Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 32
Doktor Ólafur Þór Ævarsson, sérfræðingur í geðlækningum og eigandi
Streituskólans, segir að kulnun geti
myndast hjá einstaklingum þegar
álagsþættir verða of margir sam
tímis og hvíld er ekki nægileg. „Við
það myndast vítahringur þreytu,
streitu, áhugaleysis, minnisleysis
og truflunar á einbeitingu, auk
líkamlegrar vanlíðanar. Mikilvægt
er að greina einkenni kulnunar
snemma til að ná skjótum bata og
koma í veg fyrir sjúklega streitu,
depurð eða kvíða,“ segir hann en
kulnun er orðin ein helsta ástæða
veikindafjarveru og veikinda
nærveru starfsfólks.
Sérfræðingar Streituskólans hafa
unnið að nýsköpun í greiningu og
meðferð á kulnun, sem nýtist bæði
einstaklingum og fyrirtækjum.
Nýsköpunin felst í að fylgjast með
gagnreyndum nýjungum í mann
auðs og heilbrigðisfræðum og
þróa aðferðir til að fræða um þær
og gera þekkinguna aðgengilega
á skjótan og einfaldan hátt. Um
er að ræða nýjar og markvissar
aðferðir við að greina kulnun
en Streituskólinn er í samstarfi
við Institutet för Stressmedicin í
Gautaborg.
„Við skimum fyrir kulnun innan
fyrirtækja, veitum forvarna
fræðslu, mannauðsráðgjöf og
stjórnendaráðgjöf,
auk þess að útbúa
forvarnaáætlun. Við
fylgjum málum eftir
og veitum fræðslu
svo það verði meiri
þekking á kulnun
innan fyrirtækjanna
sjálfra. Forvarnaáætl
un snýst um að fræða
starfsfólk svo allir viti
hvað á að gera ef það
er minnsti grunur um
kulnun og hvernig á að
bregðast við henni. Í
raun er okkar þjónusta
sérsniðin fyrir hvert
og eitt fyrirtæki,“ segir
Ólafur.
Streituskólinn er
einnig með sérfræðiráðgjöf fyrir
einstaklinga. „Við greinum kulnun
hjá einstaklingum, veitum þeim
ráðgjöf, stuðning og meðferð við
sjúklegri streitu og streitutengdum
heilsufarsvandamálum,“ segir
Ólafur og bendir á að miklir hags
munir séu í húfi,
bæði fyrir einstakl
inga og fyrirtæki.
Þegar Ólafur er
spurður hvort til séu
nákvæmar tölur um
aukningu á kulnun
hérlendis segir hann
að svo sé því miður
ekki. „Hins vegar
sýna erlendar rannsóknir að kulnun
og sjúkleg streita virðist hafa aukist
mikið í hinum vestræna heimi
undanfarin ár og er farið líta á hana
sem sérstakan heilasjúkdóm. Þess
vegna eru varnir gegn kulnun heila
verndandi,“ segir hann.
Heilinn styrkist og eflist við
hreyfingu
Ólafur segir að ef lýsa eigi því á
einfaldan hátt hvernig bregðast
skuli við kulnun megi skipta því
í þrjá þætti: „Í fyrsta lagi greinum
við álagspunkta og streituvalda.
Kulnun snýst ekki aðeins um álag
í vinnu heldur einnig heima fyrir.
Flestir vilja samhæfa vinnu og
fjölskyldulíf en það getur verið
flókið mál. Það þarf því að átta
sig á hvaða streituvaldar eru hjá
hverjum og einum og skilgreina
þá. Mikilvægt er að ýta í burtu
því sem ekki er hægt að breyta og
vinna í því sem hægt er að laga.
Þess þarf að gæta að álag sé hæfi
legt á vinnustað og þar myndist
ekki gróðrarstía fyrir álagsþætti
eins og kynferðislega áreitni eða
einelti.
Í öðru lagi þarf að kanna álags
viðbrögð. Sumir keyra sig áfram
og gleyma að hvílast, fara meira í
ræktina, hætta að borða og vinna
fram á nótt á meðan aðrir verða
kvíðnir og leiðir og sumir fresta
hlutunum. Það er nauðsynlegt
að átta sig á hvernig hægt er að
bregðast við þessum aðstæðum svo
það myndist ekki vítahringur.
Í þriðja lagi þarf að læra að verja
sig fyrir streitu með því að draga
úr álagi, leita sér aðstoðar, dreifa
ábyrgð og hvílast. Hver og einn
þarf að passa upp á að fá nægan
svefn, hvíla sig – líka á vinnutíma,
og hreyfa sig en nýjar rannsóknir
sýna að heilinn styrkist og eflist
við hreyfingu. Hreyfing er því ekki
aðeins góð fyrir líkamlegt atgervi
heldur líka fyrir heilann,“ segir
Ólafur.
Í þverfaglegu teymi Streitu
skólans eru auk Ólafs: Ragnheiður
Guðfinna Guðnadóttir, M.S. í
félags og vinnusálfræði, Svein
björg Júlía Svavarsdóttir, Ph.D.,
félagsráðgjafi, Erna Stefánsdóttir
fjölskyldufræðingur og þroska
þjálfi, Guðrún Blöndal hjúkrunar
fræðingur og Elín K. Guðmunds
dóttir, M.S. í mannauðsstjórnun.
Nánari upplýsingar fást á heima-
síðunni www.stress.is.
Skima fyrir kulnun og veita
fyrirtækjum og fólki ráðgjöf
Ólafur Þór segir mikla hagmuni felast í því að takast á við
kulnun, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Þverfaglegt teymi sér-
fræðinga vinnur hjá
Streituskólanum.
Sérfræðingar
Streituskólans
hafa unnið að
nýsköpun í grein-
ingu og meðferð
á kulnun, sem
er sérsniðin að
þörfum fyrirtækja
og einstaklinga.
Við erum með sölu og pantanaskráningar fyrir heildsölur sem taka á
öllum þáttum í sölu og þjónustu,
ásamt því að vera með rúnta,
vöruvalslista, gátlista, myndir og
fleira. Margar heildsölur landsins
nota ELDEY daglega,“ útskýrir
Jón Helgason framkvæmda
stjóri. Fjórir starfsmenn starfa hjá
fyrirtækinu en þeir eru allir með
mikla reynslu á sínu sviði. Lausnir
ELDEY byggja á því að tengja við
skiptakerfi fyrirtækja við spjald
tölvur og snjallsíma í gegnum
gagnaský. Hægt er að tengja
ELDEY við öll helstu viðskipta
kerfi sem eru í notkun á Íslandi.
„Við höfum haldið góðum
vexti í fjölgun viðskiptavina. Aðal
fókusinn er á heildsölur,“ segir Jón
og bætir við að það séu spennandi
tímar fram undan hjá ELDEY.
„Við erum núna með í þróun
„Vefverslun“ B2B sem heild
sölur geta sent á viðskiptavini
sína, en þá fá þeir app í símann
og getað pantað eða flett upp
vörum sem þá vantar. Síðan er í
þróun tiltektarkerfi sem tekur við
eftir að pöntun hefur verið send
inn. Þetta eru einungis nokkrir
punktar yfir það sem við erum að
bjóða upp á og þróa. Við höfum
átt í skemmtilegu samstarfi með
viðskiptavinum og vinnum náið
með þeim. ELDEY hefur þróast
mikið í gegnum árin. Við höfum
orðið varir við mikinn áhuga
erlendis og erum langt komnir
með að geta boðið upp á okkar
lausnir á öðrum tungumálum,“
segir Jón.
Nánari upplýsingar um Eldey
mobile er að finna á
www.eldeysoft.is eða
hjá Jóni Helgasyni:
nonni@eldeysoft.is |
s: 897-3696 | Face-
book: Eldey Software.
Frábær snjalltækjalausn
hjá ELDEY fyrir heildsölur
Davíð Helgason og Jón Helgason framkvæmdastjóri. MYND/ANTON bRINk Viðmótið frá ELDEY er einfalt og auðvelt í notkun fyrir viðskiptavininn.
Hugbúnaðar-
fyrirtækið
ELDEY hugbún-
aður var stofnað
árið 2011, en
það býður upp
á tæknilausnir
fyrir spjaldtölvur
og snjallsíma.
Lausnir sem eru
sérhannaðar
fyrir sölu á vöru
og þjónustu.
10 kYNNINGARbLAÐ 4 . J ú L í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýSköpUN á íSLANDI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-B
6
B
8
2
0
5
0
-B
5
7
C
2
0
5
0
-B
4
4
0
2
0
5
0
-B
3
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K