Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 16
Tilveran 150 g jarðarber 100 g sólber 1 avókadó 1 msk. hnetu- smjör 1 til 2 msk. lífrænt acai-duft 250 ml möndlu- mjólk eða önnur jurta- mjólk Allt unnið saman í góðum blandara þar til blandan verður silkimjúk. Frábært að toppa með rist- uðu bókhveitikorni, hampfræjum og svörtum sesamfræjum og jafnvel ristuðum kókosflögum. Og fyrir þá sem vilja hafa acai-skálina aðeins sætari er afbragð að skera banana- sneiðar yfir og borða svo. Varðandi næringuna í acai-skál- inni, þá eru berin mjög andoxunar- rík, orkugefandi og góð næring. Þau hreyfa ekki mikið við blóðsykrinum og standa því vel með manni inn í daginn. Nauðsynlegt er að hafa prótein með, sem koma úr hnetusmjörinu og hampfræjunum. Það heldur líka blóðsykrinum í góðu jafnvægi og við verðum mettari lengur. acai-skál fyrir tvo Jóhanna og Guðrún eru sammála um að gott sé að temja sér að neyta lifandi fæðu og trefjaríks morgun- verðar sem endist lengi dags. „Við systur elskum báðar eftir- rétti í morgunverð. Það er að segja, morgunverðurinn þarf að vera það góður að hann sé ígildi góðs eftir- réttar, eins og sagt er á góðri ensku, dessert for breakfast. Hann verður bara að vera fyrsta tilhlökkunar- efni dagsins,“ segir Guðrún. „Mark- miðinu er náð ef maður finnur fyrir vatni í munni bara við tilhugsunina um morgunverð dagsins. Það breyt- ir þó engu um það að morgunverður verður að vera næringarríkur, gef- andi og mjög bragðgóður.“ Systurnar segja hafragraut ekki það sama og hafragraut. Eftir að hafa verið í mikilli þróunarvinnu og keppt á HM í grautargerð í Skot- landi í fyrra, Golden Spurtle, með góðum árangri segjast þær fullviss- ar um að hafragrautur sé töfrandi morgunmatur og óendanleg upp- spretta áhugaverðra morgunverðar- hugmynda. „Þessi uppskrift að hafragrautn- um sem við gefum hér kemur út í bók í haust í tilefni af 25 ára afmæli Golden Spurtle en keppnin er sögu- fræg. Það voru bara bestu uppskrift- irnar úr 25 ára sögu keppninnar sem fengu að komast í bókina, svo að við erum mjög lukkulegar með það. Smakkið bara, þetta er æðislegur grautur,“ segir Jóhanna. Hollur morgunverður allra meina bót Guðrún og Jóhanna Kristjánsdætur í Systrasamlaginu. Þar má finna alls konar dýrindis fæðu. Fréttablaðið/EyÞór Fyrsta máltíð dagsins þarf alls ekki að vera einföld og leiðinleg. Hvers vegna ekki að gera morgun- verðinn skemmtilegri? Rannsóknir hafa sýnt fram á það að morgunverður getur skerpt á skammtíma minni og einbeitingu. Drottningar hollustunnar, systurnar Guðrún og Jóhanna Kristjánsdætur hjá Systrasamlaginu, gefa lesendum æðislegar upp- skriftir sem líkja má við eftirrétti. Grunnur 250 g glútenlaus, spíraður og lífrænn hafragrautur (Rude Health, þessi bleiki er frábær) ½ lítri vatn ½ tsk. lífræn vanilla ½ tsk. lífrænn kanill ½ til 1 tsk. gott íslenskt salt 250 til 500 ml möndlu- mjólk eða önnur jurtamjólk Ferskur rifinn og lífrænn engifer Þessi uppskrift er ágæt fyrir fjögurra manna fjölskyldu sem vill fara vel nærð út í daginn. Minnkið hlutföllin ef þið kjósið að gera minna í einu. Annars er hann líka góður daginn eftir. Blandið öllu saman nema möndlumjólkinni og engifernum. Gott er að láta blönduna standa í 15-20 mínútur, en það er alls ekki nauðsynlegt. Sjóðið eins og stendur á pakk- anum. Sumir kjósa að hafa grautinn „al dente“ á meðan aðrir vilja hann lungamjúkan. Eitt af því sem skosku hafragrautarfræðin hafa kennt okkur er að það er langbest að hræra oft í í grautnum á meðan hann sýður við vægan hita með þvöru, ekki sleif heldur meira eins og þykku tréspjóti. Hrærið oft því hafrar eru um margt eins og rísottó. Því meira sem þið hrærið því meira drekka hafrarnir í sig af vökva og kryddum. Því meira gefa þeir af sér af góðri næringu. Þegar hafragrauturinn þykknar og þarfnast meiri vökva bætið þá við möndlu- mjólkinni eftir þörfum. Sumir kjósa 250 ml, aðrir meira. Raspið út í vænan bita af ferskum engifer. Það sem er svo gott að hafa í huga með lífræna engiferinn er að þegar maður notar vel af honum er minni þörf á salti. Þegar ykkur finnst hafragrautur- inn tilbúinn (við viljum hann heldur mjúkan) er gott að setja lokið á og láta hann standa í smá tíma. toppur fyrir hvern grautardisk 1 msk. af blöndu af hunangi og rifnum engifer. Fínt að rífa bita af engifer í smávegis af hunangi og eiga það tilbúið. Það er æðislega gott. 1 tsk. rósapipar 1 tsk. graskersfræ, ristuð 3 msk. sýrð kókosjógúrt eða grísk lífræn bíóbú jógúrt Þetta er ein af okkar mjög skemmti- legu og bragðgóðu uppskriftum af hafragraut. Þessi útgáfa verður hafra- grautur mánaðarins í Systrasamlag- inu. Það er skemmtilegt bragð-„tvist“ í honum og hann kemur á óvart. Við minnum á um leið að hafrar eru glút- enlausir frá náttúrunnar hendi en hafa oft blandast hveiti og smitast af glúteni við ræktun og vinnslu. Hafragrautur með „tvisti“ Markmiðinu er náð ef maður finnur fyrir vatni í munni bara við tilhugsunina um morgunverð dagsins. Stílhreint og mjög mikið endurnýjað raðhús á tveimur hæðum á frábærum stað neðst í Fossvogi. Húsið er staðsett fyrir neðan götu innst í botnlanga og hefur einstaklega fallegt yfirbragð. Efri hæðin var öll endurnýjuð að innan árið 2017 og sá Hanna Stína innanhússarkitekt um þá hönnun. Sama ár var húsið einnig lagfært að utan, skipt um rafmagn, skólprör fóðruð og fleira. Eignin hefur góða lofthæð og gólfsíða glugga. Gólfhiti er á aðalrými og baðherbergi efri hæðar. Allar innréttingar á efri hæð eru sérsmíðaðar. Stór aflokaður garður með stórri verönd til suðurs og heitum potti. Fasteign vikunnar úr fasteignablaði Fréttablaðsins við systur elskum báðar eftirrétti í morgunverð. Það er að segja, morgunverðurinn þarf að vera það góður að hann sé ígildi góðs eftirréttar. 2 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F I m m t U D A G U r16 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A ð I ð 2 0 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K -N Y .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D F -1 F F C 2 0 D F -1 E C 0 2 0 D F -1 D 8 4 2 0 D F -1 C 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.