir Bjarni Ólafur Hjálmarsson sem tók við skipstjórn Blængs NK sem kom til Neskaupstaðar í vikunni eftir að hafa verið að veiðum í Barents- hafi frá því í lok aprílmánaðar. Í lestum skipsins eru 500 tonn af frystum afurðum eða um 27.000 kassar og var aflinn í veiði- ferðinni um 1.450 tonn upp úr sjó og er þá miðað við óaðgerðan fisk. Verðmæti aflans er um 380 milljónir króna. Fullyrðir Síldarvinnslan að þetta sé verðmætasti farmur sem norðfirskt fiskiskip hefur komið með að landi úr veiðiferð. Theodór Haraldsson var skipstjóri fyrri hluta veiðiferðarinnar en Bjarni Ólafur tók við eftir sjómannadaginn. Bjarni Ólafur segir að veiðiferðin hafi gengið vel en aflinn hefði mátt vera meiri. „Vegna æfinganna þurftum við að færa okkur austar og austast vorum við einar 60 sjómílur frá Novaja Zemlja.“ Eyjaklasinn Novaja Zemlja er trúlega þekktastur fyrir að hafa verið kjarnorku- tilraunastaður Rússa í kalda stríðinu. „Öll samskipti við Rússana gengu vel og þar nutum við þess að Geir Stefánsson stýrimaður talar reiprennandi rússnesku. Rússarnir voru dálítið hissa þegar þeir uppgötvuðu rússneskumælandi mann um borð hjá okkur, þeir eiga líklega ekki slíku að venjast um borð í erlendum veiði- skipum sem sækja í Barentshafið,“ segir Bjarni Ólafur. benediktboas@frettabladid.is Verðmætasti farmurinn Blængur í heimahöfn í blíðunni fyrir austan. Mynd/Karl Jóhann Birgisson Elskulegur sonur minn, bróðir, frændi og vinur okkar, Bragi Húnfjörð Kárason bóndi á Þverá í Norðurárdal, er látinn. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju, Skagastönd, mánudaginn 9. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Höskuldsstaðakirkju eða björgunarsveit Blönduóss. Sólveig Bjarnadóttir systkini og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, Unnur Þórðardóttir lést föstudaginn 29. júní síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Steinn Jónsson Jónína B. Jónasdóttir Jónína G. Jónsdóttir Guðmundur Ragnarsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hörður Jónsson fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður á Patreksfirði, lést laugardaginn 30. júní. Útför hans verður frá Grafarvogskirkju mánudaginn 9. júlí kl. 13. Starfsfólki á hjartadeild Landspítalans færum við innilegar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun. Edda Axelsdóttir Jón Axel Harðarson Izabela K. Harðarson Heba Harðardóttir Jón S. Bjarnason María Harðardóttir Þorsteinn Narfason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Berglind Björnsdóttir lést á heimili sínu þann 3. júní síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan þakkar þann hlýhug og samúð sem okkur hefur verið sýnd. Sigurjón Magnússon Linda Mjöll Helgadóttir Alexander Hrói, Sebastían Nói, Andrea Ísold, Viktor Frosti Kristín Guðmundsdóttir Anna Björg Björnsdóttir og fjölskylda Guðmundur Björnsson og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Bryndís Björnsdóttir lést á heimili sínu þann 9. júní síðastliðinn eftir erfið veikindi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan þakkar þann hlýhug og samúð sem okkur hefur verið sýnd. Móðir Bryndísar hefur stofnað styrktarreikning fyrir börn hennar, 515-14-123199, kt. 250346-3289. Kristín Laufey Bryndísardóttir Hafsteinn Ingi Sigurðsson Björn Laufland Halldórsson Christopher Allen DuBeck Kristín Guðmundsdóttir Anna Björg Björnsdóttir og fjölskylda Guðmundur Björnsson og fjölskylda Minn kæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Grund að morgni sunnudagsins 01.07. sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Rósa Guðmundsdóttir Ólöf Erla Bjarnadóttir Sigurður Axel Benediktsson Guðmundur Jens Bjarnason Ásta Hrönn Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri sonur, bróðir, faðir, tengdafaðir og afi, Hannes Snæbjörn Sigurjónsson kennari og tæknifræðingur, Reykjavík, lést í faðmi nánustu aðstandenda 22. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Neskirkju 12. júlí kl. 13.00. Sigurjón Sigurðsson Svava Sigurjónsdóttir Sigrún Sigurjónsdóttir Sigurjón Davíð Hannesson Trausti Hannesson Guðrún Fönn Tómasdóttir og afabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Margrét Stefánsdóttir Eyrarvegi 14, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands mánudaginn 18. júní 2018. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands fyrir einstaka umönnun og kærleika. Axel Ragnar Ström Sigrún Linda Ström Lúðvík Magnús Ólason Halldóra Björg Ström Hilmar Þór Hannesson Stefán Ásgeir Ström Helga Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Steinþóra Sumarliðadóttir lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hafnarfirði þann 28. júní. Útförin fer fram frá Garðakirkju þann 6. júlí kl. 13. Örn Einarsson Aldís Björg Arnardóttir Kári Ellertsson Arna Þóra Káradóttir Örvar Hilmarsson Ellert Kárason Aþena Líf, Atlas Ingi og Alexandra Ylfa Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Soffía Jóhannsdóttir Brekkugötu 38, Akureyri, lést þriðjudaginn 26. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 9. júlí kl. 13.30. Einar Guðbjartsson Soffía Einarsdóttir Bjarni Jónsson Eva Einarsdóttir Jóhann Eyfjörð Hreiðarsson Signý Jóhannsdóttir Halldór Jónasson Garðar Jóhannsson Margrét Ragnarsdóttir Jenný Jóhannsdóttir Hrafn Davíðsson Hanna M. Jóhannsdóttir Elís Rafn Björnsson Hreiðar Eyfjörð Hreiðarsson Elsa G. Sveinsdóttir Hreiðar Eyfjörð Hreiðarsson jr. Susan Eyfjörð Alma Eyfjörð Hiim Björn Benninghoff Hiim Sveinn Eyfjörð Hreiðarsson Cathrine Pettersen Íris Eyfjörð Hreiðarsdóttir og langömmubörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, Linda Mjöll Andrésdóttir Bæjartúni 15, Kópavogi, lést á krabbameinslækningadeild (11E) Landspítalans miðvikudaginn 27. júní. Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju mánudaginn 9. júlí kl. 13. Fjölskyldan vill sérstaklega þakka frábæru starfsfólki 11E fyrir óeigingjarnt og faglegt starf. Páll Jakobsson Jakob Felix Pálsson Andrea Arna Pálsdóttir Guðrún Brynjólfsdóttir Hildur Brynja Andrésdóttir Egill Örn Petersen Jakob Ólafsson Helena Soffía Leósdóttir Little og aðrir aðstandendur. Systir mín og frænka okkar, Þórhildur Þorsteinsdóttir (Dúdda) fyrrum vararæðismaður Íslands og leiðsögumaður, sem lést á heimili sínu í Fuengirola þann 12. maí sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 4. júlí, kl. 15. Þorsteinn Þorsteinsson Gauti Kristmannsson Leifur Ragnar Jónsson Þorsteinn Kristmannsson Kristín Ragna Jónsdóttir Kristmann Egill Kristmannsson Jón Ragnar Jónsson Eiður Páll Sveinn Kristmannsson Blængur NK kom til heima- hafnar í gær eftir veru í Bar- entshafinu frá því í lok apríl. 4 . j ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R16 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð tímamót 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -C 5 8 8 2 0 5 0 -C 4 4 C 2 0 5 0 -C 3 1 0 2 0 5 0 -C 1 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.