Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 26
Ég ákvað að taka
þátt bara til að hafa
gaman og það gekk miklu
betur en ég bjóst við.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Birta Líf Þórarinsdóttir er ein þeirra Íslendinga sem taka nú þátt í heimsleikunum í Cross-
Fit, en Birta keppir í flokki 14-15
ára. Birta hefur stundað íþróttir
árum saman en byrjaði í CrossFit
fyrir um einu og hálfu ári og hefur
þegar unnið Íslandsmeistaratitil í
sínum flokki.
Birta segist ekki hafa mikinn
tíma fyrir annað en CrossFit. „Ég
eyði þeim litla tíma sem ég hef í að
vinna í barnagæslunni í CrossFit
Reykjavík,“ segir hún. „Svo reyni ég
að eyða tíma með fjölskyldunni og
vinunum.
Ég hef stundað íþróttir í mörg
ár. Ég prófaði fótbolta, eins og
flestir, en byrjaði svo í fimleikum
og stundaði þá heillengi og vann
þrjá Íslandsmeistaratitla í hópfim-
leikum,“ segir Birta. „Svo byrjaði ég í
CrossFit og ólympískum lyftingum
fyrir einu og hálfu ári þegar vinur
pabba plataði mig með sér á æfingu
og eftir það hef ég ekki hætt. Í ár
vann ég síðan Íslandsmeistara-
titil 15-16 ára stúlkna í CrossFit og
ólympískum lyftingum.“
Þetta er bara byrjunin
Birta ákvað að taka þátt í heimsleik-
unum í ár vegna þess að í fyrra gekk
henni svo vel í undankeppninni
fyrir sjálfa undankeppni leikanna.
„Ég ákvað að taka þátt bara til að
hafa gaman og það gekk miklu
betur en ég bjóst við, en samt ekki
nógu vel til að komast í undan-
keppnina sjálfa,“ segir hún. „Eftir
það kviknaði einhver neisti í mér og
mig fór að langa að fara á leikana.
Þá ákvað ég að gera þetta af fullum
krafti!“
Birta er mjög spennt fyrir þátt-
tökunni á heimsleikunum. „Undir-
búningstímabilið fyrir leikana er
búið að vera ótrúlega skemmtilegt,
þannig að ég get ekki beðið eftir því
að fá að komast á keppnisgólfið,“
segir hún.
Henni finnst ekki ógnvekjandi
að ferðast alla leið til Wisconsin
í Bandaríkjunum til að keppa á
svona risastóru móti. „Ég er frekar
vön því að fara í keppnisferðir út af
fimleikunum, þannig að ég er meira
spennt frekar en að finnast þetta
ógnvekjandi,“ segir hún.
Velgengnin kveikti neista
Birta Líf Þórarinsdóttir keppir í flokki 14-15 ára á heimsleikunum í CrossFit í ár. Hún segir að sér hafi
gengið betur í CrossFit en hún bjóst við og það hafi kveikt neista sem dreif hana á leikana í ár.
Birta Líf
Þórarinsdóttir er
spennt fyrir því
að safna reynslu
á heimsleik-
unum í CrossFit.
Birta stundaði fimleika árum saman og hefur unnið þrjá
Íslandsmeistaratitla í hópfimleikum. MYND/INSTAGRAM
Birta byrjaði
í CrossFit og
ólympískum
lyftingum
fyrir um einu
og hálfu ári og
hefur ekki hætt
síðan.
MYND/INSTAGRAM
Í ár vonast Birta til að safna
reynslu fyrir frekari keppni í Cross-
Fit. „Þetta hljómar kannski ótrúlega
klassískt, en markmiðið er að gera
mitt allra besta og hafa ótrúlega
gaman en á sama tíma að safna
eins mikilli reynslu og ég get fyrir
komandi leika,“ segir hún. „Þetta er
bara byrjunin.“
Birta dregur að sjálfsögðu inn-
blástur frá íslensku CrossFit „dætr-
unum“ og hún vonast til að feta í
fótspor þeirra. „Íslensku dæturnar
eru klárlega mínar helstu fyrir-
myndir,“ segir hún. „Þær sönnuðu
fyrir mér að draumurinn um að
komast á leikana geti ræst.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . áG ú S T 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-7
1
A
0
2
0
8
8
-7
0
6
4
2
0
8
8
-6
F
2
8
2
0
8
8
-6
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K