Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 10

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 10
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.volkswagen.is Við látum framtíðina rætast. Nýr Tiguan á grípandi tilboði. 4.990.000 kr. Fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur Tiguan Offroad Listaverð 5.790.000 kr. Nú bjóðum við Volkswagen Tiguan Offroad á sérstöku tilboðsverði. Skarpar línur, mikið innanrými og sniðugar tækninýjungar gera hann að spennandi kosti. Tiguan Offoad skartar ríkulegum staðalbúnaði sem eykur ánægju og öryggi í akstri. Komdu í reynsluakstur! 5 ár a áb yr gð fy lg ir fó lk sb ílu m H EK LU a ð up pf yl ltu m á kv æ ðu m á by rg ða rs ki lm ál a. Þ á er a ð fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d • M yn di n er a f T ig ua n R -L in e. INDLAND Minnst 324 eru látnir og yfir 220 þúsund hafa þurft að yfir- gefa heimili sín eftir gríðarleg flóð í indverska héraðinu Kerala. Þetta eru mestu flóð á svæðinu frá upp- hafi mælinga. Kerala er syðst á Indlandi. Mons- úntímabilið hófst í júní með tilheyr- andi rigningum. Meðalársúrkoma í héraðinu er vanalega í kringum 3.000 millimetrar en þar af fellur ríf- lega helmingur í júní, júlí og ágúst. Til samanburðar er meðalársúrkoma í Reykjavík um 850 millimetrar. Frá 1. júní hefur úrkoman í Kerala hins vegar mælst ríflega 2.000 millimetrar eða um þriðjungi meira en í venju- lega. Hið sama gildir um fjölmörg héruð Indlands en talið er að um sjö hundruð til viðbótar hafi farist í öðrum héruðum landsins frá því að monsúnregnið hófst. Eftir gífurlega rigningu síðustu daga lét náttúran undan og hafa skriður fallið í héraðinu og ár flætt yfir bakka sína. Fjölmargir hinna látnu lentu undir skriðum. Almannavarnastig í héraðinu er nú hið hæsta sem mögulegt er og hafa hundruð hermanna verið send á vettvang til koma fólki til aðstoðar. Úrhellið hefur hins vegar haft það í för með sér að allt björgunarstarf er afar torsótt. Björgunarfólk brúkar þyrlur og báta til verksins. Yfirvöld í landinu hafa fyrirskipað að fólk yfirgefi heimili sín og flýi upp á hæðir og hóla til að forðast vatns- flauminn. Vistum er dreift til fólks bæði úr lofti og á landi. Að minnsta kosti 220 þúsund manns hafast nú við í yfir 1.500 neyðarbúðum sem komið hefur verið fyrir í Kerala. „Við erum að verða vitni að ein- hverju sem hefur aldrei gerst áður í sögu Kerala,“ segir héraðsstjórinn, Pinarayi Vijayan. Stórir hlutar héraðshöfuðborgar- innar, Kochi, eru nú undir vatni. Straumurinn hefur numið á brott með sér byggingar og vegi auk þess sem járnbrautarteinar héraðsins eru ófærir. Sömu sögu er að segja af stórum plantekrum sem kemur til með að hafa áhrif á framleiðslu kaffis, tes, gúmmís og fjölmargra kryddjurta. Þá hefur flugvelli borg- arinnar verið lokað og verður hann opnaður í fyrsta lagi eftir rúma viku. Sem fyrr segir er alvanalegt að gífur legt úrhelli sé í héraðinu á þess- um árstíma en árferðið nú er með versta móti. Það má að hluta rekja til nærliggjandi héraða. Regnið hefur verið svo mikið að raforkuframleið- endur hafa neyðst til að hleypa vatni úr uppistöðulónum. Það rennur síðan sem leið liggur í gegnum Kerala og eirir engu. Ríflega fjörutíu ár renna í gegnum héraðið á leið sinni út í Arabíuhafið og sem stendur eru átta- tíu stíflur nú opnar til að freista þess að vernda mannvirkin. Umhverfisvís- indamenn hafa einnig velt því upp að offors við skógarhögg á nærliggjandi svæðum hafi ekki orðið til þess að bæta úr skák. Óttast er að ástandið haldi áfram að versna en búist er við frekari úrkomu næstu daga. joli@frettabladid.is Mestu flóð í sögu Kerala-héraðs Sem stendur er ófært er um stræti og torg héraðshöfuðborgarinnar Kochi nema á fljótandi fararkosti. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Monsúnregn á Indlandi í ár hefur verið þriðjungi meira en vant er. Neyðar- ástand ríkir í landinu og hundruð hafa látist. BELGÍA Framkvæmdastjórn ESB svar- aði ítölskum stjórnvöldum fullum hálsi í gær. Þau síðarnefndu höfðu fullyrt að útgjaldareglur ESB hefðu staðið í vegi fyrir því að hægt væri að taka vegakerfi landsins í gegn. Minnst 39 týndu lífi þegar brú á A10-hraðbrautinni, skammt frá Genúa, hrundi á þriðjudag. „Á árunum 2014-2020 mun Ítalía fá um 2,5 milljarða evra í gegnum uppbyggingarsjóð ESB til að lagfæra lesta- og vegakerfi landsins,“ sagði talsmaður framkvæmdastjórnar- innar. Sú upphæð er andvirði ríflega 300 milljarða íslenskra króna. – jóe Fengu milljarða til framkvæmda SKOTLAND Augnlinsa var fjarlægð úr auga skoskrar konu á þessu ári 28 árum eftir að hún festist undir augnloki hennar. Engan grunaði að linsan hefði verið þarna allan þennan tíma. Konan leitaði nýverið til læknis vegna fyrirferðar í auga. Mynda- taka leiddi í ljós kýli sem síðar var fjarlægt. Inni í kýlinu kom linsan í ljós. Sagt var frá atvikinu í lækna- tímaritinu British Medical Journal. Er talið að þetta sé lengsta samfellda vera linsu í auga manneskju. Konan var fjórtán ára þegar hún varð fyrir höggi og fannst önnur linsa hennar ekki eftir það. Talið var að hún hefði fallið af auganu og týnst. Síðan þá hafði hún ekki notað linsur. – jóe Með linsu fasta í auganu í 28 ár 1 8 . á G ú S T 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R10 f R é T T I R ∙ f R é T T A B L A ð I ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 9 A -3 0 2 0 2 0 9 A -2 E E 4 2 0 9 A -2 D A 8 2 0 9 A -2 C 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.