Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 18
Þrátt fyrir að Philip Green hafi reiðst Baugsmönnum mjög þegar hann frétti af því að efnahagsbrotadeild r í k i s l ö g r e g l u s t j ó ra hefði ráðist inn í skrifstofur Baugs við Túngötu, þá átti innrásin eftir að reynast breska auðjöfrinum afar heilladrjúg. Hún var „verk guðs“ sem færði honum tískukeðjuna Topshop, eina af hans arðsömustu fjárfestingum, en að öðrum kosti hefði keðjan fallið Baugi í skaut. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í bókinni „Damaged Goods“ eftir Oliver Shah, viðskiptaritstjóra breska dagblaðsins The Sunday Times, sem kom út í síðustu viku og fjallar um skrautlegan feril hins umdeilda kaupsýslumanns. Húsleit ríkislögreglustjóra, sem var gerð í ágúst árið 2002, í kjölfar kæru Jóns Geralds Sullenberger á hendur forsvarsmönnum Baugs, þar á meðal Jóni Ásgeiri Jóhannes­ syni, gerði það að verkum að áform Baugs og Philips Green um að taka í sameiningu yfir bresku verslanakeðjuna Arcadia runnu út í sandinn, bæði Baugi og Green til mikillar gremju. „Ég vildi óska þess að ég hefði aldrei hitt ykkur. Ég veit ekki hvar Ísland er og mér er nákvæmlega sama. Svo mikið veit ég þó að það búa ekki margir á Íslandi. Hvernig get ég verið svo ólánsamur að af þeim fjórum Íslendingum sem ég hef hitt eru þrír þeirra til rann­ sóknar?“ á Green að hafa sagt við ráðgjafa Baugs á neyðar­ fundi í húsakynnum British Home Stores, verslanakeðju Greens, við Marylebone Road í Lundúnum sama dag og hann frétti af aðgerðum lögreglunnar á Íslandi. Sameiginlegt yfirtökuboð Baugs, sem átti þegar 20 pró­ senta hlut í Arcadia, og Greens byggðist á þeirri hugmynd að Baugur fengi í sinn hlut þær keðjur Arcadia sem höfðuðu fremur til yngri fatakaupenda, svo sem Topshop, Topman og Miss Selfridge, en Green myndi eignast samstæðuna að öðru leyti, til dæmis keðjurnar Burton og Dorothy Perkins. Hélt að Helgi væri að grínast Shah fjallar um í bókinni hvernig áhugi Baugs á að eignast hlut í Arcadia hafi kviknað síðla árs 2000. Helgi Bergs, sem starf­ aði í fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings, einum af ráðgjöfum Baugs, hafði þá samband við bankamann hjá Deutsche Bank, John Richards að nafni, og sagði honum frá áhuga íslenska félagsins. „Í fyrstu hélt Richards að Helgi væri að grínast,“ segir í bókinni. Jón Ásgeir hafi virst „ólíklegur kaupandi“ að einni þekktustu verslanakeðju Bretlands. Richards komst hins vegar að hinu rétta eftir að hann flaug til Íslands og kynnti sér rekstur Baugs. Hann sá að Jóni Ásgeiri var alvara og ákvað að lána Baugi nægilegt fé til þess að félagið gæti keypt 20 pró­ senta hlut í Arcadia. Í október árið 2001 sendu ráðgjafar Arcadia fyrir slysni trúnaðarbréf á rangt fax­ númer og neyddist verslana­ keðjan í kjölfarið til þess að upplýsa um að henni hefði borist yfirtökutilboð upp á 568 milljónir punda frá Baugi. Stjórn Arcadia taldi viðræðurnar við Íslending­ ana hins vegar ekki ganga nógu hratt fyrir sig og ákvað því snemma árs 2002 að slíta þeim. Fregnirnar vöktu athygli annarra fjárfesta, þar á meðal Philips Green, sem var á höttunum eftir álitlegum viðskipta­ tækifærum. Fyrir milligöngu áður­ nefnds Johns Richard komst Green fljótlega í samband við Jón Ásgeir. Tvímenningarnir ákváðu, sem áður sagði, að reyna að yfirtaka verslanakeðjuna í sameiningu og fékk tilraunin, að sögn Shahs, heit­ ið „Project Anaconda“ í höfuðið á kyrkislöngunni sem er þekkt fyrir að kreista bráð sína til dauða. Green hafði misst af tækifærinu til þess að kaupa Arcadia á meðan fjárhagsstaða keðjunnar var bág­ borin og hlutabréfaverðið því lágt og Stuart Rose, sem hafði sem nýr forstjóri Arcadia komið rekstri keðjunnar á réttan kjöl, reyndist honum auk þess óþægur ljár í þúfu í samningaviðræðunum. Green og Jón Ásgeir þurftu að hækka tilboð sitt í nokkur skipti eða upp í allt að 850 milljónir dala, að kaupréttum meðtöldum, áður en fregnir bárust af húsleitinni á skrifstofum Baugs og viðræðurnar fóru út um þúfur. Öskrandi af bræði Shah segir að þegar hafi verið „spenna“ í sambandi Greens og Jóns Ásgeirs. Er Green sagður hafa gert „mjög einbeitta tilraun“ til þess að bola Jóni Ásgeiri frá samn­ ingaborðinu svo Green gæti sjálfur stýrt viðræðunum. Húsleitin myndi „augljóslega“ gera Jóni Ásgeiri ómögulegt að kaupa einhverjar keðjur Arcadia. Í bókinni er Bretinn sagður hafa trompast þegar hann las um lögregluaðgerðirnar á frétta­ vef Reuters og kallað Íslendingana öllum illum nöfnum á neyðarfundi í húsakynnum BHS að kvöldi sama dags. „Þið hafið skilið mig eftir uppi í stiga sem er um það bil að verða sparkað niður,“ sagði Green. Peter Cummings, bankamaður hjá Halifax Bank of Scotland, bjargaði hins vegar deginum fyrir Green. Cummings hafði þegar sam­ þykkt að lána honum 700 milljónir dala en eftir eitt stutt símtal hækk­ aði hann lánið í 800 milljónir til þess að Green gæti „losað sig við“ Íslendingana. Nokkrum dögum síðar keypti Green 20 prósenta hlut Baugs í Arcadia eftir langar viðræður á nætur fundi þar sem Bretinn er sagður hafa sleppt sér við einn af ráðgjöfum Baugs hjá Deutsche Bank, gripið í jakkakragann hans og látið öryggisverði sína henda honum út. Eftir að hafa gengið frá kaupunum á hlut Baugs lauk hann yfirtökunni á Arcadia. „Lýg ekki að konu“ Jón Ásgeir var með súrt bragð í munni, að því er segir í bók Shahs. Hann er sagður hafa talið Green hafa lofað að selja sér Topshop síðar meir. Það hafi verið hluti af sam­ komulagi þeirra. Í bókinni er greint frá því þegar hann heimsótti Green ásamt Ingibjörgu Stefaníu Pálma­ dóttur, eiginkonu sinni, og lögfræð­ ingi þar sem Green tók í höndina á Ingibjörgu og sagði: „Ég myndi aldrei ljúga að konu.“ Á hverju ári næstu fimm árin – á meðan Top­ shop óx hröðum skrefum – sendi Jón Ásgeir Green smáskilaboð og spurði: „Hvenær ætlum við að klára samninginn?“ Yfirtaka Greens reyndist afar ábatasöm og það sama má segja um fjárfestingu Baugs í Arcadia, þrátt fyrir að félagið hafi orðið af miklum hagnaði vegna lögregluaðgerðanna hér heima. Er talið að hagnaður Baugs af fjárfestingunni – hátt í átta milljarðar króna á þeim tíma – hafi lagt grunninn að frekari umsvifum verslunarveldisins í Bretlandi. Húsleitin reyndist Green heilladrjúg Húsleit lögreglunnar á skrifstofum Baugs í ágúst árið 2002 var „verk guðs“ sem færði breska kaupsýslumanninum Philip Green tísku- keðjuna Topshop, að því er fram kemur í nýrri bók um ævi og störf Greens. Green reiddist Baugsmönnum þegar hann frétti af aðgerð- um lögreglunnar. Áður er hann sagður hafa gert „einbeitta tilraun“ til þess að bola Jóni Ásgeiri Jóhannessyni frá samningaborðinu. Bókakápan. Öll spjót standa á Philip Green eftir fall verslanakeðjunnar BHS sumarið 2016. 11 þúsund manns misstu vinnuna og um 20 þúsund glötuðu lífeyri sínum. Mikil gagnrýni hefur komið fram á Green vegna þess hvernig hann skildi við keðjuna þegar hann seldi hana ári áður. NordicPHotoS/Getty Erlendur fjárfestingarsjóður keypti í liðinni viku hátt í 0,4 prósenta eignar­ hlut í Marel fyrir ríflega 930 milljónir króna. Hlutur sjóðsins er skráður á safnreikning Landsbankans. Ekki hafa fengist staðfestar upplýs­ ingar um nafn fjárfestingarsjóðsins en samkvæmt heimildum Markaðarins er um að ræða fyrstu fjárfestingu sjóðsins í Marel. Sjóðurinn keypti ríflega 2,4 millj­ ónir hluta í félaginu en miðað við núverandi gengi hlutabréfa þess er eignarhluturinn metinn á 925 millj­ ónir króna. Eignarhlutur sjóðsins skilar honum ekki á opinberan lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Marels. Í þeim hópi eru tveir erlendir fjárfestar, annars vegar sjóður í stýringu dótturfélags bandaríska eignastýringarfyrirtækis­ ins Capital Group með 1,16 prósenta hlut og hins vegar sjóður á vegum annars bandarísks eignastýringar­ fyrirtækis, MSD Partners, með 3,34 prósent. Er síðarnefndi sjóðurinn sjöundi stærsti hluthafi Marels. Hlutabréfaverð Marels hefur hækk­ að um 20 prósent á árinu. – kij Erlendur sjóður keypti fyrir 930 milljónir í Marel Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Hvernig get ég verið svo ólánsamur að af þeim fjórum Íslendingum sem ég hef hitt eru þrír þeirra til rannsóknar? Philip Green, eigandi Arcadia-keðjunnar 0,4 prósent er eignarhlutur erlenda sjóðsins í Marel. Söluferli fasteigna félagsins TF KEF á Ásbrú lauk án þess að viðunandi tilboð bærust. Félagið er í eigu Skúla Mogensen, forstjóra WOW air, en hann setti eignirnar á sölu í byrjun nóvember. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs­ ingafulltrúi WOW air, staðfestir í samtali við Markaðinn að formlegu söluferli sé lokið þar sem fresturinn til að skila tilboðum sé liðinn. „Að svo stöddu höfum við ekki fengið tilboð sem er í takti við okkar verð­ hugmyndir,“ segir Svanhvít. Hún bætir við að mögulega verði aftur opnað fyrir tilboð en engin ákvörð­ un þess efnis hafi verið tekin. „Allar eignirnar eru í fullri notk­ un og Base hotel, sem er rekið í tveimur fasteignum, gengur mjög vel.“ Eignirnar sem um ræðir eru flug­ vallarhótelið að Valhallarbraut 756 til 757, og starfsmannaíbúðirnar að Keilisbraut 747 og Lindarbraut 63. Þær spanna samtals tíu þúsund fer­ metra. Í frétt mbl.is um áform Skúla í nóvember kom fram að búist væri við því að söluverðið næmi þremur milljörðum íslenskra króna og að fjármagnið yrði notað til þess að fjármagna nýjar höfuðstöðvar WOW air. Tekið var fram að herbergjanýt­ ing hótela á Suðurnesjum hefði verið best á landinu, eða 89,5%. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fyrir maí er nýtingin enn best á Suðurnesjum en hún hefur þó lækkað niður í 74,2% í takt við almenna þróun. – tfh Tekur eignir á Suðurnesjum af sölu Skúli Mogensen, forstjóri WoW air. FréttaBLaðið/aNtoN BriNk 3 milljarðar króna var áætlað söluverð þegar eignin var sett á sölu. 4 . j ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R4 Markaðurinn 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -B B A 8 2 0 5 0 -B A 6 C 2 0 5 0 -B 9 3 0 2 0 5 0 -B 7 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.