Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 46
Ástkær eiginmaður minn og faðir,
Ágúst Önundarson
varð bráðkvaddur á Möltu þann 31. júlí.
Útför auglýst síðar.
Ester Ösp Guðjónsdóttir
Hrefna Ýr Ágústsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
Þorbjörg Laxdal
Marinósdóttir
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
3. ágúst sl. Útförin verður auglýst síðar.
Halldór Hreinsson Arndís Frederiksen
Guðbjörg Hreinsdóttir Juan Guerrero
Hildur Sif Hreinsdóttir Svavar Björgvinsson
Sigfríður L. Marinósdóttir
Grétar L. Marinósson
Karl L. Marinósson
og barnabörn.
Þökkum af alhug samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Gísla J. Eyland
Víðimýri 8, Akureyri.
Dóróthea Júlía Eyland
Ólöf Jenny Eyland Sigurður Bjarni Jóhannsson
Einar Eyland
afa- og langafabörn.
Ástkær faðir okkar,
sonur, bróðir og barnsfaðir,
Ragnar Ásgeir Óskarsson
Fögrukinn 19, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
í Fossvogi sunnudaginn 29. júlí sl. Hann
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 10. ágúst kl. 15.00.
Ísak Ragnarsson
Benjamín Ragnarsson
Elínborg Ragnarsdóttir
Erla Óskarsdóttir
Nonni Óskarsson
Sævar Markús Óskarsson
Rakel HermannsdóttirFlatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted
Í fyrsta sinn í sögu HR-ingsins er haldin keppni í Fortnite sem margir kannast við, enda einn mest stækkandi leikur í heimin-um í dag og hefur verið í fréttum undanfarna mánuði,“ segir Benja-
mín Björn Hinriksson, einn af skipu-
leggjendum HR-ingsins. HR-ingurinn er
stærsta og langlífasta tölvuleikjamót
Íslands og fer fram í 12. skipti um næstu
helgi.
HR-ingurinn er svokallað LAN-
mót, þar sem fólk kemur með tölvuna
sína upp í Háskólann í Reykjavík yfir
helgina 10. til 12. ágúst og spilar tölvu-
leiki saman. Aðgangsgjald í forsölu er
2.900 krónur. Í ár verða verðlaunin yfir
500.000 kr. og fólk æfir sig yfirleitt mikið
fyrir mótið.
„Þetta er mót sem er haldið á vegum
Tvíundar, Tölvunarfræðifélags Háskól-
ans í Reykjavík á ári hverju, yfirleitt
helgina eftir verslunarmannahelgi og
sækja um 300 manns mótið á hverju ári.
Tvíund mun vera með sjoppu í skól-
anum yfir helgina og er mikið selt af mat
þar. Á hverju ári byggist upp hinn frægi
pitsu-veggur þar sem töluvert er borðað
af Domno’s-pitsu yfir helgina.
Í gegnum árin höfum við byggt upp
HR-inginn með frábæru fólki sem kemur
ár hvert í sjálfboðavinnu, einfaldlega af
því hversu skemmtilegt þetta er.
Við fáum einnig flotta aðila til að gefa
frábæra vinninga og í ár erum við komin
í samstarf við Tölvutek sem ásamt Tví-
und ætlar að gefa veglega vinninga til
sigurvegara mótanna.“
Benjamín segir að fyrir sjálfboðalið-
ana sé þetta skemmtilegasta helgi ársins.
Það er lítið sofið og frí tekið frá vinnu til
að koma og nýta í undirbúning. „Fyrir
okkur er þetta ein skemmtilegasta helgi
ársins. Það er gaman að sjá nýja sjálf-
boðaliða koma á hverju ári sem hafa
áhuga á að taka þátt í undirbúningi og
umsýslu, en margir þeirra eru núverandi
eða útskrifaðir tölvunarfræðinemendur
úr HR.
Við bjóðum alla velkomna að koma
með tölvuna sína til okkar og skemmta
sér yfir helgina. Skráning og forsala er
opin á vefsíðu okkar, HRingurinn.net,“
segir Benjamín.
benediktboas@frettabladid.is
Keppa í Fortnite í fyrsta
sinn á Íslandi á HR-ingnum
HR-ingurinn fer fram í 12. skipti um næstu helgi. Þetta er stærsta og langlífasta tölvuleikja-
mót Íslands en í fyrsta sinn verður keppt í Fortnite, tölvuleik sem margir kannast við.
Í fyrsta sinn í sögu HR-ingsins er haldin keppni í Fortnite, sem margir kannast við enda einn mest stækkandi leikur í heiminum í dag
og hefur verið í fréttum undanfarna mánuði. HR-ingurinn fer nú fram í 12. skipti og eru verðlaunin ekki af verri endanum.
Fyrir okkur er þetta ein
skemmtilegasta helgi
ársins. Það er gaman að sjá nýja
sjálfboðaliða koma á hverju ári
sem hafa áhuga á að taka þátt í
undirbúningi og umsýslu.
1265 Orrustan við Evesham: Hinrik 3. Englandskonungur
og Játvarður sonur hans vinna sigur á liði uppreisnarmanna
undir forystu Simon de Montfort. De Montfort og elsti
sonur hans, Henry, féllu báðir.
1704 Enskar og hollenskar sveitir hertaka Gíbraltar.
1907 Ungmennafélag Íslands stofnað og var fyrsti for-
maður þess Jóhannes Jósefsson.
1914 Fyrri heimsstyrjöldin: Þýskaland ræðst á Belgíu. Í kjöl-
farið lýsti Bretland yfir stríði við Þýskaland. Bandaríkin lýstu
yfir hlutleysi.
1928 Ásta Jóhannesdóttir syndir frá Viðey til Reykjavíkur.
Sundið tók tæpar tvær klukkustundir og er um fjórir kíló-
metrar.
1972 Idi Amin tilkynnir að allir asískir verkamenn með
bresk vegabréf verði að hverfa frá Úganda innan þriggja
mánaða.
1977 Sprengjumaðurinn frá Gladsaxe sprengir sína fyrstu
sprengju í símaklefa í Kaupmannahöfn.
1979 Stokkhólmsmaraþonið hlaupið í fyrsta skipti.
1984 Sovéski kafbáturinn K-278 Komsomolets setur
heimsmet í djúpköfun þegar hann nær 1.020 metra dýpi.
1995 Króatíuher hefur Stormaðgerðina gegn Króatíu-
serbum í Krajinahéraði.
1997 185.000 bílstjórar hjá United Parcel Service fara í
verkfall.
Merkisatburðir
4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R26 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
tímamót
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
8
-4
A
2
0
2
0
8
8
-4
8
E
4
2
0
8
8
-4
7
A
8
2
0
8
8
-4
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K