Fréttablaðið - 20.09.2018, Side 42
Stjarnan - KA 1-1
0-1 Elfar Árni Aðalsteinsson (62.), 1-1 Sölvi
Snær Guðbjargarson (79.).
Fylkir - Breiðablik 0-3
0-1 Thomas Mikkelsen (27., víti), 0-2 Jon-
athan Hendrickx (43.), 0-3 Aron Bjarnason
(57.).
Rautt spjald: Gunnleifur Gunnleifsson,
Breiðablik. (90+2.).
Efri
Valur 43
Stjarnan 40
Breiðablik 38
KR 33
FH 31
KA 25
Nýjast
Pepsi-deild karla
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
METABO Bútsög
KS216
Verðmætaskápar
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995
Tekur ál, stál og ryðfrí
hnoð upp að 4,8mm.
LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði.
Sveigjanlegt rafhlöðu ker sem
virkar með öllum Milwaukee ®
M12™ rafhlöðum.
Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu)
M12 BPRT
Alvöru hnoðbyssa
frá Milwaukee
vfs.is
Akureyringar gerðu Valsmönnum stóran greiða
Yfir til ykkar, Valur KA náði einu stigi gegn nýkrýndum bikarmeisturum Stjörnunnar á Samsung-vellinum í gær í leik þar sem Garðbæingar máttu ekki
við því að tapa stigi. Stjarnan sótti stíft á lokamínútum í leit að sigurmarki sem hefði haldið lífi í draumum þeirra um að vinna tvöfalt í ár en án árang-
urs. Þegar tvær umferðir eru eftir er staðan afar vænleg fyrir Valsmenn og stefnir allt í að titillinn verði áfram á Hlíðarenda. FRéttABlAðið/SigtRygguR ARi
Fótbolti Eitt skrýtnasta mál sum-
arsins varð enn skrýtnara í gær þegar
leikur Hugins og Völsungs í 2. deild
karla átti að fara fram. Þegar flauta
átti leikinn á voru liðin sitt í hvoru
bæjarfélaginu. Seyðfirðingar höfðu
fyrr um daginn lýst yfir áhyggjum
við KSÍ af því að völlurinn væri ekki í
góðu standi. Var leikurinn því færður
á Fellavöll á Egilsstöðum en þegar
átti að flauta hann á voru leikmenn
Hugins tilbúnir í slaginn á Seyðis-
firði. Á Egilsstöðum biðu leikmenn
Völsungs og dómaraþríeykið þar til
ljóst var að leikurinn færi ekki fram.
„Við mættum á svæðið til að spila
leikinn en þegar þeir voru ekki
mættir hálftíma fyrir leik fór okkur að
gruna ýmislegt, “ sagði Jóhann Krist-
inn Gunnarsson, þjálfari Völsungs, er
Fréttablaðið heyrði í honum. Hann
átti von á því að þeim yrði dæmdur
sigur.
„Þeir vissu alveg hvar leikurinn var
og við vorum ekkert að keyra þetta
til gamans, það voru allir klæddir og
klárir í leik af okkar hálfu.“
Málið má rekja til leiks liðanna
fyrir mánuði síðan þegar dómari
leiksins vísaði leikmanni Völsungs
ranglega af velli þegar skammt var til
leiksloka. Manni fleiri nýtti Huginn
sér það til að skora sigurmark en á
leikskýrslunni var ekkert minnst á
rauða spjaldið og voru mistökin því
leiðrétt þar.
Völsungur óskaði eftir því að leikið
yrði á ný og fékk það í gegn hjá áfrýj-
unardómstól KSÍ, þvert á vilja Seyð-
firðinga, eftir að aga- og úrskurðar-
nefnd sambandsins hafði hafnað því.
Brynjar Skúlason, þjálfari Hugins,
kannaðist við póstinn en samkvæmt
hans skilningi mátti ekki færa leikinn.
„Við sendum vissulega póst með
áhyggjum af leikvellinum en yfirleitt
er það dómari sem ákveður þetta.
Hins vegar kemur það fram að því
verði ekki haggað sem kemur fram
í dómsúrskurðinum og þar stóð að
leikurinn ætti að fara fram á Seyðis-
firði, ekki á Egilsstöðum og sá völlur
var heldur ekki í boðlegu standi. KSÍ
er einfaldlega að moka yfir drulluna
sem þetta mál er,“ sagði Brynjar og
hélt áfram:
„Starfsmenn KSÍ gera, ólíkt okkur,
mistök í þessu máli. Við gerum hvergi
mistök, við spiluðum fótboltaleik og
unnum hann og okkur er refsað. Við
sættum okkur ekki við það að vera ýtt
upp að vegg og þurfa að bera hitann
og kostnaðinn af því,“ sagði Brynjar
sem sagði að þeir óttuðust hvorki
sektir né refsingar af hálfu KSÍ og
að þeir hafi ætlað sér að sýna í verki
óánægju sína með vinnubrögð sam-
bandsins.
„Við sögðum við KSÍ að þeim
væri ekki heimilt að flytja leikinn.
Framkvæmdastjóri KSÍ sagði að
úrskurðurinn um að það þyrfti að
leika á ný væri óhagganlegur og þá
ætti leikstaður að vera undir því
líka. Við erum reiðubúnir að taka
því ef okkur verður refsað af KSÍ. Við
ætlum að standa með okkar málstað,
ég sjálfur mun aðstoða við að greiða
sektina því þetta er einfaldlega prins-
ippmál og það er að okkur vegið á
margan hátt.“
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, segir að málið verði skoð-
að nánar og að ákvörðun verði tekin
á fundi mótanefndar í dag.
„Það stendur vissulega Seyðis-
fjarðarvöllur en okkur var tilkynnt
að hann væri ekki leikfær og þá til-
kynntum við það strax að leikur-
inn yrði færður. Við fengum engar
athugasemdir við því,“ sagði Klara og
hélt áfram:
„Það verður skoðað í hvernig þetta
fer í samræmi við mótareglur KSÍ, lið
sem mæta ekki til leiks tapa leiknum
sjálfkrafa 0-3,“ sagði Klara sem vildi
ekki tjá sig að svo stöddu hvaða refs-
ing gæti fylgt því fyrir lið að mæta
ekki á keppnisstað.
kristinnpall@frettabladid.is
Munum standa áfram
með okkar málstað
Ekkert varð af leik Hugins og Völsungs í gær þar sem liðin mættu sitt á hvorn
völlinn. Seyðfirðingar telja að KSÍ hafi verið óheimilt að skipta um völl og
standa með sínum málstað þrátt fyrir að þeir gætu misst stig og átt von á sekt.
Við erum reiðu-
búnir að taka því ef
okkur verður refsað af KSÍ.
Við munum standa með
okkar málstað.
Brynjar Skúlason
Ákvörðun um úrslit
leiksins verður tekin
í dag í samræmi við móta-
reglur KSÍ.
Klara Bjartmarz
Neðri
Grindavík 25
ÍBV 23
Víkingur R. 22
Fylkir 22
Fjölnir 19
Keflavík 4
Fótbolti Þór/KA sendi frá sér til-
kynningu í gærkvöld þar sem fram
kom að liðið mun verða án þriggja
lykilleikmanna í lokaleik Pepsi-
deildar kvenna og gegn Wolfsburg.
Ariana Calderon, Bianca Sierra og
Sandra Stephany Mayor þurfa að
fara til móts við mexíkanska lands-
liðið tveimur vikum fyrr en áætlað
var. Þór/KA reyndi með aðstoð KSÍ
að semja við knattspyrnusamband
Mexíkó sem var ekki tilbúið að koma
til móts við Akureyringa. – kpt
Blóðtaka fyrir
norðankonur
2 0 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 F i m m t U D A G U r26 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Sport
2
0
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
F
-6
5
1
C
2
0
D
F
-6
3
E
0
2
0
D
F
-6
2
A
4
2
0
D
F
-6
1
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K