Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 20
Þetta eru skelfilegar fréttir, það er hræðilegt þegar ung manneskja deyr vegna ofskömmt-unar lyfja,“ segir Val-gerður Rúnarsdóttir,
forstjóri Vogs, um þau dauðsföll
sem hafa orðið vegna lyfjaeitrunar.
Á sama tíma er aukið framboð á
fíknilyfjum á svörtum markaði.
Á ávanabindandi róandi lyfjum á
borð við Xanax og sterkum mor-
fínlyfjum á borð við OxyContin og
kódín.
„Það verður að koma í ljós þegar
lengra er liðið á árið hversu margir
af þeim sem eru látnir voru að neyta
umræddra lyfja. Stundum er tilfinn-
ing manns rétt þegar upp er staðið
en stundum ekki,“ segir Valgerður. „Í
nokkrum löndum heims geisar far-
aldur dauðsfalla vegna neyslu mor-
fínskyldra lyfja. Þar eru neytendur
á öllum aldri,“ segir hún og segir
óvíst að hér á landi séu skilyrði fyrir
svipuðum faraldri. Íslenskt samfélag
sé vel til þess fallið að bregðast við
með skjótum hætti. Það þurfi að
auka verulega fræðslu ungmenna
um hættur fíknilyfjaneyslu.
„Ungt fólk er skynsamt. Það þarf
að láta það vita að þær upplýsingar
sem sölumenn fíknilyfjanna láta
fylgja um þau eru yfirleitt mjög
rangar. Þau þurfa að fá að vita það
og taka sjálfstæða ákvörðun. Þau
átta sig þá flest á því að það getur
verið lífshættulegt að taka aðeins
eina töflu. Bara ein tafla getur verið
banvæn. Það er mín reynsla að ungt
fólk er skynsamt og lætur ekki segja
sér hvað sem er. Við skulum ekki
gleyma fjárhagslega ávinningnum á
bak við það að gera fólk háð þessum
lyfjum, ég held að þegar ungmenni
átta sig á leikreglunum í þessum
hættulega leik þá vilji þau ekki vera
leiksoppur,“ segir hún.
Valgerður segir neyslu fíknilyfja
ekki nýja af nálinni. En neyslu-
mynstrið sé breytt. „Það hefur
orðið aukning á neyslunni og það
eru fleiri sem misnota lyf. Yngsti
hópurinn notar fíknilyfin með
öðrum vímugjöfum. Í eldri hópum
hefur svo orðið aukning á neyslu
sterkra ópíóða sem er sprautað í
æð,“ segir Valgerður. „Þetta er slæm
og hættuleg viðbót því ef fólk tekur
þessi lyf að staðaldri þá verður það
líkamlega háð þeim. Þannig halda
fíknilyfin fólki í vítahring sem er
erfitt að komast úr.“
Valgerður segir skilningsleysi
stjórnvalda algjört á þörf fyrir með-
ferðarúrræði. „Þau leggja ekkert til
þrátt fyrir aukninguna. Við rekum
tvær göngudeildir, eina í Efsta-
leiti og aðra á Akureyri. Við rekum
þær án ríkisframlags og höfum verið
án samnings í nokkur undanfarin
ár. Við þurfum að loka göngudeild-
inni á Akureyri vegna fjárskorts.
Við myndum vilja efla starf göngu-
deildanna, það væri hægt að reka
þar nokkurs konar bráðamóttöku
þangað sem hægt væri að koma, fá
meiri þjónustu, faglegt mat ráðlegg-
ingar og önnur stuðningsúrræði,“
segir Valgerður.
Hún bendir á að ungt fólk þurfi
ekki að bíða lengi eftir því að
komast í meðferð á sjúkrahúsið
Vog. „Við tökum við ungmennum
í meðferð og sárafáir þurfa að bíða
sem eru undir tvítugu. Þá langar
mig að benda á að alla þriðjudaga
klukkan sex á göngudeild Vogs
erum við með fræðslufyrirlestur og
stuðningsfundi fyrir foreldra ung-
menna í neyslu. Á fundinum er sál-
fræðingur eða ráðgjafar ungmenna,
þessir fundir hafa reynst foreldrum
mjög vel, sama hvort börn þeirra
fara í meðferð eða ekki,“ segir hún.
„Barnavernd sinnir þeim sem eru
undir átján ára aldri og eru með
alls kyns úrræði og inngrip sem for-
eldrar geta nýtt sér,“ bendir hún á.
Meðferð vegna neyslu fíknilyfja
getur falið í sér lyfjagjöf.
„Ef neyslan er aðallega á fylleríum
þá eru þau ekki orðin líkamlega
háð þessum lyfjum til lengri tíma.
En stundum þurfum við að gefa lyf
í smá tíma í meðferðarskyni og þá
tekur við meðferð við fíknisjúk-
dómnum. Þeir sem eru með fíkn
þurfa meðferð við henni. En það
er mikilvægt að halda því til haga
að ekki eru allir sem neyta þessara
fíknilyfja með fíknisjúkdóm. Sumir
fikta við þetta. En þá er enn og aftur
mikilvægt að brýna fyrir ungu fólki
að fiktið er gríðarlega hættulegt.
Ein tafla
getur verið
banvæn
Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs, segir
neyslu fíknilyfja hættulega viðbót. Ef fólk
taki lyfin að staðaldri verði það líkamlega
háð þeim. Hún segir stjórnvöld skilnings-
laus gagnvart vandanum en til stendur að
loka göngudeild SÁÁ á Akureyri vegna fjár-
skorts. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur skipað stýrihóp sem hefur
það að markmiði að bæta þjónustu við
ungmenni í neysluvanda.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-ráðherra hefur skipað stýrihóp sem hefur að markmiði að bæta
þjónustu til ungmenna í neyslu-
vanda. Stýrihópinn skipaði hún
eftir vinnustofu um málefni barna
og ungmenna sem glíma við neyslu-
vanda.
„Markmiðið með vinnustofunni
var að ræða framtíðarfyrirkomulag
áfengis- og vímuefnameðferðar fyrir
börn og ungmenni, hvernig efla megi
bráðaþjónustu við þennan hóp og
tryggja samfellu í þjónustunni.
Vinnustofan stóð í heilan dag þar
sem fulltrúar frá Landspítala, Barna-
verndarstofu, umboðsmanni barna,
Reykjavíkurborg, Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins, Olnbogabörn-
um, SÁÁ, Embætti landlæknis og
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
deildu þekkingu sinni og reynslu,
ræddu hvað megi betur fara og
hvaða leiðir að bættu fyrirkomulagi
séu æskilegar að þeirra mati,“ segir
Svandís og segir að farið hafi verið
yfir stöðuna, þau úrræði sem eru til
staðar og til hvaða aðgerða þurfi að
grípa til að bregðast við vandanum.
„Í kjölfarið var skipaður stýri-
hópur með fulltrúum heil-
brigðisráðherra, félags- og jafn-
réttismálaráðherra, Landspítala
og Barnaverndarstofu til að vinna
að þessum málum á grundvelli
þeirra hugmynda sem rætt var um
á vinnufundinum. Ég tel að hér hafi
verið tekið mikilvægt skref sem
muni auðvelda samstarf aðila. Ég
hef miklar væntingar til starfs þess
hóps,“ segir Svandís.
Hún segir brýnustu verkefnin
snúa að tiltölulega fámennum hópi
sem þurfi mikla þjónustu. „Það
skiptir miklu máli að greina vanda
barna eins fljótt og auðið er þann-
ig að þeim bjóðist viðeigandi þjón-
ustuúrræði þegar þörf er á. Börn sem
eru með geð- eða þroskaraskanir af
öðrum toga en fíknivanda þurfa
t.a.m. annars konar og sérhæfðari
meðferð en börn með fíknivanda
sem ekki glíma við viðbótarvanda.
Það þarf að efla samvinnu félags-,
heilbrigðis- og menntakerfisins og
gæta þess ávallt að einstaklingurinn
falli ekki milli þeirra þjónustukerfa
sem eru til staðar. Því er nauðsyn-
Meðferðarúrræði of einsleit
24 lyfjatengd andlát
til skoðunar
Lyfjateymi Embættis landlæknis
fær til skoðunar matsgerðir eftir
lyfjaleit í látnum einstaklingum. Í
júnímánuði greindi Fréttablaðið
frá því að þær væru nítján talsins.
Nú eru komnar 24 slíkar mats-
gerðir á þessu ári. Grunur er um
að eitrun hafi valdið þessum
dauðsföllum en ekki er víst að
þau flokkist sem slík í dánar-
meinaskrá.
Andlátin eru mikilvæg vís-
bending um það sem er að gerast
hjá fólki í þessum vanda sem
getur verið mikill fíknivandi af
ýmsum toga.
Árið 2017 voru lyfjatengd
andlát 30 eftir flokkun dánar-
meinaskrár.
11% barna í 10. bekk sögðust hafa neytt
róandi ávanabindandi lyfja
„Aukningin er mikil. Árið 2012
sögðust um sjö prósent nem-
enda hafa neytt róandi ávana-
bindandi lyfja, í ár svara ellefu
prósent því játandi að hafa neytt
slíkra lyfja,“ sagði Álfgeir Krist-
jánsson, dósent í sálfræði við
ríkis háskóla Vestur-Virginíu, í við-
tali við Fréttablaðið fyrr í sumar.
Álfgeir starfar einnig við Há-
skólann í Reykjavík og hjá Rann-
sóknum & greiningu og sagðist
telja að einhverju leyti mega
rekja vandann til lyfjamenningar
og vanþekkingar á innihaldi lyfja.
„Ég held að það sé ástæða til að
hafa áhyggjur af því að hópur
ungs fólks sem neyti þessara
lyfja sé enn stærri. Það er alþekkt
að ungmenni sem eru í mikilli
neyslu svara ekki endilega svona
könnunum,“ sagði hann.
Gagnasöfnun fór fram með
spurningalistakönnun í febrúar á
þessu ári á vegum Rannsókna &
greiningar sem reglulega kannar
vímuefnaneyslu unglinga.
Við höfum séð talsverðan sam-
drátt í neyslu á áfengi og kanna-
bisefnum. Og í reykingum, en
svo sjáum við aukningu í þessum
lið. Það þarf aukna fræðslu, því
það er ekki bara ungt fólk sem
telur lyfin skaðlausari en önnur
fíkniefni. Almenningur er líka
grandalaus,“ sagði Álfgeir.
legt að skýra verkferla þannig að
öll meðferð og þjónusta gangi fyrir
sig eins snurðulaust og mögulegt er.
Samstarf ráðuneyta er mikilvægt í
þessum efnum og ég hef þegar hafið
samtal við félags- og jafnréttismála-
ráðherra um þessi mál,“ segir Svan-
dís frá.
„Það þurfa allir að hjálpast að.
Öll kerfi þurfa að vinna saman. Eitt
af því sem kom fram á fyrrnefndri
vinnustofu er að það verði komið
á fót þjónustumiðstöð sem sé opin
allan sólarhringinn fyrir börn og
fjölskyldur þeirra – svo allir fái
úrræði við hæfi.
Það var líka nefnt að meðferð-
arúrræði væru of eins leit og við
þurfum örugglega að skoða það.
Sumum þeirra tillagna sem komu
fram á vinnustofunni er hægt að
hrinda í framkvæmd þegar í stað,
til að mynda tillögum um samstarf
meðferðar- og þjónustuaðila og
samræmt verklag þeirra sem veita
þjónustu. Miklu máli skiptir að
við höfum nú tillögur, sem verða
útfærðar nánar,“ segir Svandís.
– kbg
Ungt fólk er skynsamt.
Það Þarf að láta Það
vita að Þær Upplýsing-
ar sem sölUmenn fíkni-
lyfjanna láta fylgja
Um ÞaU erU yfirleitt
mjög rangar34
2008
25
2016
30
2017
24
2018
janúar
til júlí
Lyfjatengd andlát
Noridcphotos/Getty eitt af Því
sem kom
fram á fyrrnefndri
vinnUstofU er að Það
verði komið á fót
ÞjónUstUmiðstöð
sem sé opin allan
sólarhringinn fyrir
börn og fjölskyldUr
Þeirra – svo allir
fái úrræði við hæfi.
4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R20 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-4
F
1
0
2
0
8
8
-4
D
D
4
2
0
8
8
-4
C
9
8
2
0
8
8
-4
B
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K