Fréttablaðið - 04.08.2018, Page 20

Fréttablaðið - 04.08.2018, Page 20
Þetta eru skelfilegar fréttir, það er hræðilegt þegar ung manneskja deyr vegna ofskömmt-unar lyfja,“ segir Val-gerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs, um þau dauðsföll sem hafa orðið vegna lyfjaeitrunar. Á sama tíma er aukið framboð á fíknilyfjum á svörtum markaði. Á ávanabindandi róandi lyfjum á borð við Xanax og sterkum mor- fínlyfjum á borð við OxyContin og kódín. „Það verður að koma í ljós þegar lengra er liðið á árið hversu margir af þeim sem eru látnir voru að neyta umræddra lyfja. Stundum er tilfinn- ing manns rétt þegar upp er staðið en stundum ekki,“ segir Valgerður. „Í nokkrum löndum heims geisar far- aldur dauðsfalla vegna neyslu mor- fínskyldra lyfja. Þar eru neytendur á öllum aldri,“ segir hún og segir óvíst að hér á landi séu skilyrði fyrir svipuðum faraldri. Íslenskt samfélag sé vel til þess fallið að bregðast við með skjótum hætti. Það þurfi að auka verulega fræðslu ungmenna um hættur fíknilyfjaneyslu. „Ungt fólk er skynsamt. Það þarf að láta það vita að þær upplýsingar sem sölumenn fíknilyfjanna láta fylgja um þau eru yfirleitt mjög rangar. Þau þurfa að fá að vita það og taka sjálfstæða ákvörðun. Þau átta sig þá flest á því að það getur verið lífshættulegt að taka aðeins eina töflu. Bara ein tafla getur verið banvæn. Það er mín reynsla að ungt fólk er skynsamt og lætur ekki segja sér hvað sem er. Við skulum ekki gleyma fjárhagslega ávinningnum á bak við það að gera fólk háð þessum lyfjum, ég held að þegar ungmenni átta sig á leikreglunum í þessum hættulega leik þá vilji þau ekki vera leiksoppur,“ segir hún. Valgerður segir neyslu fíknilyfja ekki nýja af nálinni. En neyslu- mynstrið sé breytt. „Það hefur orðið aukning á neyslunni og það eru fleiri sem misnota lyf. Yngsti hópurinn notar fíknilyfin með öðrum vímugjöfum. Í eldri hópum hefur svo orðið aukning á neyslu sterkra ópíóða sem er sprautað í æð,“ segir Valgerður. „Þetta er slæm og hættuleg viðbót því ef fólk tekur þessi lyf að staðaldri þá verður það líkamlega háð þeim. Þannig halda fíknilyfin fólki í vítahring sem er erfitt að komast úr.“ Valgerður segir skilningsleysi stjórnvalda algjört á þörf fyrir með- ferðarúrræði. „Þau leggja ekkert til þrátt fyrir aukninguna. Við rekum tvær göngudeildir, eina í Efsta- leiti og aðra á Akureyri. Við rekum þær án ríkisframlags og höfum verið án samnings í nokkur undanfarin ár. Við þurfum að loka göngudeild- inni á Akureyri vegna fjárskorts. Við myndum vilja efla starf göngu- deildanna, það væri hægt að reka þar nokkurs konar bráðamóttöku þangað sem hægt væri að koma, fá meiri þjónustu, faglegt mat ráðlegg- ingar og önnur stuðningsúrræði,“ segir Valgerður. Hún bendir á að ungt fólk þurfi ekki að bíða lengi eftir því að komast í meðferð á sjúkrahúsið Vog. „Við tökum við ungmennum í meðferð og sárafáir þurfa að bíða sem eru undir tvítugu. Þá langar mig að benda á að alla þriðjudaga klukkan sex á göngudeild Vogs erum við með fræðslufyrirlestur og stuðningsfundi fyrir foreldra ung- menna í neyslu. Á fundinum er sál- fræðingur eða ráðgjafar ungmenna, þessir fundir hafa reynst foreldrum mjög vel, sama hvort börn þeirra fara í meðferð eða ekki,“ segir hún. „Barnavernd sinnir þeim sem eru undir átján ára aldri og eru með alls kyns úrræði og inngrip sem for- eldrar geta nýtt sér,“ bendir hún á. Meðferð vegna neyslu fíknilyfja getur falið í sér lyfjagjöf. „Ef neyslan er aðallega á fylleríum þá eru þau ekki orðin líkamlega háð þessum lyfjum til lengri tíma. En stundum þurfum við að gefa lyf í smá tíma í meðferðarskyni og þá tekur við meðferð við fíknisjúk- dómnum. Þeir sem eru með fíkn þurfa meðferð við henni. En það er mikilvægt að halda því til haga að ekki eru allir sem neyta þessara fíknilyfja með fíknisjúkdóm. Sumir fikta við þetta. En þá er enn og aftur mikilvægt að brýna fyrir ungu fólki að fiktið er gríðarlega hættulegt. Ein tafla getur verið banvæn Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs, segir neyslu fíknilyfja hættulega viðbót. Ef fólk taki lyfin að staðaldri verði það líkamlega háð þeim. Hún segir stjórnvöld skilnings- laus gagnvart vandanum en til stendur að loka göngudeild SÁÁ á Akureyri vegna fjár- skorts. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur skipað stýrihóp sem hefur það að markmiði að bæta þjónustu við ungmenni í neysluvanda. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-ráðherra hefur skipað stýrihóp sem hefur að markmiði að bæta þjónustu til ungmenna í neyslu- vanda. Stýrihópinn skipaði hún eftir vinnustofu um málefni barna og ungmenna sem glíma við neyslu- vanda. „Markmiðið með vinnustofunni var að ræða framtíðarfyrirkomulag áfengis- og vímuefnameðferðar fyrir börn og ungmenni, hvernig efla megi bráðaþjónustu við þennan hóp og tryggja samfellu í þjónustunni. Vinnustofan stóð í heilan dag þar sem fulltrúar frá Landspítala, Barna- verndarstofu, umboðsmanni barna, Reykjavíkurborg, Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins, Olnbogabörn- um, SÁÁ, Embætti landlæknis og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu deildu þekkingu sinni og reynslu, ræddu hvað megi betur fara og hvaða leiðir að bættu fyrirkomulagi séu æskilegar að þeirra mati,“ segir Svandís og segir að farið hafi verið yfir stöðuna, þau úrræði sem eru til staðar og til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bregðast við vandanum. „Í kjölfarið var skipaður stýri- hópur með fulltrúum heil- brigðisráðherra, félags- og jafn- réttismálaráðherra, Landspítala og Barnaverndarstofu til að vinna að þessum málum á grundvelli þeirra hugmynda sem rætt var um á vinnufundinum. Ég tel að hér hafi verið tekið mikilvægt skref sem muni auðvelda samstarf aðila. Ég hef miklar væntingar til starfs þess hóps,“ segir Svandís. Hún segir brýnustu verkefnin snúa að tiltölulega fámennum hópi sem þurfi mikla þjónustu. „Það skiptir miklu máli að greina vanda barna eins fljótt og auðið er þann- ig að þeim bjóðist viðeigandi þjón- ustuúrræði þegar þörf er á. Börn sem eru með geð- eða þroskaraskanir af öðrum toga en fíknivanda þurfa t.a.m. annars konar og sérhæfðari meðferð en börn með fíknivanda sem ekki glíma við viðbótarvanda. Það þarf að efla samvinnu félags-, heilbrigðis- og menntakerfisins og gæta þess ávallt að einstaklingurinn falli ekki milli þeirra þjónustukerfa sem eru til staðar. Því er nauðsyn- Meðferðarúrræði of einsleit 24 lyfjatengd andlát til skoðunar Lyfjateymi Embættis landlæknis fær til skoðunar matsgerðir eftir lyfjaleit í látnum einstaklingum. Í júnímánuði greindi Fréttablaðið frá því að þær væru nítján talsins. Nú eru komnar 24 slíkar mats- gerðir á þessu ári. Grunur er um að eitrun hafi valdið þessum dauðsföllum en ekki er víst að þau flokkist sem slík í dánar- meinaskrá. Andlátin eru mikilvæg vís- bending um það sem er að gerast hjá fólki í þessum vanda sem getur verið mikill fíknivandi af ýmsum toga. Árið 2017 voru lyfjatengd andlát 30 eftir flokkun dánar- meinaskrár. 11% barna í 10. bekk sögðust hafa neytt  róandi ávanabindandi lyfja „Aukningin er mikil. Árið 2012 sögðust um sjö prósent nem- enda hafa neytt róandi ávana- bindandi lyfja, í ár svara ellefu prósent því játandi að hafa neytt slíkra lyfja,“ sagði Álfgeir Krist- jánsson, dósent í sálfræði við ríkis háskóla Vestur-Virginíu, í við- tali við Fréttablaðið fyrr í sumar. Álfgeir starfar einnig við Há- skólann í Reykjavík og hjá Rann- sóknum & greiningu og sagðist telja að einhverju leyti mega rekja vandann til lyfjamenningar og vanþekkingar á innihaldi lyfja. „Ég held að það sé ástæða til að hafa áhyggjur af því að hópur ungs fólks sem neyti þessara lyfja sé enn stærri. Það er alþekkt að ungmenni sem eru í mikilli neyslu svara ekki endilega svona könnunum,“ sagði hann. Gagnasöfnun fór fram með spurningalistakönnun í febrúar á þessu ári á vegum Rannsókna & greiningar sem reglulega kannar vímuefnaneyslu unglinga. Við höfum séð talsverðan sam- drátt í neyslu á áfengi og kanna- bisefnum. Og í reykingum, en svo sjáum við aukningu í þessum lið. Það þarf aukna fræðslu, því það er ekki bara ungt fólk sem telur lyfin skaðlausari en önnur fíkniefni. Almenningur er líka grandalaus,“ sagði Álfgeir. legt að skýra verkferla þannig að öll meðferð og þjónusta gangi fyrir sig eins snurðulaust og mögulegt er. Samstarf ráðuneyta er mikilvægt í þessum efnum og ég hef þegar hafið samtal við félags- og jafnréttismála- ráðherra um þessi mál,“ segir Svan- dís frá. „Það þurfa allir að hjálpast að. Öll kerfi þurfa að vinna saman. Eitt af því sem kom fram á fyrrnefndri vinnustofu er að það verði komið á fót þjónustumiðstöð sem sé opin allan sólarhringinn fyrir börn og fjölskyldur þeirra – svo allir fái úrræði við hæfi. Það var líka nefnt að meðferð- arúrræði væru of eins leit og við þurfum örugglega að skoða það. Sumum þeirra tillagna sem komu fram á vinnustofunni er hægt að hrinda í framkvæmd þegar í stað, til að mynda tillögum um samstarf meðferðar- og þjónustuaðila og samræmt verklag þeirra sem veita þjónustu. Miklu máli skiptir að við höfum nú tillögur, sem verða útfærðar nánar,“ segir Svandís. – kbg Ungt fólk er skynsamt. Það Þarf að láta Það vita að Þær Upplýsing- ar sem sölUmenn fíkni- lyfjanna láta fylgja Um ÞaU erU yfirleitt mjög rangar34 2008 25 2016 30 2017 24 2018 janúar til júlí Lyfjatengd andlát Noridcphotos/Getty eitt af Því sem kom fram á fyrrnefndri vinnUstofU er að Það verði komið á fót ÞjónUstUmiðstöð sem sé opin allan sólarhringinn fyrir börn og fjölskyldUr Þeirra – svo allir fái úrræði við hæfi. 4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R20 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 8 -4 F 1 0 2 0 8 8 -4 D D 4 2 0 8 8 -4 C 9 8 2 0 8 8 -4 B 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.