Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 82

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 82
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og frænka, Fjóla Guðjónsdóttir Salerno áður Strandgötu 43, Hafnarfirði, Steelton í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, lést í faðmi fjölskyldunnar 24. júlí. Útför hennar fór fram þann 30. júlí frá Prince of Peace – Assumption of the Blessed Virgin Mary Roman Catholic Church, Steelton í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Rose Ann Salerno Carr Martin Carr Augustin John (A.J.) Carr Jessica Carr Marietta Rose Carr Ellis Carr ættingjar og vinir á Íslandi. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Jósep Helgason Vallholti 7, Selfossi, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Lundi mánudaginn 6. ágúst, útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þuríður Blaka Gísladóttir Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og tengdasonur, Stefán Stefánsson rafeindavirki, Hraunbæ 88 lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild LSH í Kópavogi 8. ágúst sl. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 23. ágúst kl. 13. Stefanía Lind Stefánsdóttir Waage Bjarki Stefánsson Stefán Valur Stefánsson Ásdís Halldóra Lind Stefánsdóttir Helena Ásdís Brynjólfsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Kristjana Jónsdóttir lést mánudaginn 6. ágúst. Útförin hefur farið fram. Skarphéðinn Guðmundsson Guðmundur Skarphéðinsson Sólveig Sævarsdóttir Baldvin Guðmundsson Rakel Kristjánsdóttir Bjarki Guðmundsson Elín Dröfn Þorvaldsdóttir Stella Baldvinsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hrafnhildur Loreley Oddsdóttir Smáratúni 35, Keflavík, lést á Hrafnistu Nesvöllum fimmtu- daginn 9. ágúst. Útförin hefur farið fram. Ragnar Þór Ágústsson Sigurlaug Oddný Björnsdóttir Guðmundur Þorleifsson Ágúst Ragnarsson Anna Þóra Skarphéðinsd. Ragnar Sær Ragnarsson Unnur Ágústa Sigurjónsd. Sigríður Ragnarsdóttir Berglind Ragnarsdóttir Ingvar Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, Þorsteinn Matthíasson verkamaður, Hraunbæ 158, er látinn. Útför hans verður gerð frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 22. ágúst klukkan 15.00. Halldóra Sigríður Gunnarsdóttir Guðrún Anna Matthíasdóttir Raphaêl Leroux Jón Gunnar Bjarkan Tatiana Kalinichenko María Salóme Bjarkan Ástkær móðir mín, amma og langamma, Zoila Gloria Guerrero frá Kólumbíu, lést á Hrafnistu í Reykjavík 14. ágúst. Útförin fer fram frá St. Jósefskirkju í Hafnarfirði þriðjudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Julia Estella Muñoz Esther Vanessa Muñoz Bjarni Thoroddsen Estefania Villegas Muñoz Sindri Rafn Guðmundsson Paula Andrea Rivera Guerrero Miguel Reyes Domingo Helga Viktoría Bjarnadóttir Thoroddsen Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir Ársölum 1, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 9. ágúst sl. Útförin fer fram frá Lindakirkju, mánudaginn 20. ágúst kl. 15.00. Trausti Þorláksson Magnús Traustason Guðlaug Traustadóttir Þorlákur Traustason Guðrún H. Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ég  hef stjórnað þessum konum í aldarfjórðung og starfinu fylgir rosa mikill kraftur. En ég er ekki að hætta að vinna, heldur afhenda þetta hljóðfæri vonandi yngri manneskju. Fyrirsögnin má ekki vera „Magga að gefast upp!““ segir Margrét Pálmadóttir kórstjóri þegar stungið er upp á tímamótaviðtali í tilefni þess að hún ætlar að hætta með kvenna- kórinn Vox feminae. „Ég vil bara leyfa öðrum komast að, fara í allar heimsins keppnir og halda áfram með kyndilinn,“ tekur hún fram og bendir á að Listahá- skólinn sé að unga út frábæru listafólki sem hafi áhuga á söng og kórstjórn. Sjálf kveðst hún stefna að því að verða ögn rólegri en hún hafi verið. „Ég er með fallegar hugmyndir fyrir konur sem eru 50+. Þar legg ég flauelsmjúkan tón. Er með elstu deildirnar og yngstu deildirnar í Söngskólanum Vox, er að verða ömmuleg og langar að iðka jóga, ganga Jakobsveginn og syngja gömlu lögin!“ Margrét kveðst kvíða því að hætta með Vox feminae en lofar sjálfri sér því að verða dugleg að sækja tónleika kórs- ins. „Ég hef farið út um allan heim með Vox feminae, og hann hefur hvarvetna vakið athygli,“ segir hún. Rifjar upp að fyrst hafi Kvennakór Reykjavíkur orðið til sem lítil hugmynd í Kramhúsinu en síðan orðið að risabatteríi margra kóra. „Ég held við höfum verið um 600 þegar við skiptum honum upp í nokkra kóra, þar á meðal Vox Feminae. Nú eru fimmtíu konur í honum. Ég fékk líka Stúlknakór Reykjavíkur í mínar hendur og er nú að byrja með drengjakór, hann kemur vonandi fram með stúlkunum á jólatónleikum Sinfóníunnar. Hápunkt- arnir mínir eru þátttaka kóranna með Sinfóníuhljómsveit Íslands.“ Margrét segir árin 25 með kvenna- kórunum hafa verið fljót að líða. „Áður þekktust hér bara blandaðir kórar, karlakórar og barnakórar og ég er svo þakklát fyrir breytinguna. Ég segi því – áfram konur, alla leið!“gun@frettabladid.is Vil leyfa öðrum komast að Margrét Pálmadóttir söngstjóri hefur ákveðið að sleppa hendi af kórnum Vox feminae og einbeita sér að Söngskólanum Domus vox, Stúlknakór Reykjavíkur og nýjum drengjakór. Margrét kvest stefna að því að verða ögn rólegri en hún hefur verið. Fréttablaðið/Eyþór 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R30 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð tímamót 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -3 A 0 0 2 0 9 A -3 8 C 4 2 0 9 A -3 7 8 8 2 0 9 A -3 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.