Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 100

Fréttablaðið - 18.08.2018, Side 100
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Lífið í vikunni 12.08.18 - 18.08.18 Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. Simba dýnurnar eru fáan­ legar í eftirtöldum stærðum Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is V A RA ÁRSINS 2018 B R E T L A N D HEILSUDÝNUR Kjörin heilsudýna ársins á meðal 10.637 þátttakenda í neytenda könnun KANTAR TNS í Bretlandi 80 x 200 cm 69.900 90 x 200 cm 79.990 90 x 210 cm 82.900 100 x 200 cm 84.900 120 x 200 cm 94.990 140 x 200 cm 104.990 160 x 200 cm 124.990 180 x 200 cm 139.990 180 x 210 cm 149.990 200 x 200 cm 154.990 Við erum mjög spennt fyrir því að koma,“ segir Tim Kingsbury, bassaleikari kanad-ísku indírokksveitar-innar Arcade Fire, þegar blaðamaður heyrir í honum hljóðið. Sveitin var þá stödd í Belgíu og átti eftir að spila á tónlistarhá- tíðinni Pukkelpop um kvöldið. Evróputúr sveitarinnar fer senn að ljúka en síðasti viðkomustaður hennar, áður en hún fer í stutt frí, verður hér á landi. Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll á þriðju- dag. Hann segir mikla spennu ríkja meðal hljómsveitarmeðlima fyrir því að koma hingað til lands. „Við höfum viljað halda tónleika á Íslandi í langan tíma. Það hefur einhvern veginn aldrei gengið upp,“ segir Tim. Tækifærið hafi því verið kjörið núna, en Arcade Fire gaf út plötuna Everything Now í fyrra, og hefur frá því verið á tónleikaferðalagi nær sleitulaust. Hann segir að með tónleikaferðalaginu hafi þau viljað fjölga viðkomum sínum í löndum þar sem þau hafa aldrei spilað áður. Hljómsveitin skaust upp á stjörnu- himininn árið 2004 með útgáfu plötunnar Funeral. Í kjölfarið hafa þau gefið út fjórar til viðbótar; Neon Bible, The Suburbs, Reflektor og Everything Now, en allar þykja vera  prýðistónsmíðar. Sveitina mynda þau Win Butler, Régine Chass agne, Will Butler, Richard Reed Parry, Jeremy Gara, auk viðmæland- ans Tims. Öll lenda þau hér á landi á sunnu- dag  en Tim segir  að þau hyggist skoða sig um og kynnast landi og þjóð í fríinu sem þau fá á mánudag. Hann hafi sjálfur heyrt að náttúru- fegurðin hér sé meiriháttar. Á þriðju- dag muni þau síðan koma sér í tón- leikagírinn. „Þeir verða stórskemmtilegir. Það sér fyrir endann á tónleikaferðalag- inu okkar þannig að andinn hefur verið góður á meðal okkar undanfar- ið. Við finnum öll fyrir aukinni orku og munum spila efni af nýju plötunni auk eldri slagara,“ segir Tim. Tim segir að hljómsveitin hafi unnið baki brotnu undanfarið ár, allt frá því að Everything Now kom út. Kærkomið frí taki því næst við. „Við erum búin að  vera á fullu  undan- farið ár frá því að platan kom út. Þess vegna ætlum við að taka okkur smá frí og erum ekki með nein plön að svo stöddu. Að því loknu munum við koma saman aftur og ákveða hver næstu skref verða.“ Að lokum, er eitthvað sem aðdá- endur ættu að hafa í huga fyrir tón- leikana á þriðjudag? „Við erum allavega mjög spennt og erum handviss um að þetta verði frá- bærir tónleikar. Við hvetjum alla til að koma á dansskónum!“ segir Tim að lokum. Lengri útgáfu viðtalsins má lesa á vef Fréttablaðsins, frettabladid.is. danielfreyr@frettabladid.is Arcade Fire á Íslandi: Hvetja fólk til að mæta á dansskónum Arcade Fire sér fyrir endann á tónleikaferðalagi sínu. Finna fyrir orku og lofa góðum tónleikum. NORDIcphOTOS/GETTy Kórar Íslands fá ný andlit Nýir dómarar munu setjast í dóm­ arasætin í þáttaröðinni Kórar Íslands en Stöð 2 og Saga Film ætla að gera aðra þáttaröð. Reynsluboltinn Einar Bárðarson og kórstjórinn helga Mar­ grét koma ný inn. Friðrik Dór verður áfram stjórnandi. Dæma hluti sem aldrei hafa verið dæmdir Þeir Baldur, haukur og Eggert setjast niður vikulega og dæma hluti, sem hafa aldrei verið dæmdir, í hlaðvarp­ inu Dómsdegi. Þar dæma þeir meðal annars kex, te og skegg. Þáttaröð sem hefur slegið í gegn í hlaðvarsps­ heimum. Gylfi skipulagði afmæli Alexöndru Alexandra helga Ívarsdóttir, unnusta Gylfa Þórs Sigurðssonar, fagnaði afmæli sínu um síðustu helgi í góðra vina hópi. Gylfi skipulagði gleðina og flaug með ástinni sinni til Íslands til að halda upp á afmælið. Af­ mælisveislan var með bleiku þema. Kampavínið var í bleikum flöskum og glösin skreytt í sama lit. Hleypur aftur á bak fyrir Bumbulóní pétur Jóhann Sig­ fússon, skemmti­ kraftur og leikari, ætlar að hlaupa tíu kílómetra í maraþoninu, en takist honum að safna millj­ ón fyrir góð­ gerðafélagið Bumbulóní þá fer hann alla vegalengd­ ina aftur á bak. Kanadíska indí- rokksveitin spilar í Laugardalshöll á þriðjudagskvöld. Lofa skemmtilegum tónleikum og hvetja aðdáendur til að mæta á dansskónum. Við HöFum ViLjAð HALDA tónLeiKA á ÍsLAnDi Í LAnGAn tÍmA. ÞAð HeFur einHVern VeGinn ALDrei GenGið upp. 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R48 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -1 C 6 0 2 0 9 A -1 B 2 4 2 0 9 A -1 9 E 8 2 0 9 A -1 8 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.