Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 60
Hollywood-ræmur Hvað er amerískara en Holly- wood? Hér eru nokkrar góðar Holly wood-ræmur í tilefni dagsins: Independence Day Þetta segir sig sjálft. Í guðanna bænum ekki horfa á nýju myndina heldur þessa frá 1996 með Will Smith. Born on the Fourth of July (1989) Tom Cruise með sítt hár og skegg í hjólastól að garga hásri röddu? Tilvalið. Jaws (1975) Jaws gerist í kringum 4. júlí og er frábær mynd. Það ætti að nægja. Forrest Gump Seinni hluti 20. aldarinnar í Bandaríkjunum í gegnum gler- augu Hollywood, svaka fínt í dag. Air Force One Forseti Bandaríkjanna gengur frá hryðjuverkamönnum og hann er Harrison Ford. Fullkomið. The Patriot Ótrúlega „over the top“ drama- tísk og væmin þjóðernisleðja úr smiðju hins ástralska Mels Gibson. Top Gun Tom Cruise er ótvíræður sigurveg- ari í leiknum „Besti 4. júlí leikar- inn“. Hér flýgur hann um í þotum með góðum félögum. Taktu 4. júlí alla leið Sumir segja Ísland bara vera nýlendu Bandaríkjanna og því þá ekki að taka það bara alla leið og halda upp á þjóð- hátíðardag þeirra Bandaríkjamanna? Eina leiðin til að fagna þessum degi er að gera bara ótrúlega ameríska hluti. Tom Cruise í sínum besta ham. Harrison Ford sem forseti Bandaríkjanna öskrar bara „Ameríka!“ Hér getur að líta Ameríkana að nostra við grillkjötið sitt. Ahh! Einn skítkaldur og bragðlaus beint úr áldós. Sprengja flugelda Blaðamaður biðst forláts en það að sprengja flugelda er eina leiðin til að fagna 4. júlí fyrir hönd Banda- ríkjanna. Ég veit, ég veit, það er lík- lega ólöglegt og af því er mikið ónæði en risastórir flugeldar að springa yfir íbúðahverfum er við hæfi í dag. Margir lesendur blaðsins verða vafa- laust handteknir fyrir athæfið en það er bara fórnarkostnaður. Fara í Costco Costco er gríðarlega amerísk búð, jafnvel þó að hún sé í raun eiginlega bresk hér á landi. Ef þú hlustar ekki á breskan hreim starfsfólksins og hunsar breskar merkingar á vörum er það að koma inn í Costco nánast eins og ganga á land í hinni stóru Ameríku. Stórar pakkningar, ódýrar gallabuxur og svo eitt stykki „hot dog“ eftir kaupin. Borða Krispy Kreme OG Dunkin’ Donuts Fagnaðu Bandaríkja-deginum almennilega og fáðu þér bæði Krispy Kreme og Dunkin’ Donuts á sama deginum. Það má allt í dag, um að gera að leyfa sér. BBQ Það sem við Íslendingar köllum „að grilla“ er ekki á nokkurn hátt það sama og hið ameríska BBQ. Þar á bæ er BBQ listform eða jafnvel lífs- stíll. BBQ tekur marga klukkutíma en kjötið, oftast svínakjöt en líka naut og kjúklingur, er hægeldað og jafnvel reykt á gríðarlega lágum hita og grillmeistarar standa yfir herleg- heitunum allan sólarhringinn og smyrja fleskið með heimagerðum sósum og mæla hita á mínútu fresti. Það er best að byrja strax, eða að hafa byrjað að undirbúa þetta í gær. Drekka bjór sem er meira eins og vatn en bjór Það amerískasta af öllu er að drekka bjór sem er lapþunnur og heitir eitt- hvað „light“. Þessi siður snýst alls ekki um bragðið af bjórnum, enda er bragð bara fyrir snobbara, heldur snýst þetta um að koma niður sem mestu magni af sem allra köldustum bjór á stuttum tíma. Eftir það verður maður „wasted“ og það er frábært. Fánar, alls staðar Það er mikilvægt að skreyta rétt í dag og þá eru það fánalitirnir sem eru það eina sem kemur til greina. Bandaríkjamenn eru ekki með ströng fánalög og því er bókstaf- lega hægt að fá hvað sem er í sömu litum og ameríska flaggið. Það væri til að mynda hægt að fá sér húsgögn skreytt stjörnunum og röndunum fallegu, skella myndum af fánanum á veggina, skipta út allri nærfata- skúffunni fyrir naríur í sömu litum og Gamla dýrðin og geyma gögnin á USB-lykli sem lítur út eins og pínuútgáfa stjörnum stráða klútsins. stefanthor@frettabladid.is Sirka svona er best að klæða sig í dag. 4 . j ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R24 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð Lífið 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -D 4 5 8 2 0 5 0 -D 3 1 C 2 0 5 0 -D 1 E 0 2 0 5 0 -D 0 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.