Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 4
Akstur undir áhrifum vímuefna er
aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is
FERÐAÞJÓNUSTA Líklegt er að dýrari
olía og þar með hærri flugfargjöld
muni draga úr eftirspurn eftir flugi,
að mati Jóns Bjarka Bentssonar,
aðalhagfræðings Íslandsbanka. „Ef
fargjöldin taka að hækka, krónan
helst áfram sterk og kostnaður fer
hækkandi, þá er hætt við því að
það geti haft neikvæð áhrif á ferða-
mannastrauminn hingað til lands,“
nefnir hann í samtali við Frétta-
blaðið.
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir að hærri
fargjöld geti vissulega haft þau áhrif
að fólk ferðist minna. Lágt olíuverð
og lág fargjöld hafi átt þátt í vexti
ferðaþjónustunnar.
„Meira máli skiptir þó að Kefla-
víkurflugvöllur hefur verið ryðja
sér til rúms sem flutningamiðja á
Atlantshafi. Sá vöxtur hefur skapað
margar beinar og breiðar leiðir til
landsins frá bæði Bandaríkjunum
og Evrópu og aukið aðgengi að
landinu. Það hefur verið megindrif-
krafturinn að baki mikilli fjölgun
ferðamanna á undanförnum árum,“
segir Ásgeir.
Heimsmarkaðsverð á eldsneyti
hefur hækkað um hátt í 50 prósent á
síðustu tólf mánuðum með tilheyr-
andi kostnaðarauka fyrir flugfélög.
Greinendur reikna fastlega með því
að sá kostnaður, en olíukostnaður
er að jafnaði næststærsti kostnaðar-
liður flugfélaga, muni birtast í hærri
flugfargjöldum síðar á árinu.
„Við gerum áfram ráð fyrir því
að til lengri tíma muni hækkun
aðfanga leiða til hækkunar meðal-
verðs,“ var haft eftir Björgólfi
Jóhannssyni, forstjóra Icelandair
Group, í afkomutilkynningu félags-
ins fyrr í vikunni. Undir það hafa
forstjórar annarra evrópskra flug-
félaga tekið. „Það er enginn vafi á
því að fargjöld munu hækka,“ sagði
Michael O’Leary, forstjóri Ryanair, í
samtali við Bloomberg fyrr í sumar.
Jón Bjarki bendir á að lág flugfar-
gjöld hafi á síðustu árum stutt við
öran vöxt í fjölda ferðamanna hér á
landi. „Á seinni árum ferðamanna-
uppsveiflunnar – eftir að gengi
krónunnar hafði styrkst verulega –
hafði það áhrif þegar erlendir ferða-
menn voru að velta Íslandi fyrir sér
sem áfangastað hvað flugfargjöld
voru orðin ódýr. Það vó á móti dýr-
tíðinni hér á landi,“ segir hann.
Jón Bjarki telur að heilt yfir séu
horfur á minni vexti ferðaþjónust-
unnar. Þess sjáist þegar ýmis merki.
„Það eru engin hættumerki á lofti
um að hér verði samdráttur en það
lítur út fyrir að vöxturinn verði
býsna hægur í ár,“ segir hann.
Ásgeir nefnir að beinum flug-
ferðum til og frá Íslandi, í gegnum
Keflavíkurflugvöll sem höfn, hafi
fjölgað verulega með tilheyrandi
netáhrifum. Fjölmörg flugfélög
fljúgi nú hingað til lands.
„Ég tel að þessi þróun haldi áfram,
hvort sem íslensku flugfélögin
verði áfram leiðandi í þeirri þróun
eða hve mikið af þessu ferðafólki
gerir sér ferð inn í landið sjálft. Í
stóra samhenginu skiptir sú þróun
meira máli en þróunin á olíuverði
eða afkoma íslensku flugfélaganna.
Ísland er að fara að verða umferðar-
miðstöð Atlantshafsins.“
Ásgeir segir aðspurður að vöxtur
ferðaþjónustunnar verði ekki
lengur eins „fyrirhafnarlaus“ og
verið hefur. „Við munum þurfa að
vinna heimavinnuna okkar til þess
að ná áframhaldandi árangri. Það
þýðir ekki eingöngu að reiða sig á
sjarma landsins líkt og verið hefur.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa að
huga betur að rekstrinum og hvaða
hópum þau ætla að þjóna. Miklar
kostnaðarhækkanir og gengis-
hækkun hafa sett gríðarlegan þrýst-
ing á hagræðingu í greininni,“ segir
Ásgeir. kristinningi@frettabladid.is
Eftirspurn eftir flugi gæti dalað
Hækkandi olíuverð eykur kostnað flugfélaga.Talið er að sá kostnaður birtist í hærri fargjöldum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Meira máli skiptir
að Keflavíkurflug-
völlur hefur verið ryðja sér
til rúms sem flutningamiðja
á Atlantshafi.
Ásgeir Jónsson,
dósent í hagfræði
við Háskóla
Íslands
Ef fargjöldin taka að
hækka, krónan
helst áfram sterk og kostn-
aður fer hækkandi er hætt
við því að það geti haft
neikvæð áhrif á ferðamanna-
strauminn.
Jón Bjarki Bents-
son, aðalhag-
fræðingur Íslands-
banka
Vigdís Grímsdóttir
skólastjóri Finnboga-
staðaskóla
sagði skólann
ekki verða
starfræktan
sem grunnskóla
næsta skólaár.
Hins vegar verður
boðið upp á tvö námskeið fyrir
krakka í nálægum sveitarfélögum.
„Það er aðeins einn nemandi hér
í hreppnum, tíu ára gömul telpa.
Hún fer í skóla á Drangsnesi, næsta
þorpi,“ útskýrði Vigdís.
Bjarnheiður Hallsdóttir
framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar
gagnrýndi stjórn-
sýslu þjóðgarða í
landinu harðlega
í aðsendri grein.
Sagði gjaldskrár-
breytingar kynnt-
ar með of stuttum
fyrirvara. „Eru fyrirvaralausar og
íþyngjandi gjaldahækkanir upp
á hundruð milljóna í besta falli
óskiljanlegar og verða að teljast
óþolandi stjórnsýsla og virðingar-
leysi við þá sem reka ferðaþjón-
ustufyrirtæki,“ skrifaði hún.
Ása Karen Baldurs
nemi
fékk vegna mis-
lesturs á lands-
númeri miklu
fleiri símtöl en
hún kærði sig
um frá reiðum
farþegum WOW air
sem vildu endurheimta
glataðan farangur. Ása, sem starfar
ekki fyrir WOW, reyndi fyrst að
vera hjálpleg en gafst upp. WOW
hafi sagt henni að ekkert væri við
þessu að gera. Er Fréttablaðið hafði
samband við WOW kvaðst fyrir-
tækið ætla að skipta um númer og
færði Ásu gjafabréf.
Þrjú í fréttum
Nemendaleysi,
óvænt gjald og
símhringingar
TÖLUR VIKUNNAR 29.07.2018 – 04.07.2018
VIÐSKIPTI Greiðslukortafyrirtækið
Valitor, sem er í eigu Arion banka,
tapaði 204 milljónum króna fyrir
skatta á öðrum fjórðungi ársins. Til
samanburðar skilaði félagið 1.045
milljóna króna hagnaði á sama tíma
í fyrra.
Fram kemur í árshlutareikn-
ingi Arion banka, sem birtur var
á fimmtudag, að rekstrartekjur
Valitors hafi numið 1.871 milljón
króna á öðrum ársfjórðungi borið
saman við 2.779 milljónir króna
á öðrum fjórðungi síðasta árs. Þá
námu rekstrargjöld kortafyrir-
tækisins 2.050 milljónum króna á
öðrum fjórðungi ársins en þau voru
1.742 milljónir króna á sama tíma
í fyrra.
Alls tapaði Valitor 769 milljónum
króna fyrir skatta á fyrstu sex mán-
uðum ársins.
Eignir kortafyrirtækisins námu
auk þess 45.536 milljónum króna
í lok júnímánaðar borið saman við
46.031 milljón á sama tíma á síð-
asta ári. Heildarskuldir voru 29.900
milljónir í lok júní síðastliðins en
þær voru 29.632 milljónir í lok júní
í fyrra.
Í fimm ára áætlun félagsins er gert
ráð fyrir að það skili rekstrarhagn-
aði innan fáeinna ára.
Arion banki hefur sem kunnugt er
fengið alþjóðlega ráðgjafa til þess að
meta hvernig best sé að haga fram-
tíðareignarhaldi Valitors. Kemur
meðal annars til greina af hálfu
bankans að selja meirihluta í félag-
inu. – kij
Valitor tapaði ríflega 200 milljónum
Viðar Þor-
kelsson,
er forstjóri
Valitors, en
greiðslu-
kortafyrir-
tækið er í
eigu Arion
banka.
FRÉTTABLAÐ-
IÐ/STEFÁN
43
tónleikar með Paul McCartney
eru komnir í bækur Davíðs Stein-
grímssonar sem stefnir á að fara
á sína fimmtugustu tónleika með
bítlinum áður en árið er á enda.
26
þúsund manns horfðu á einhvern
hluta útsendingar RÚV frá fullveldis-
hátíð Alþingis á
Þingvöllum
þann 18. júlí
síðastliðinn. 600
milljónir króna eru greiddar í arð út
úr Guide to Iceland sem rekur
markaðstorg fyrir íslensk ferðaþjón-
ustufyrirtæki.
2,7
milljarðar króna töpuðust á rekstri
Icelandair Group mánuðina apríl,
maí og júní og alls sex milljarðar á
fyrstu sex mánuðum ársins.
24,7
stiga hiti mældist á Patreksfirði
í hitabylgju sem gekk yfir landið
síðastliðinn sunnudag.
Aðalhagfræðingur Ís-
landsbanka telur líklegt
að hærri fargjöld muni
draga úr eftirspurn eftir
flugi. Dósent í hagfræði
segir vöxt Keflavíkur-
flugvallar sem flutninga-
miðju hafa verið drif-
kraftinn að baki fjölgun
ferðamanna.
4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-4
5
3
0
2
0
8
8
-4
3
F
4
2
0
8
8
-4
2
B
8
2
0
8
8
-4
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K