Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 44
Tryggvi Aðalbjörnsson blaðamaður lauk í vor meistaragráðu við Columbia School of Journalism. Nú starfar hann á New York Times og átti nýverið eina aðal- fréttina á forsíðu dagblaðsins ásamt Hiroko Tabuchi. „Ég vinn hér í sumar. Blaðið tekur inn á milli 20 og 30 manns yfir sum- arið. Ég vinn á deild sem skrifar um loftslagsbreytingar og umhverfis- mál. Hiroko var hluti af teymi sem fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir nokkrum árum og það er einstakt tækifæri að fá að vinna náið með reyndum rannsóknarblaðamanni hjá New York Times,“ segir Tryggvi sem gaf sér nokkrar mínútur frá vinnu til að segja frá lífi og störfum í New York. „Díoxín-lögmaðurinn“ Frétt Tryggva og Hiroko sem rataði á forsíðu blaðsins fjallaði um til- nefningu Donalds Trump á lög- manninum Peter C. Wright í yfir- mannsstöðu hjá Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (E.P.A). Peter á að bera ábyrgð á hreinsun á eitur- efnaúrgangi. Hiroko og Tryggvi grófu upp álitamál úr störfum Wrights sem starfaði í mörg ár sem lögfræðingur Dow Chemical, einum mesta eitur- efnaframleiðanda veraldar og var þá gagnrýndur af E.P.A fyrir seina- gang og fyrirslátt um að hreinsa upp úrgang. Peter Wright  kallaði sig einu sinni „díoxín-lögmanninn“. „Við unnum að fréttinni í nokkrar vikur og fórum meðal annars til Michigan þar sem höfuðstöðvar Dow Chemical eru staðsettar. Bandaríska umhverfisverndarstofn- unin er með mjög metnaðarfulla áætlun sem var sett af stað 1980 í þeim tilgangi að hreinsa upp eitur- efnaúrgang í kringum iðnað víða í landinu. Þetta hefur tekið langan tíma, oft er bæði erfitt og dýrt að hreinsa upp úrganginn og svo þarf að semja við fyrirtækin sem geta þurft að reiða fram háar fjárhæðir,“ segir Tryggvi og varpar ljósi á þýð- ingu fréttarinnar. 1.450 blaðamenn Tryggvi segir þetta í grunninn ekki ólíkt því að vinna á íslenskum fjöl- miðli en umfangið stærra, sem breytir miklu. Hann starfaði á RÚV áður en hann fór í nám í Columbia. Hann hlaut Blaðamannaverðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins árið 2017 fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. á dýraverndar- lögum og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin. „Umfangið hér er svo miklu meira. Það starfa um það bil 1.450 blaðamenn fyrir New York Times. Möguleikar blaðamanna til að fjalla ítarlega um einstök mál og verja tíma og orku í rannsóknir eru þess vegna miklu meiri hér en á Íslandi. Það er ekki hægt að líkja því saman,“ bendir hann á. Hann segir þó litlar fréttastofur margs megnugar. Sér í lagi þegar fréttamenn vinna saman að stærra efni eins og raunin var í Brúneggja- málinu. „Við vorum búin að vera að safna gögnum lengi og málið vatt upp á sig á meðan við vorum að vinna það. Við unnum náið saman, ég og Þóra Arnórsdóttir og pródú- sentarnir í þættinum. Þetta var mjög mikil hópvinna og samstarf. Það er bæði hollt og gott að vinna með öðrum að málum annað slagið, sérstaklega ef þetta eru stór og erfið mál,“ segir Tryggvi. Fyrstu kynnin af fréttum Tryggvi er fæddur og uppalinn á Vopnafirði. Þaðan lá leið hans í Menntaskólann á Akureyri.  „Ég flutti svo suður og ætlaði í Háskóla Íslands. Ég hætti fljótt þar og fékk tímabundna vinnu hjá Saga Film. Ég vann þar í stuttan tíma þangað til ég fékk vinnu sem fréttaklippari hjá RÚV. Það voru fyrstu kynni mín af fréttum,“ segir Tryggvi sem segist lengi hafa haft áhuga á fréttum. „Ég hafði bæði áhuga á fréttamennsku og svo kvikmyndagerð. Ég vann við að klippa fréttir hjá RÚV í eitt og hálft ár áður en ég fór út í nám í kvikmyndagerð til Los Angeles. Eftir að ég lauk því námi ákvað ég að fara aftur heim til Íslands og þá fékk ég vinnu á fréttastofunni við að skrifa fréttir,“ segir Tryggvi um leið sína inn í heim fréttamennsku. Tryggvi segist að sjálfsögðu geta hugsað sér að starfa áfram á New York Times. Hann sé þó aðeins ráðinn í sumar. „Það er alveg óráðið hvað ég geri næst,“ segir hann en hann mun mögulega  búa áfram í borginni um hríð því kærasta hans, Hallfríður  Þóra Tryggva- dóttir, stundar nám við Columbia í leikhúsfræðum og á eitt ár eftir af því námi. Vísindi og fréttir „Það er ótrúlega gaman að búa hér. Maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt, þetta er svo mikill suðupottur menningarheima. Við búum á Man- hattan, í hverfi sem heitir Morn- ingside Heights, rétt hjá skólanum. Námið var eiginlega ólýsanlegt. Ég hafði horft til þessa skóla í einhvern tíma og heimsótti hann árið 2016. Þetta prógramm er fyrir þá sem hafa unnið í blaðamennsku og vilja sér- hæfa sig. Ég sérhæfði mig í að fjalla um vísindi og umhverfismál. Það er mjög þarft því vísindi snerta á svo mörgum málaflokkum sem eru til umfjöllunar í fjölmiðlum. Það skiptir þá máli að geta áttað sig á því hvernig vísindamenn hugsa, hvernig rannsóknir fara fram og hvernig tölur eru settar fram og svo framvegis. Þetta var mjög fjölbreytt og skemmtilegt nám,“ segir Tryggvi að lokum. Landaði frétt á forsíðu New York Times „Einstakt tækifæri,“ segir Tryggvi Aðalbjörnsson blaðamaður sem starfar í sumar hjá einum virtasta fjöl- miðli heims, New York Times. Tryggvi hlaut blaðamannaverðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku árið 2017 vegna umfjöllunar um brot Brúneggja á dýraverndarlögum og svik við neytendur. „Þetta er svo mikill suðupottur menningarheima,“ segir Tryggvi Aðalbjörnsson sem býr í New York og starfar í sumar hjá New York Times. MYND/AÐSEND UMFANGIÐ HÉR ER SVO MIKLU MEIRA. ÞAÐ STARFA UM ÞAÐ BIL 1.450 BLAÐAMENN FYRIR NEW YORK TIMES. MÖGULEIKAR BLAÐAMANNA TIL AÐ FJALLA ÍTARLEGA UM EIN- STÖK MÁL OG VERJA TÍMA OG ORKU Í RANNSÓKNIR ERU ÞESS VEGNA MIKLU MEIRI HÉR EN Á ÍSLANDI. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 8 8 -5 D E 0 2 0 8 8 -5 C A 4 2 0 8 8 -5 B 6 8 2 0 8 8 -5 A 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.