Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 7
Sérlyfjatexti á bls. 57 LÆKNAblaðið 2018/104 7
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
The Icelandic Medical Association celebrating
100th year anniversary 2018
Reynir Arngrímsson, MD, PhD
Professor of Clinical Genetics/Genetic Medicine, University of Iceland
Dept. Genetics and Molecular Medicine
Landspítali University Hospital, 101 Reykjavík
President of the Icelandic Medical Association
https://doi.org/10.17992/lbl.2018.01.166
Reynir Arngrímsson
erfðalæknir á Landspítala
formaður Læknafélags Íslands
reynirar@landspitali.is
Læknafélag Íslands var stofnað 14. janúar 1918 og heldur upp á 100
ára afmæli sitt í mánuðinum. Stofnfélagar voru 34. Í fyrstu stjórn
félagsins voru kosnir Guðmundur Hannesson, Guðmundur Magn-
ússson og Sæmundur Bjarnhéðinsson. Varamaður í stjórn var
Matthías Einarsson. Frá Vestfirðingafjórðungi Halldór Steinsen, í
Norðlendingafjórðungi Steingrímur Matthíasson, í Austfirðinga-
fjórðungi Georg Georgsson. Í Læknablaðinu frá þessum tíma má
lesa:
„Um það skal engu spáð, hversu félagi voru farnast, hvert gagn það getur
unnið bæði læknastéttinni og landinu, en eins dæmi væri það áreiðanlega, ef
það yrði ekki báðum til gagns og blessunar. Í öllum menningarlöndum hafa
læknar komið á fót föstum félagsskap og skipulagi sín á milli, og fleiri eða
færri málgögnum til að ræða sín mál. Og hvervetna, undantekningarlaust, að
eg hygg, hefir þetta komið að bestu notum. Ólíklegt er það, að vér verðum eina
undantekningin, að oss gefist betur sundrung og sinnuleysi en „organisation“
og áhugi.
Mitt í öllum harðindunum, þrátt fyrir alla dýrtíð og styrjöld, byrja nú
íslenskir læknar árið með þessari félagsstofnun, víllausir og alls ósmeikir, til
þess að búa betur í haginn fyrir komandi ár.
Illviðri og hvers konar óáran bitnar ekki síst á íslenskum læknum og engir
sjá meira af hvers konar eymd og volæði. Þeir hafa þó ekki gugnað til þessa, og
eitthvað meira mun þurfa til þess að draga úr þeim kjarkinn en þessi illviðri og
óáran, sem nú gengur yfir.”1
Um árangur íslenskra lækna og frumkvæði þeirra við skipulagn-
ingu heilbrigðisþjónustunnar á þeim 100 árum sem liðin eru þarf
vart að fjölyrða. Grunnmenntun í læknisfræði hafa flestir læknar
fengið í læknadeild HÍ sem í öllum samanburði stendur jafnfætis
því sem best gerist og ber glöggt vitni um framsýni forystumanna
í læknastétt. Framhaldsmenntun hafa læknar sjálfir þurft að kosta
og skipuleggja erlendis allt fram á þennan dag og nú að nokkru
leyti hérlendis. Þannig má fullyrða að eigið framtak, frumkvæði og
áræði íslenskra lækna á síðastliðnum hundrað árum hafi stuðlað
að heilbrigði þjóðarinnar eins og við þekkjum það í dag.
Að tryggja viðunandi mönnun lækna er viðkvæmt ferli og lítið
má út af bera ef tryggja á landsmönnum grunnheilbrigðisþjónustu.
Skammsýnar ákvarðanir stjórnvalda og stjórnenda heilbrigðis-
stofananna án aðkomu og faglegrar samvinnu við lækna og félaga
þeirra er hættuleg þróun. Ábendingar Embættis landlæknis og
Umboðsmanns Alþingis og niðurstöður dómsmála í mannauðs-
málum helstu heilbrigðisstofnana landsins sem lúta meðal annars
að stjórnsýslu þeirra gagnvart læknum, eru áhyggjuefni. Ekki síð-
ur viðbrögð stjórnendanna við þessum áfellisdómum. Því miður
verður ekki komist hjá því að nefna þetta á þessum tímamótum
því fram til þessa hefur lengst af á þeim 100 árum sem LÍ hefur
staðið vörð um hagsmuni lækna og stuðlað að framförum á lands-
vísu í heilbrigðismálum og eflingu sjúkrastofnana ríkt gagnkvæmt
traust á milli lækna og stjórnvalda og ef sagan hefur kennt okkur
eitthvað þá hefur það verið þjóðinni til gagns og blessunar.
Stofnun LÍ bar upp á frostaveturinn mikla þegar mesta frost
sem vitað er um á landinu mældist, -34,5 stig. Þetta var árið sem
Katla gaus og spænska veikin varð heimsfaraldur og Ísland varð
fullvalda. Í Reykjavík veiktust um 63% íbúa og á fyrstu 6 vikun-
um frá því hún barst til landsins höfðu tæplega 500 manns látist.
Dánarhlutfall var hæst á meðal ungra barna, fólks á aldrinum 20-
40 ára og aldraðra. Einnig urðu barnshafandi konur illa úti.2
Það var því vel við hæfi að afmælisnefnd LÍ valdi að lækn-
irinn og umhverfið yrði þema afmælisársins 2018. Áhrif loftslags-
breytinga á heilsufar og lífsviðurværi mannkyns snertir lækna og
allan almenning og bregðast verður við þessari umhverfisvá. Um-
ræður og skilningur er grundvöllur aðgerða. Í janúar býðst lækn-
um og almenningi að taka þátt í afmælisdagskrá í Hörpu þann
15. janúar næstkomandi þar sem fjallað verður um þetta efni frá
sjónarhorni lækna.
Við endurskoðun Genfar-yfirlýsingar lækna síðasta haust var
samþykkt að bæta við grein um mikilvægi þess að læknar sinntu
heilsu sinni og heilbrigði í lífsháttum.3 Trú þessum tilmælum
Alþjóðalæknasamtakanna og til eflingar félagsanda og samtaka-
máttar verður fjölbreytt gleðidagskrá fyrir lækna og fjölskyldur
þeirra allt afmælisárið eins og sjá má á öðrum stað í blaðinu. Ég
óska læknum öllum til hamingju með sitt síunga félag, megi það
verða þeim og landinu áfram til gagns og blessunar.
Heimildir
1. Hannesson G. Læknafélag Íslands. Læknablaðið 1918; 4: 1-2.
2. Gottfreðsson M. Spænska veikin á Íslandi 1918. Lærdómur í læknisfræði og sögu.
Læknablaðið 2008; 94: 737-45.
3. World Medical Association Declaration of Geneva. wma.net/policies-post/wma-declaration-
-of-geneva/ - desember 2017. Sjá íslenska þýðingu Genfar-yfirlýsingarinnar á blaðsíðu 46 í
þessu tölublaði.
Landinu og læknum til gagns
og blessunar í 100 ár
Öðlastu nýtt
viðhorf
Inflectra er fyrsta mAb samheitalíftæknilyfið.
Lyfið var þróað til að hafa sambærilega virkni
og öryggi og frumlyf infliximab til að auka
meðferðarval sjúklinga með gigtar-, meltingar-
og húðsjúkdóma.1.
Heimildir:
1. INFLECTRA™. European Public Assessment Report (EPAR). June 2013.
Available at: http://www.ema.europa.eu/docs/en_GB/document_library/
EPAR_-_Public_assessment_report/human/002778/WC500151490.pdf
http://www.ema.europa.eu/docs/is_IS/document_library/EPAR_-_Product_
Information/human/002778/WC500151489.pdf
Fyrsta samheitalíftæknilyfið sem er einstofna mótefni (mAb)
og notað í gigtar-, meltingar- og húðsjúkdómum.