Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 55
2 0 1 8 OPIÐ ALLA VERSLUNARMANNAHELGINA LÍKA Á MÁNUDAG FRÁ KL. 11-17 Dásamleg deild samfélagsins Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 4. ágúst 2018 Sýningar Hvað? Myndlistarsýningin „Heim að sumri“ Hvenær? 14.00 Hvar? Listaskálinn að Brúnum, Eyja­ fjarðarsveit Á sýningunni eru verk systkin- anna Eysteins, Kristjáns og Kristínar frá Munkaþverá. Verkin eru frá löngu tímabili og eru fjöl- breytt, svo sem þrívíð verk, grafík, teikningar, vatnslitamyndir o.fl. Síðasti sýningardagur er mánu- dagurinn 6. ágúst. Hvað? Gísla söguganga Hvenær? 11.00 Hvar? Gíslastaðir, Haukadal í Dýrafirði Söguleg gönguferð á slóðir Gísla sögu Súrssonar í Haukadal Dýra- firði. Allir göngugarpar fá víkinga- skikkju til að klæðast meðan á ferðinni stendur og geta þannig sett sig enn betur í spor sögu- hetjanna. Að göngu lokinni verður boðið upp á víkingarabar- baragraut Gíslastaða. Það er margt að sjá á Gíslastöðum og geta gestir m.a. spreytt sig á refilsaumi er byggður er á Gísla sögu Súrssonar og sett þannig sitt spor í söguna. Leiðsögumaður er Elfar Logi Hannesson, bókanir eru í síma 891 7025 eða á komedia@komedia.is. Hvað? Hönnunar og myndlistar­ markaður Innipúkans Hvenær? 14.00 Hvar? Naustin Hinn árlegi Hönnunar og mynd- listarmarkaður Innipúkans er nú haldinn í þriðja sinn. Hér býðst fólki að kaupa milli- liðalaust af ungum hönnuðum og myndlistarfólki. Tónlist Hvað? Útihátíð á SPOT Hvenær? 22.00 Hvar? SPOT, Bæjarlind Hvað? Afmælistónleikar í Fjölskyldu­ garðinum Hvenær? 14.00 Hvar? Fjölskyldu­ og húsdýragarður­ inn 4. ágúst fagnar Fjölskyldugarður- inn 25 ára afmæli með stórtónleik- um og opnun nýs fallturns. Þetta er viðburður fyrir alla fjölskylduna þar sem Stuðmenn, Salka Sól og JóiPé og Króli stíga á svið. Hvað? 200.000 naglbítar Hvenær? 20.00 Hvar? Félagsheimilið Flúðum Ekki deyja úr tónleikaleysi!!! 200.000 naglbítar verða með tónleika á Flúðum laugardaginn 4. ágúst. 200.000 naglbítar eru á fullu að taka upp og klára nýja plötu. Fimm lög af henni eru komin út og hafa öll ratað á vinsældalista. Á Flúðum flytja þeir nýtt efni og gamlar perlur í bland við naglbítasögur og spjall. Rokktríóið hefur verið að spila talsvert undan farið og hefur gert allt brjálað hvar sem það hefur komið fram. Tónleikar með 200.000 naglbítum eru jafn sjald- gæfir – en líka jafn sturlaðir – og svartir svanir! Húsið og miðasala opnuð 20.00 og tónleikarnir hefj- ast 21.00. Miðaverð: 3.000 kr. Sunnudagur 5. ágúst 2018 Sýningar Hvað? Vangaveltur um búskaparhætti Gísla Súrssonar. Hvenær? Kl. 16.00 Hvar? Gíslastaðir, Haukadal í Dýrafirði Hinn landskunni búfræðingur og Kirkjubólspiltur Bjarni Guð- mundsson eys úr söguaski sínum. Kappinn hefur stúderað margan búskapinn og síðustu misseri búskaparhætti Gísla Súrssonar. Það er næsta víst að þetta verður sögulegt og ekki farið með fleipur enda nam Bjarni við barnaskól- ann í Haukadal. Hlustunartollur er aðeins 1.500 kr. Posi á staðnum og verslun Gíslastaða verður gal- opin. Kaffi á núll krónur. Tónleikar Hvað? Nightjar (SE) – Pikknikk tón­ leikar Hvenær? 15.00 Hvar? Norræna húsið Nightjar er dúó frá Bretlandi/ Tyrklandi sem spilar blöndu af tyrkneskri klassískri tónlist og vestrænu poppi. Hljómsveitin var stofnuð í Svíþjóð og spilaði með tónlistarmönnum víða um heim áður hún varð dúó. Náttfarinn (e. the nightjar) er gestur frá suðræn- um löndum sem vakir á nóttinni sem er lýsandi fyrir bakgrunn og áhugamál dúósins, þeirra Lloyds Degler og Mehmets Ali Arslan. Mánudagur 6. ágúst 2018 Viðburðir Hvað? Mánudagsklúbbur Borðhalds á Coocoo’s Nest Hvenær? 18.00 Hvar? Coocoo’s Nest, Grandagarði 23 Á mánudögum á The Coocoo’s Nest ætlar Borðhald að bjóða upp á það nýjasta og besta sem gerist í náttúruvínum og fá til samstarfs við sig unga og efnilega kokka til að para rétti við vínin. Stakur réttur kostar 2.000 kr. og stakt vínglas kostar 1.600 kr. Pörun er svo á 3.000 og 4-rétta tasting á 10.000 kr. Þetta er eitt- hvað sem vín- og mataráhugafólk má ekki missa af. Hvað? Rómönsur – einkasýning Ragn­ hildar Jóhanns Hvenær? 10.00 Hvar? Hafnarstræti 16 Á sýningunni má sjá fjögur ný málverk af íslenskum femínistum lesandi ástarsögur, Fríðu Rós Valdimarsdóttur, Hildi Lilliendahl Viggósdóttur, Maríu Lilju Þrastar- dóttur og Sóleyju Tómasdóttur. Auður Jónsdóttir rithöfundur skrifar í sýningarskrá: „Allar kon- urnar á myndum Ragnhildar hafa subbað sig út í opinberri umræðu. Þannig hafa þær allar dæmt sig til að vera fláráð kvendi í rauðu ástar sögunum. Og í athugasemd- um dagsins í dag á netinu. Þær eru konurnar sem karldólgar fullyrða að séu svona ákveðnar í skoðun- um sínum af því að þær séu ekki nógu kvenlegar.“ Á sýningunni verður gjörningur fluttur af fjölda kvenna, hann hefur hvorki upp- haf né endi en verður í gangi alla opnunina. Hvað? Útileikir Hvenær? 13.00 Hvar? Árbæjarsafn Um verslunarmannahelgina verður venju samkvæmt blásið til fjölbreyttrar leikjadagskrár á Árbæjarsafni. Dagskráin er ætluð krökkum, en hún er að sjálfsögðu opin öllum þeim sem ætla að njóta þess sem Reykja- vík hefur upp á að bjóða þessa mestu ferðahelgi ársins. Frá kl. 13.00, bæði sunnudaginn 5. ágúst og mánudaginn 6. ágúst, geta gestir keppt í pokahlaupi, skjaldborgarleik og reiptogi, svo nokkuð sé nefnt. Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húlahringir, snú- snú, kubb og stultur og síðast en ekki síst flottir kassabílar. Þá verður hægt að grípa í badmin- tonspaða og á gamaldags rólu- velli eru rólur, vegasalt og sand- kassi. Við mælum með að yngsta kynslóðin heimsæki sýninguna „Komdu að leika“ í safnhúsi sem kallast Landakot en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkum er frjálst að leika sér með. Á sunnudeginum 6. ágúst mun sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjóna fyrir altari í litlu kirkjunni á Árbæjarsafni kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur og Krisztina Kalló Szklenár leikur undir á orgel. Í Dillonshúsi verða að sjálfsögðu ljúffengar veitingar í boði alla helgina. Árbæjarsafn er opið daglega í sumar frá kl. 10.00-17.00. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 35L A U g A R D A g U R 4 . á g ú S T 2 0 1 8 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K N Y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 8 -6 7 C 0 2 0 8 8 -6 6 8 4 2 0 8 8 -6 5 4 8 2 0 8 8 -6 4 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.