Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 30
30 LÆKNAblaðið 2018/104
„Þær einar fyrirskipanir mun ég gjöra, er séu sjúklingum mínum
til gagns og nytsemdar, eftir því sem þekking mín og dómgreind
frekast fær ráðið.“ Svo segir í eiði Hippókratesar (ísl. þýð. Vald.
Steffensen). Til að ná þessum markmiðum eru skyldur lærdóms
og kennslu lagðar á lækninn enda segir: „... kenna þeim lækn-
isfræði, ef þeir æskja þess, endurgjaldslaust. Fræðin mín vil ég
kenna sonum mínum, sonum kennara míns, svo og þeim læri-
sveinum mínum, sem bundnir eru læknalögum og lækniseiði.“1
Þessi afstaða til náms og kennslu hefur litað viðhorf læknisins
til starfs síns um aldir. Minningu Hrafns Sveinbjarnarsonar er
hampað á góðum stundum. Sennilega eru ekki öll kurl komin
til grafar um menntun hans. Hafsteinn Sæmundsson læknir
hefur sett fram athyglisverðar og rökstuddar kenningar um
nám Hrafns á Englandi í suðurför hans.2 Hrafn var samkvæmt
öllum heimildum menntaður evrópskur læknir að þess tíma sið.
Til eru heimildir um lækningar sonar hans, Sveinbjarnar, bæði
í Sturlungu og í Arons sögu Hjörleifssonar. Fróðlegt er að rifja
upp frásögn Heimskringlu eftir orrustuna á Hlýrskógsheiði 1043
þar sem Magnús konungur góði velur menn til að binda um sár
sinna manna „en læknar váru ekki svá margir í hernum, sem þá
þurfti“. Þreifaði konungur um hendur þeim er honum sýndist
„sem mjúkhenztir mundu vera, ok segir, að þeir skyldu binda sár
manna. En engi þeirra hafði fyrr sár bundit; en allir þessir urðu
inir mestu læknar“. Í þessum hópi voru tveir íslenskir menn,
Þorkell Geirason af Lyngum og Atli, faðir Bárðar svarta í Selár-
dal, „ok kómu frá þeim margir læknar síðan“.3 Bárður svarti var
faðir Sveinbjarnar, föður Hrafns. Atli var sagður „algjör læknir“
og Sveinbjörn „læknir góður“.4 Læknisfræðin lá í ættum og gerir
enn.
Þorkell Arngrímsson, prestur í Görðum á Álftanesi, var
þekktur læknir á 17. öld. Talsverðar heimildir eru um lækningar
hans og mikið úr þeim gert en minna vitað um árangur. Börn
Þorkels höfðu eftir föður sínum. „Talið er, að sonur séra Þorkels,
Þórður læknir Vídalín, hafi, og þá sennilega fyrstur, tekið saman
eða lagt út ljósmóðurfræði á vora tungu.“5
Ekki má ríða svo hjá garði í þessum efnum, að Bjarna Pálsson-
ar sé ekki getið. Hann hafði 13 læknisefni til heimilis um sína
daga og kom fjórum þeirra til prófs.
Eins og minnst hefur verið á hafa læknar á öllum tímum tek-
ið alvarlega þau fyrirmæli siðareglna sinna að miðla öðrum af
þekkingu sinni og kunnáttu. Þau eru fróðleg ummæli Guðmund-
ar Hannessonar í Læknablaðinu á fyrri öld og vísa til „læknadaga“
þeirra tíma. „Meðan eg var héraðslæknir var mér það sönn
ánægja hve gott samkomulag var hvarvetna milli lækna og góð
vinátta við nánari kynni. Þá voru og deiluefnin fá, því heita mátti
að hver læknir hefði sinn afmarkaða verkahring og nóg að gera.
Það var þá til dæmis venja flestra lækna, er þeir komu á ferðalagi
í annan bæ, þar sem læknissetur var, að fyrst fóru þeir að heim-
sækja stéttarbróður sinn, og brást þá ekki að tekið var við manni
opnum örmum. Það var ekki á hverjum degi sem læknar hittust
og skorti því ekki viðræðuefni. Oftast varð þá læknisfræðin efst á
baugi, vandamálin, sem komið höfðu fyrir, erfiðar ferðir, sérstök
áhugamál o. þvíl.“6
Læknar halda uppteknum hætti og eflast í viðleitni sinni að
endurmenntast eftir því sem þeim fjölgar og betra lag kemst á
félagsskap þeirra. Fundargerðabækur svæðafélaga lækna geyma
merkilegar upplýsingar um þessi efni frá miðri síðustu öld og allt
fram á okkar daga. Í aðalfundargerðum Læknafélags Miðvestur-
lands frá sjötta áratugnum má finna lýsingar á samkomum hér-
aðslæknanna, þar sem þeir koma saman á heimilum hver annars
og jafnan er fræðsla stór hluti af fundarefni. Annaðhvort sjá þeir
um hana sjálfir eða fá gesti „að sunnan“ eða úr öðrum landshlut-
um, nema hvort tveggja sé.
Læknadagar alla daga
Sigurbjörn Sveinsson
heimilislæknir og formaður
Læknafélags Íslands 1999-2007
beggja@simnet.is
Frá Læknadögum 2017: glaðbeittir læknar
drekka í sig alls kyns fróðleik og njóta þess
að hitta kollegana.