Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 12
TINNA BJÖRK
KRISTINSDÓTTIR
samfélagsmiðlastjarna
Ég ætla að gera
eitt mjög frum-
legt! Ég ætla
að fara til Vest-
mannaeyja. Þar
verður víst hátíð
sem ekkert margir
vita af. Ég fer með kærastanum
mínum og góðum hópi vina. Ég
hef farið nokkrum sinnum, fyrst
þegar ég var þrettán ára, svo þegar
ég var sextán ára. Þá var ég ekki
alveg að finna mig þarna. En ég fór
svo aftur tíu árum seinna þegar ég
var 26 ára gömul og féll þá fyrir há-
tíðinni og fór svo aftur í fyrra. Há-
tíðin er ekki eins og margir halda,
það eru ekki allir dauðadrukknir.
Náttúran er falleg, það er hægt að
fara í sund, fara út að borða og svo
í dalinn um kvöldið.
SVALA
BJÖRGVINS-
DÓTTIR
tónlistarmaður
Ég er að spila á
Innipúkanum í
Reykjavík á laugar-
dagskvöldið kl.
22.30. Verð í
bænum og ætla að
hafa gaman með
vinkonum mínum.
STEFÁN
JAKOBSSON
söngvari
Ég verð í Vest-
mannaeyjum
með kærustunni
minni. Tek
jafnvel eitt eða
kannski tvö lög –
hver veit.
HJÖRVAR
HAFLIÐASON
útvarpsstjarna
Ég verð á Ítalíu
með Heiðrúnu
og Kára syni
okkar.
BIRKIR VAGN
ÓMARSSON
einkaþjálfari
Ég er auðvitað
að fara á Þjóð-
hátíð. Myndar-
legasti lyfjafræð-
ingur landsins,
Viktor Númason,
fer með mér.
EINAR BÁRÐARSON
Ég verð
með fjöl-
skyldunni
að lifa og
njóta. Einu
plönin eru
að skjótast
aðeins upp í
Grímsnes á laugardaginn,
þá verður sjálfsagt aðeins
komið við á Selfossi enda
ekki annað hægt. Annars
verðum við að mestu leyti
í borginni og ætli þú finnir
mig ekki með familíunni á
einhverju af gourmet kaffi-
eða veitingahúsum „Notting
Hill Íslands“, betur þekkt
sem miðbær Hafnarfjarðar,
að gæða mér á ljúfmeti
og horfa upp í sólina sem
ætlar að flytja lögheimili
sitt þangað yfir helgina og
borga þar útsvar í stórum
slummum.
HALLBERA
GÍSLADÓTTIR
landsliðsmaður í
knattspyrnu
Fyrsta skipti í langan
tíma sem ég er ekki með
einhver svakaleg plön um
verslunarmannahelgina.
Ég ætla að njóta helgar-
innar með fjölskyldu
minni með útiveru
og góðum
mat. Skella
mér jafnvel í
sumarbústað á
Flúðum og hver
veit nema
maður
endi á
ein-
hverju
sveita-
balli
þar.
Hvað á að gera um helgina?
Hátíðir haldnar víða um land
Mesta ferðahelgi ársins er upprunnin. Margir landsmenn verða á faraldsfæti um helgina og sækja útihátíðir.
Evrópumeistaramótið
í Mýrarbolta
Bolungarvík
Drullumall á daginn
en stuð á kvöldin,
sveitaball og dans-
leikur.
Innipúkinn
Miðbær Reykjavíkur
Fjölbreytt tónleikadag-
skrá á föstudags-,
laugardags-, og
sunnudagskvöld.
Unglingalandsmót UMFÍ
Þorlákshöfn
Vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð.
Keppt í frjálsum íþróttum, dansi, golfi o.fl.
Norðanpaunk
Laugarbakki
Árlegt ættarmót
pönkara, á hátíðinni
koma fram yfir 40
hljómsveitir.
Sæludagar
KFUM & KFUK
Vatnaskógur
Fjölskylduhátíð
þar sem lögð er
áhersla á góða
samveru, þrautir,
leiki og tónlist.
Ein með öllu
Akureyri
Fjölskyldu-
hátíð með
skemmtidagskrá,
tónleikum og
böllum, útivist
og leikjum.
Neistaflug
Neskaupstaður
Tjaldmarkaður, skrúð-
ganga, strandblaks-
mót, flugeldasýning
og brunaslöngubolti á
milli hverfa.
Flúðir um versló
Flúðir
Furðubátakeppni,
tónlist, brenna
og brekkusöngur,
leikhópurinn Lotta
mætir á svæðið.
Kotmót Hvítasunnukirkjunnar
Fljótshlíð
Kristilegt fjölskyldumót haldið af
Hvíta sunnukirkjunni.
Þjóðhátíð í Eyjum
Herjólfsdalur
Brenna, flugeldasýning og
brekkusöngur, Fjölmörg
tónlistaratriði.
Líkur á skúrum
víða um land
Þegar Haraldur Ólafsson veður-
fræðingur var að læra að gera
veðurspár fékk hann gott ráð frá
læriföður sínum. „Hann sagði
við mig: Halli minn. Ef þú átt
nokkurn kost á því að spá vondu
veðri, þá skaltu gera það. Þessi
regla á mjög oft við. En ef hún á
einhvern tímann ekki við þá er
það um verslunarmannahelgina.
Það hefur viljað loða við veður-
spár um verslunarmannahelgina:
Líkur á skúrum víða um land. Það
hittir svo
skemmti-
lega á
að sú
setning
er raunhæf
um helgina!“
segir Haraldur.
Fréttablaðið + um helgina : Gott podkast er góður ferðafélagi. Listi yfir áhugaverð innlend og erlend podköst.
4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R12 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-5
4
0
0
2
0
8
8
-5
2
C
4
2
0
8
8
-5
1
8
8
2
0
8
8
-5
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K