Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 2
Veður
Norðvestan strekkingur og dálítil
rigning fram eftir degi á Norðaustur-
og Austurlandi, en léttir til seinni
partinn. Hægari vindur í öðrum
landshlutum, þurrt og sólríkt veður.
sjá síðu 38
Tólfti bikarmeistaratitill Blika
Kenya
Safari og strönd | 3. – 15. nóvember
Verð frá: 569.900 kr.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi
Verð án Vildarpunkta: 579.900 kr.
Fararstjórar eru Elín Þorgeirsdóttir og
Borgar Þorsteinsson.
sjávarútvegur Lilja Rafney Magn
úsdóttir, formaður atvinnuvega
nefndar og þingmaður VG, segir
eðlilegt að nýta hvali hér við land
og veiða þá ef stofnarnir eru sjálf
bærir og nýtanlegir. Viðhorf hennar
stangast á við samþykkt flokksins á
flokksþingi á Selfossi í október 2015
þar sem flokkurinn lagðist gegn
hvalveiðum.
„Mér finnst eðlilegt að þetta sé
endurmetið með reglulegum hætti.
Ég hef verið inni á þeirri skoðun að
Íslendingar eigi að viðhalda sínum
rétti til sjálfbærra veiða á þeim
hvalategundum og þeim stofnum
sem taldir eru sjálfbærir og nýtan
legir,“ segir Lilja Rafney. „Það er
alltaf full þörf á endurmati á því
ef ábendingar koma fram. Þá er
sjálfsagt að það sé gert af stjórn
völdum.“
Þetta stangast á við samþykktir
VG frá árinu 2015. „Við veiðarnar
er beitt ómannúðlegum veiði
aðferðum til að viðhalda áhuga
máli örfárra útgerðarmanna. Háum
upphæðum af opinberu fé hefur
verið kastað á glæ til að styrkja
þessa áhugamenn um hvalveiðar.
Nú er mál að linni,“ segir í sam
þykktinni.
Veiðar Hvals hf. á langreyðum
hófust aftur í síðasta mánuði eftir
tveggja ára hlé og hafa mætt mikilli
andstöðu. Einnig komust veiðarnar
í heimspressuna þegar dregið var á
land afkvæmi steypireyðar og lang
reyðar. Félagið Jarðarvinir hefur
kært þá veiði og er kæran til með
ferðar hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Lilja Rafney telur hins vegar eðli
legt að ríkið skoði þessar veiðar ef
einhver óskar þess. „Það geta komið
ábendingar frá ferðaþjónustunni til
dæmis og mér finnst sjálfsagt ef það
kemur ósk um slíkt að stjórnvöld
taki stöðuna og skoði það,“ segir
Lilja og telur orðspor Íslands ekki
hafa skaðast af þessum veiðum. „Ég
hef ekki forsendur til að meta það
og hef ekki séð rökstuðning sem
segir að það skaði okkar orðspor
heilt yfir.“ sveinn@frettabladid.is
Þingmaður VG segir
eðlilegt að veiða hval
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis, Lilja Rafney Magnúsdóttir, segir eðli-
legt að nýta sjálfbæra stofna við landið. Flokkur Lilju hefur hins vegar lagst gegn
hvalveiðum. Hún segir orðspor Íslands ekki hafa beðið hnekki af veiðunum.
Hvalveiðar hér við land hófust að nýju árið 2006. Fyrsta langreyðurin á þess-
ari öld kom til hafnar í Hvalfirðinum í júní árið 2013. Fréttablaðið/vilHelm
lilja rafney
magnúsdóttir.
Dómsmál Júlíus Vífill Ingvarsson,
fyrrverandi borgarfulltrúi, hefur
verið ákærður af héraðssaksóknara
fyrir peningaþvætti.
Ólafur Þór Hauksson héraðssak
sóknari segir að ákæran, dagsett
28. júní, hafi ekki verið birt Júlíusi
Vífli.
Júlíus Vífill segir á Facebook að
sér finnist eins og hann hafi „staðið
í veðurbáli“ síðustu tvö árin. Hér
aðssaksóknari hafi kannað ásakan
ir sem lagðar voru fram í Kastljóss
þætti um Panamaskjölin í apríl
2016 með þeirri niðurstöðu að ekki
sé fótur fyrir þeim. Hann hafi hins
vegar birt honum ákæru sem snúi
að skattamálum. Júlíus segir að það
séu honum mikil vonbrigði.
„Ég tel engar lagalegar forsendur
vera fyrir ákærunni og mun auð
vitað takast á við hana fyrir dóm
stólum. Það mál verður útkljáð á
þeim vettvangi.“ – smj
Ákærður fyrir
peningaþvætti
íþróttir Þórður Georg Lárus
son, fyrrverandi landsliðsþjálfari
kvenna í knattspyrnu, hafnar ásök
unum sem Þóra Helgadóttir, fyrr
verandi landsliðskona, bar á hann
á ráðstefnu um „Kyn og íþróttir“ á
fimmtudag.
„Þær ásakanir eiga ekki við nein
rök að styðjast. Svo langt var gengið
að vísa til þess að ég eigi að hafa
verið drukkinn í landsliðsverkefni
og reynt að fá leikmenn liðsins upp
á herbergi með mér. Þessum ásök
unum vísa ég alfarið á bug,“ segir
Þórður í yfirlýsingu.
Hafnar ásökun
landsliðskonu
Þórður kveðst aldrei hafa blandað
saman áfengi og vinnu. „Og því síður
hefði mér dottið í hug að reyna að
fá leikmenn til þess að koma upp á
herbergi með mér. Það geta þeir sem
mig þekkja vitnað til um. Það er ljóst
að ef ég hefði verið undir áhrifum
áfengis og freistað þess að misnota
stöðu mína hefði verið tekið strax á
slíku máli,“ segir Þórður. Sér sé mis
boðið að vegið sé að persónu sinni
og æru með slíkum aðdróttunum.
„Ég hef alla tíð freistað þess að
leggja mig allan fram í verkefnum
mínum, hvaða nafni sem þau
nefnast. Það kann vel að vera að
leikmenn liðsins hafi verið ósáttir
við þjálfunaraðferðir mínar, enda
lögðust þær gegn því að ég héldi
áfram með liðið. Það er eitt. Það er
hins vegar allt annað að bera mig
alvarlegum ásökunum um að ég hafi
freistað þess að misnota aðstöðu
mína. Það myndi ég aldrei gera og
vísa ég þeim ásökunum algerlega
á bug,“ segir í yfirlýsingu Þórðar
sem kveðst ekki munu tjá sig frekar
um málið. – gar
Því síður hefði mér
dottið í hug að
reyna að fá leikmenn til þess
að koma upp á herbergi.
Þórður Georg Lárusson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu
Breiðablik vann bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki 2018 eftir sigur á Stjörnunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Fögnuðu Blikakonur 2-1 sigri að
hætti hússins með mjólk í hönd enda var bikarinn endurskírður Mjólkurbikarinn í vor. Leikurinn var bráðfjörugur. Sjá síðu 16. Fréttablaðið/ernir
1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
8
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
9
-F
9
D
0
2
0
9
9
-F
8
9
4
2
0
9
9
-F
7
5
8
2
0
9
9
-F
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
7
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K