Fréttablaðið - 04.08.2018, Blaðsíða 44
Tryggvi Aðalbjörnsson blaðamaður lauk í vor meistaragráðu við Columbia School of Journalism. Nú starfar hann á New York
Times og átti nýverið eina aðal-
fréttina á forsíðu dagblaðsins ásamt
Hiroko Tabuchi.
„Ég vinn hér í sumar. Blaðið tekur
inn á milli 20 og 30 manns yfir sum-
arið. Ég vinn á deild sem skrifar um
loftslagsbreytingar og umhverfis-
mál. Hiroko var hluti af teymi
sem fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir
nokkrum árum og það er einstakt
tækifæri að fá að vinna náið með
reyndum rannsóknarblaðamanni
hjá New York Times,“ segir Tryggvi
sem gaf sér nokkrar mínútur frá
vinnu til að segja frá lífi og störfum
í New York.
„Díoxín-lögmaðurinn“
Frétt Tryggva og Hiroko sem rataði
á forsíðu blaðsins fjallaði um til-
nefningu Donalds Trump á lög-
manninum Peter C. Wright í yfir-
mannsstöðu hjá Umhverfisstofnun
Bandaríkjanna (E.P.A). Peter á að
bera ábyrgð á hreinsun á eitur-
efnaúrgangi. Hiroko og Tryggvi grófu
upp álitamál úr störfum Wrights sem
starfaði í mörg ár sem lögfræðingur
Dow Chemical, einum mesta eitur-
efnaframleiðanda veraldar og var
þá gagnrýndur af E.P.A fyrir seina-
gang og fyrirslátt um að hreinsa upp
úrgang. Peter Wright kallaði sig einu
sinni „díoxín-lögmanninn“.
„Við unnum að fréttinni í nokkrar
vikur og fórum meðal annars til
Michigan þar sem höfuðstöðvar
Dow Chemical eru staðsettar.
Bandaríska umhverfisverndarstofn-
unin er með mjög metnaðarfulla
áætlun sem var sett af stað 1980 í
þeim tilgangi að hreinsa upp eitur-
efnaúrgang í kringum iðnað víða í
landinu. Þetta hefur tekið langan
tíma, oft er bæði erfitt og dýrt að
hreinsa upp úrganginn og svo þarf
að semja við fyrirtækin sem geta
þurft að reiða fram háar fjárhæðir,“
segir Tryggvi og varpar ljósi á þýð-
ingu fréttarinnar.
1.450 blaðamenn
Tryggvi segir þetta í grunninn ekki
ólíkt því að vinna á íslenskum fjöl-
miðli en umfangið stærra, sem
breytir miklu. Hann starfaði á RÚV
áður en hann fór í nám í Columbia.
Hann hlaut Blaðamannaverðlaun
fyrir rannsóknarblaðamennsku
ársins árið 2017 fyrir umfjöllun um
brot Brúneggja ehf. á dýraverndar-
lögum og svik við neytendur og
máttleysi eftirlitsstofnana til að
takast á við brotin.
„Umfangið hér er svo miklu
meira. Það starfa um það bil 1.450
blaðamenn fyrir New York Times.
Möguleikar blaðamanna til að fjalla
ítarlega um einstök mál og verja
tíma og orku í rannsóknir eru þess
vegna miklu meiri hér en á Íslandi.
Það er ekki hægt að líkja því saman,“
bendir hann á.
Hann segir þó litlar fréttastofur
margs megnugar. Sér í lagi þegar
fréttamenn vinna saman að stærra
efni eins og raunin var í Brúneggja-
málinu. „Við vorum búin að vera að
safna gögnum lengi og málið vatt
upp á sig á meðan við vorum að
vinna það. Við unnum náið saman,
ég og Þóra Arnórsdóttir og pródú-
sentarnir í þættinum. Þetta var
mjög mikil hópvinna og samstarf.
Það er bæði hollt og gott að vinna
með öðrum að málum annað slagið,
sérstaklega ef þetta eru stór og erfið
mál,“ segir Tryggvi.
Fyrstu kynnin af fréttum
Tryggvi er fæddur og uppalinn á
Vopnafirði. Þaðan lá leið hans í
Menntaskólann á Akureyri. „Ég
flutti svo suður og ætlaði í Háskóla
Íslands. Ég hætti fljótt þar og fékk
tímabundna vinnu hjá Saga Film.
Ég vann þar í stuttan tíma þangað
til ég fékk vinnu sem fréttaklippari
hjá RÚV. Það voru fyrstu kynni mín
af fréttum,“ segir Tryggvi sem segist
lengi hafa haft áhuga á fréttum. „Ég
hafði bæði áhuga á fréttamennsku
og svo kvikmyndagerð. Ég vann
við að klippa fréttir hjá RÚV í eitt
og hálft ár áður en ég fór út í nám
í kvikmyndagerð til Los Angeles.
Eftir að ég lauk því námi ákvað ég
að fara aftur heim til Íslands og þá
fékk ég vinnu á fréttastofunni við
að skrifa fréttir,“ segir Tryggvi um
leið sína inn í heim fréttamennsku.
Tryggvi segist að sjálfsögðu geta
hugsað sér að starfa áfram á New
York Times. Hann sé þó aðeins
ráðinn í sumar. „Það er alveg óráðið
hvað ég geri næst,“ segir hann en
hann mun mögulega búa áfram
í borginni um hríð því kærasta
hans, Hallfríður Þóra Tryggva-
dóttir, stundar nám við Columbia
í leikhúsfræðum og á eitt ár eftir af
því námi.
Vísindi og fréttir
„Það er ótrúlega gaman að búa hér.
Maður er alltaf að upplifa eitthvað
nýtt, þetta er svo mikill suðupottur
menningarheima. Við búum á Man-
hattan, í hverfi sem heitir Morn-
ingside Heights, rétt hjá skólanum.
Námið var eiginlega ólýsanlegt. Ég
hafði horft til þessa skóla í einhvern
tíma og heimsótti hann árið 2016.
Þetta prógramm er fyrir þá sem hafa
unnið í blaðamennsku og vilja sér-
hæfa sig. Ég sérhæfði mig í að fjalla
um vísindi og umhverfismál. Það
er mjög þarft því vísindi snerta á
svo mörgum málaflokkum sem eru
til umfjöllunar í fjölmiðlum. Það
skiptir þá máli að geta áttað sig á
því hvernig vísindamenn hugsa,
hvernig rannsóknir fara fram og
hvernig tölur eru settar fram og svo
framvegis. Þetta var mjög fjölbreytt
og skemmtilegt nám,“ segir Tryggvi
að lokum.
Landaði frétt á forsíðu
New York Times
„Einstakt tækifæri,“ segir Tryggvi Aðalbjörnsson blaðamaður sem starfar í sumar hjá einum virtasta fjöl-
miðli heims, New York Times. Tryggvi hlaut blaðamannaverðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku árið
2017 vegna umfjöllunar um brot Brúneggja á dýraverndarlögum og svik við neytendur.
„Þetta er svo mikill suðupottur menningarheima,“ segir Tryggvi Aðalbjörnsson sem býr í New York og starfar í sumar hjá New York Times. MYND/AÐSEND
UMFANGIÐ HÉR ER SVO
MIKLU MEIRA. ÞAÐ
STARFA UM ÞAÐ BIL 1.450
BLAÐAMENN FYRIR NEW
YORK TIMES. MÖGULEIKAR
BLAÐAMANNA TIL AÐ
FJALLA ÍTARLEGA UM EIN-
STÖK MÁL OG VERJA TÍMA
OG ORKU Í RANNSÓKNIR
ERU ÞESS VEGNA MIKLU
MEIRI HÉR EN Á ÍSLANDI.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
4 . Á G Ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
8
8
-5
D
E
0
2
0
8
8
-5
C
A
4
2
0
8
8
-5
B
6
8
2
0
8
8
-5
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K