Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 6
Reykjavík Sú ákvörðun Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að víkja tímabundið úr starfi hefur varpað ljósi á umfangs- mikið vald forstjóra í mörgum hlut- verkum. Varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur segir að hugsanlega sé tilefni til að endur- skoða hlutverk forstjórans innan samstæðunnar. Stjórn OR samþykkti í gærkvöldi ósk Bjarna Bjarnasonar forstjóra um að víkja tímabundið úr starfi meðan úttekt fer fram á meðal annars vinnustaðamenningu fyrir- tækisins í ljósi hneykslismála sem komið hafa upp undanfarna daga og varða óviðeigandi hegðun og kyn- ferðislega áreitni stjórnenda innan samstæðunnar. Bjarni Bjarnason er auk þess að vera forstjóri OR stjórnarformaður í dótturfélögunum Orku náttúrunnar (ON) og Gagnaveitu Reykjavíkur (GR). Hjá dótturfélaginu Vatns- og fráveitu sf. fer hann með ákvörð- unarvald á félagsfundum ásamt framkvæmdastjóra Veitna. Þá er hann framkvæmdastjóri í dóttur- félaginu OR Eignir ohf., sem hefur ekki sjálfstæðan rekstur. Af fimm dótturfélögum OR er aðeins eitt sem Bjarni hefur enga beina aðkomu að, Veitur ohf. Með leyfinu víkur Bjarni úr öllum þessum hlutverkum. Líkt og Fréttablaðið hefur fjallað um fær Bjarni aðeins greitt fyrir stjórnarformennskuna í ON og GR. Alls fær hann tæplega hálfa milljón á mánuði aukalega vegna þessa, ofan á grunnlaun sín sem forstjóri upp á tæplega 2,4 milljónir á mánuði. Stjórnin mætti endurskoða starf alltumlykjandi forstjóra Þörf er á töluverðum hrókeringum innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur þegar Bjarni Bjarnason víkur tímabundið sem forstjóri. Hann hefur auk forstjórastarfsins aðkomu að stjórn fjögurra af fimm dótturfélög- um OR. Varaformaður stjórnar OR segir að skoða megi að dreifa betur því valdi sem forstjóri hefur í dag. CHAR-BROIL PROFESSIONAL 3 brennara 66.675 KR. CHAR-BROIL GASGRILL 2 brennara 54.425 KR. GAS2COAL GAS- OG KOLAGRILL 3 brennara 59.925 KR. CHAR-BROIL BIG EASY Steikarofn, reykofn og grill 41.175 KR. Öll Char-Broil grillin eru með TRU-infrared tækninni sem kemur í veg fyrir eldtungur og tryggir jafnari steikingu. Rekstrarland er opið alla virka daga kl. 8–17. Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is P IP A R \T B W A • S ÍA 25% AFSLÁTTUR 17.–21. SEPT. AF ÖLLUM GRILLUM VERÐ ÁÐUR 54.900 KR. VERÐ ÁÐUR 69.900 KR. VERÐ ÁÐUR 79.900 KR. VERÐ ÁÐUR 88.900 KR. Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls. FRéttaBlaðið/antOn BRink Það að Bjarni víki sem forstjóri kallar því á frekari ráðstafanir í ljósi þess hversu víða hann situr við borð innan Orkuveitunnar og frekari hrók eringa er þörf. Aðspurður hvort þörf sé á að endurskoða skipuritið og draga úr því sem kalla mætti alltum- lykjandi hlutverk forstjórans, segir Gylfi Magnússon, varaformaður stjórnar OR, að það komi til greina. „Þetta er tiltölulega valddreift fyrirtæki, rekið í dótturfyrirtækjum sem eru tiltölulega sjálfstæð. Dag- legur rekstur er í höndum þeirra sem stýra dótturfélögunum. Í þeim skilningi er talsverð valddreifing en auðvitað er það eitthvað sem mætti skoða, við erum bara ekki komin á það stig.“ Gylfi segir óljóst hversu umfangs- mikið hlutverk afleysingaforstjór- ans verði. „Við erum fyrst og fremst að leita að forstjórastaðgengli. Ég þori ekki að lofa því að sá sem leysir af sem forstjóri muni stíga inn í allar þessar stjórnir því það eru auðvitað vara- menn þar. Það er ákvörðun sem verður að taka í samráði stjórnar og þess sem kemur inn í staðinn.“ Gylfi á ekki von á öðru en að Bjarni verði á fullum launum á meðan á leyfinu stendur. mikael@frettabladid.is Orkuveita Reykjavíkur Forstjóri Orka náttúrunnar Stjórnarformaður Gagnaveita Reykjavíkur Stjórnarformaður Vatns- og fráveita sf. Stjórnandi Orkuveita Reykjavíkur Eignir ohf. Framkvæmdastjóri ✿ Hlutverk forstjórans innan OR-samstæðunnar Gylfi Magnússon, varaformaður stjórnar OR. Pakistan Hæstiréttur Pakistans komst í gær að þeirri niðurstöðu að sleppa ætti Nawaz Sharif, fyrr- verandi forsætisráðherra ríkisins, úr fangelsi þar til búið væri að taka fyrir áfrýjun hans á dómi sem ráðherrann fyrrverandi hlaut í spillingarmáli í júlí. Þá var Sharif dæmdur í tíu ára fangelsi en hann hóf afplánun fyrir tveimur mánuðum. Hið svokallaða Avenfield-mál tengist eign Sharif-fjölskyldunnar á fjórum lúxusíbúðum í miðborg Lundúna. Maryam Nawas Sharif, dóttir hans, hlaut sjö ára dóm og tengdasonurinn Iaw Safdar Awan eins árs dóm. Þeim verður sömu- leiðis sleppt úr haldi gegn tryggingu en þau hafa setið í Rawalpindi-fang- elsinu frá 13. júlí. Samkvæmt pakistanska miðlinum Geo TV voru háttsettir meðlimir Múslimabandalags Pakistans (PML- N), stjórnmálaflokksins sem Sharif- bræður fara fyrir, viðstaddir í dómsal í gær. Mátti þar sjá Shehbaz Sharif, bróður Nawaz, fagna innilega. – þea Nawaz Sharif leystur úr haldi nawaz Sharif. nORdicpHOtOS/GEtty BandaRíkin Öldungadeildarþing- menn Repúblikana setja Christine Blasey Ford, sálfræðiprófessornum sem sakar Brett Kavanaugh um að hafa reynt að nauðga sér, afarkosti. Annaðhvort mæti hún fyrir dóms- málanefnd þingsins á mánudag eða hún missi af tækifærinu til að tjá sig um málið og þingið gangi til atkvæðagreiðslu um tilnefningu Kavanaughs til hæstaréttar. Lögmenn Ford sendu Charles Grassley, Repúblikana og formanni nefndarinnar, bréf á mánudag þar sem þeir sögðust vilja að Alríkis- lögreglan (FBI) rannsakaði málið áður en Ford kemur fyrir nefndina. Repúblikanar eru sagðir sýna þessari ósk lítinn áhuga. Donald Trump Bandaríkjafor- seti sagði í gær að sér þætti miður ef Ford mætti ekki fyrir nefndina. Hann sagðist að auki eiga erfitt með að trúa meintum glæp upp á Brett Kavanaugh. – þea Þingið setur Ford afarkosti FjÖLMiÐLaR Einar Þór Sverrisson, stjórnarformaður Torgs sem er útgáfufélag Fréttablaðsins, segir það ekki fara Guðmundi Krist- jánssyni, forstjóra HB Granda, vel að umgangast sannleikann í svari sínu við yfirlýsingu frá Guð- mundi. Fréttablaðið greindi frá því í gær að Samkeppniseftirlitið hefði gert fjórar alvarlegar athuga- semdir við viðskiptahætti Guð- mundar, aðaleiganda Brims og HB Granda. Guðmundur svaraði fréttinni með þeim hætti að tvö af þeim fjórum atriðum sem voru nefnd væru enn til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Þá benti hann á að Einar Þór Sverrisson, stjórnarformaður Fréttablaðsins, væri einnig lögmaður meirihlutaeigenda Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum og varaformaður stjórnar VSV. Í svari sem Einar Þór sendi á fjölmiðla segir hann að í yfir- lýsingu Guðmundar hafi hann ákveðið að gera lítið úr öllum blaðamönnum og ritstjórum Fréttablaðsins. Hann hafi vegið að starfsheiðri þeirra og dylgjað um að þeir lúti boðvaldi stjórnar félagsins varðandi fréttaflutning. „Samkvæmt fjölmiðlalögum eru ritstjórnir fjölmiðla sjálfstæð- ar og lúta ekki boðvaldi eigenda eða stjórnarmanna. Þær reglur eru áréttaðar í ritstjórnarreglum Fréttablaðsins og er þeim fylgt í starfsemi Fréttablaðsins,“ segir Einar Þór. – þfh Segir Guðmund dylgja um blaðamenn Guðmundur kristjánsson, forstjóri HB Granda. FRéttaBlaðið/antOn BRink 2 0 . s e P t e M B e R 2 0 1 8 F i M M t U d a G U R6 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a Ð i Ð 2 0 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D F -4 C 6 C 2 0 D F -4 B 3 0 2 0 D F -4 9 F 4 2 0 D F -4 8 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.