Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2018/104 27 „Mitt í öllum harðindunum, þrátt fyrir alla dýrtíð og styrjöld, byrja nú íslenskir læknar árið með þessari félagsstofnun, víllaus- ir og alls ósmeykir, til að búa í haginn fyrir komandi ár.“ Þannig skrifaði Guðmundur Hannesson fyrsti formaður Læknafélags Íslands og forvígismaður í félagsmálum lækna í Læknablaðið skömmu eftir stofnun félagsins. Læknafélag Íslands var stofnað 14. janúar 1918 á fundi í Læknafélagi Reykjavíkur en stofnun fé- lagsins átti sér meira en 20 ára aðdraganda. Á síðasta áratug 19. aldar voru starfandi tæplega 50 læknar á öllu landinu. Hver hafði sitt hérað, yfirleitt eina sýslu eða bæjar- félag, en nokkrir störfuðu sem aukalæknar, voru í afleysingum eða önnuðust hluta af héraði fyrir héraðslækninn, og síðan voru kennarar við læknaskólann. Læknar höfðu ekki með sér neitt félag, ekki frekar en aðrir hópar eða starfsstéttir, en gera má ráð fyrir því að undir aldamótin 1900 hafi flestir þeirra þekkst enda var stærstur hluti þeirra á svipuðum aldri og höfðu gengið í gegnum svipað menntunarferli. Landlæknir var yfirmaður heil- brigðismála og hafði sem slíkur samband við alla lækna landsins en hann var í senn yfirmaður þeirra og kollegi. Það þarf því ekki að koma á óvart að það var landlæknir sem hafði forgöngu um að stofnað yrði sérstakt læknafélag. Jónas Jónassen landlæknir boðaði lækna landsins til fundar í Reykjavík 27. júlí 1896 í þeim tilgangi að ræða ýmis mál. Alls mættu 12 læknar auk hans og var fundurinn nefndur „fyrsti íslenski læknafundurinn“. Læknafélag Íslands í hundrað ár Á dagskrá þessa fyrsta almenna læknafundar voru meðal annars breytingar á skipan læknishéraða, kjör lækna, landsspít- ali, læknaskólinn, bólusetningar, starfsskýrslur og bókfærsla lækna, vitfirringastofnun, lyfjasölumál og lyfjaskrá og stofnun íslensks læknafélags. Þessi fyrsti læknafundur er athyglisverður fyrir margra hluta sakir og þarna komu fram þau viðhorf sem helst voru ríkjandi meðal lækna á þessum tíma. Ályktað var um flest mál en um „stofnun íslensks læknafélags“ fréttist ekk- ert. Í nefndinni um læknafélagið sátu Guðmundur Hannesson héraðslæknir á Akureyri, Guðmundur Björnsson héraðslæknir í Reykjavík og Björn Ólafsson augnlæknir. Stefnt var að því að halda næsta fund sumarið 1898 „ef ekkert sérstakt hindraði“. Ekkert varð úr þeim fundi sem auglýstur hafði verið 26. júlí 1898 en þremur dögum síðar, eða 29. júlí 1898, hittust níu læknar úr Reykjavík og nágrenni á fundi til að ræða tillögu um stofnun læknafélags sem nefndin sem kosin var á fundinum tveimur árum fyrr hafði gert tillögur um. Samþykkt var að stofna félagið og lög félagsins og codex ethicus voru prentuð til þess að aðr- ir læknar gætu kynnt sér málið. Í stjórn félagsins voru kosnir Jónas Jónassen landlæknir, Guðmundur Björnsson héraðslæknir í Reykjavík, sem hafði setið í undirbúningsnefndinni, og Guð- mundur Magnússon kennari við Læknaskólann. Félagið varð aldrei neitt nema nafnið eitt en formlega séð var stofnað íslenskt læknafélag 29. júlí 1898. Af þessu fyrsta félagi íslenskra lækna voru engar spurnir næstu árin og það næsta sem fréttist var af fundi lækna í Reykja- vík 2. október 1909. Þá komu læknar saman til að ræða væntan- lega stofnun sjúkrasamlags í Reykjavík og hvernig læknar gætu brugðist við kröfum þess um samninga við lækna fyrir sína félagsmenn. Í framhaldi af þeim umræðum var síðan stofnað til Læknafélags Reykjavíkur þann 18. október 1909 á Hótel Íslandi af 9 læknum. Árið 1909 var að frumkvæði Oddfellow-reglunnar stofnað sjúkrasamlag í Reykjavík en reglan var í forystu fyrir Jón Ólafur Ísberg sagnfræðingur innanríkisráðuneytinu joli@centrum.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.