Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 38
38 LÆKNAblaðið 2018/104
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
horfum uppá meira brottfall unglinga úr
framhaldskólum en þekkist í nágranna-
löndunum og ein ástæða þess er líklega sú
að unglingarnir eiga erfitt með að vakna á
morgnana og falla svo á mætingu.
Erna: Við búum náttúrulega við að-
stæður þar sem birtutíminn á veturna
er afskaplega lítill. Óbirt rannsókn um
líðan fólks á sumrin og veturna sýnir að
fólk tengir líðan sína ósjálfrátt við birtu-
magnið. Það er allt betra á sumrin. Fólki
líður svo miklu betur og þetta fylgir sól-
arganginum algjörlega því toppurinn er
frá maí fram í júlí og svo dregur úr ánægj-
unni eftir það. Við eigum því að reyna að
nýta okkur birtuna eins mikið og mögu-
legt er á þessum dimmasta tíma.
Röng klukka leiðrétt með svefnlyfjum
Erla: Mögulega tengist mikil svefnlyfja-
notkun hér á landi þessu á einhvern hátt.
Sérstakt áhyggjuefni er vaxandi notkun
svefnlyfja hjá börnum og unglingum. Að-
allega er verið að gefa melatónínskyld lyf,
Circadin er algengast og upplýsingar um
þetta á heimasíðu Embættis landlæknis
eru einfaldlega sjokkerandi. Það er verið
að gefa ótrúlega miklum fjölda barna á
aldrinum 10-14 ára, sérstaklega drengjum,
Circadin og önnur svefnlyf. Við vitum líka
að verulegt magn er flutt inn í landið eft-
irlitslaust þannig að notkunin er töluvert
meiri en innlend lyfsala segir til um.
Erna: Þetta lyf Circadin var þróað fyrir
fólk eldra en 55 ára sem er með minnkaða
melatónínframleiðslu og þó melatónín sé
náttúrulegt hormón er langt frá því eðli-
legt að gefa það börnum í stórum skömmt-
um.
Björg: Með þessu er verið að leið-
rétta að hluta til afleiðingar rangrar
klukku með lyfjum. Það er merkilegt
að við skulum velja þann kost að hafa
klukkuna rangt stillta þegar þetta er
svona mikilvægt. Maður heyrir marga
vilja hafa birtuna lengur á kvöldin af því
að það lengir frístundir í birtu seinnipart
sumarsins. Birtuaukningin er þó strangt
til tekið ekki nema 4%, miðað við vöku-
tíma fullorðinna (kl. 7-23), og aðeins 1%
ef miðað er við vökutíma barna (kl. 7-21).
Á hinn bóginn myndi leiðrétting klukk-
unnar auka birtutímann á morgnana um
13% og mest afgerandi í svartasta skamm-
deginu. Það gerði krökkum kleift að fara í
skólann í birtu nánast alla daga ársins, að
undanskildu svartasta skammdeginu frá
lokum nóvember til janúar. Og þau færu
út í frímínútur í björtu.
Þórgunnur: Það er víst svo að við not-
um hlutfallslega meira af svefnlyfjum,
róandi lyfjum og þunglyndislyfjum en
hin Norðurlöndin. Ástæðurnar eru eflaust
margþættar, en það má leiða líkum að því
að ein af þeim sé þessi stilling klukkunnar
sem við búum við.
Vetrartíminn er rétti tíminn fyrir ísland
Erla: Það er líka mikilvægt að leiðrétta
þann algenga misskilning að við erum
ekki að tala fyrir því að fara í gamla farið
þar sem klukkunni var breytt sumar og
haust. Við erum að tala um leiðréttingu
þar sem við erum allt árið á vetrartíma en
ekki eins og núna allt árið á sumartíma.
Erna: Sumartíminn er í rauninni fá-
ránleg uppfinning og þjónaði upphaflega
þeim tilgangi að spara rafmagn. Þetta
snerist ekki um lýðheilsu og æ fleiri lönd
eru að skoða það í alvöru að hætta með
sumartímann og fara í réttan tíma, vetr-
artíma, allt árið. Það hefur líka sýnt sig að
breyting klukkunnar tvisvar á ári veldur
ýmsum vandræðum hjá þeim þjóðum
sem það gera. Slysum fjölgar í kringum
klukkubreytinguna, hjartaáföllum og
heilablóðföllum einnig. Fólk sem á erfitt
með að stilla sig eftir öðru en sólarljósinu
er sérlega viðkvæmt og venst aldrei
almennilega sumartímanum. Við getum
ekki hunsað þetta þegar búið er að marg-
sýna fram á að hvað þetta skiptir miklu
máli og hefur mikil áhrif.
Erna: Austurland er í dag hálftíma
nær réttri klukku en Vesturland og það er
mjög athyglisvert að í könnun Embættis
landlæknis kemur fram að unglingar á
Austurlandi sofa lengur en unglingar á
Vesturlandi. Þau sem fá birtuna fyrr sofa
lengur. Af hverju er það? Vegna birtunnar
eða eru foreldrar á Austurlandi duglegri
að senda krakkana í rúmið?
Erla: Þeir sem verða þó einna verst
úti með rugl líkamsklukkunnar er
vaktavinnufólkið. Að meðaltali sefur
vaktavinnufólk 7 klukkutímum skemur á
viku en aðrir en með því er ekki öll sagan
sögð. Ef við skoðum hvernig fólk hagar
seinni hluta næturvaktar sem eru síðustu
fjórir tímarnir áður en það fer heim að
sofa þá er hegðunin allt önnur en frá 20 til
miðnættis þegar fólk er að undirbúa sig
fyrir nætursvefninn. Vaktavinnumann-
eskjan er gjarnan á fullu í vinnunni, í mik-
illi birtu, drekkur kaffi og borðar jafnvel
sykur og sumir fá sér jafnvel þunga máltíð
þegar heim er komið, rétt áður en farið er
að sofa. Mjög ólíkt hegðun manns á venju-
legu kvöldi fyrir svefninn. Það er hægt að
gera ýmislegt til að lágmarka slæm áhrif
vaktavinnu, til dæmis með því að koma
sér upp kvöldrútínu í lok næturvaktar.
Erna: Þetta hefur verið rætt á Landspít-
alanum og ýmislegt er í skoðun en erfitt
að hrinda í framkvæmd.
Þórgunnur: Margir hnussa þegar þessi
umræða kemur upp og segjast ekki eiga
neitt erfitt með að sofna sjálfir, og vilja alls
ekki hafa dimmt fyrr á kvöldin á veturna.
Það getur líka vel verið að það henti sum-
um betur að hafa þetta svona, sérstaklega
þeir sem eldri eru og eru meiri A-týpur,
þeir sem hafa tilhneigingu til að vakna
snemma og sofna snemma, og vilja geta
„golfað og grillað“ eftir vinnu, eins og
stundum hefur verið sagt í gamansömum
tón. En þar liggja ekki hagsmunir heildar-
innar og eins og Erna nefndi áðan hefur
þetta mest áhrif á unga fólkið okkar.
Björg: Við þurfum fyrst og fremst að
hugsa um unglingana okkar og unga
fólkið sem á frá náttúrunnar hendi mjög
erfitt með að stilla sig eftir rangri klukku.
Gagnsemi þess að vera með rétta klukku
er að þessi stóri og mikilvægi hópur fengi
birtuboðin fyrr og ætti miklu auðveldara
með að aðlagast þeim kröfum sem gerðar
eru til þess af skólum og vinnumarkaði.
Þetta snýst líka um að gefa unglingunum
tækifæri til að þroskast á eðlilegan hátt
þar sem líkamsklukkan hefur sannarlega
áhrif á það. Fórnarkostnaðurinn er að tapa
birtutíma seinnipart dagsins en það er
hverfandi miðað við ávinninginn.
Læknar athugið...
einkaleyfi
Cialis
er fallið!
Nýr valkostur
Tadalafil Krka
lægra verð - stærri hagstæðari pakkningar
10
m
g
&
20
m
g
Tadalafil Krka inniheldur tadalafil og fæst í 10 mg – 4 stk. og 8 stk. pakkningum og 20 mg – 4 stk., 8 stk. og 12 stk. pakkningum. Notkunarsvið: Til meðferðar við
ristruflunum hjá fullorðnum karlmönnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir tadalafili eða einhverju hjálparefna lyfsins. Karlmenn með hjartasjúkdóm sem ráðið hefur verið
frá því að stunda kynlíf eiga ekki að nota lyfið. Hjartadrep á síðustu 90 dögum; hjartaöng eða hjartaöng við samfarir; hjartabilun í flokki II eða hærri á síðustu 6 mánuðum;
takttruflanir sem ekki hafa svarað meðferð, lágþrýstingur (<90/50 mmHg); háþrýstingur sem ekki hefur svarað meðferð; slag á síðustu 6 mánuðum; töpuð sjón á öðru
auga vegna framlægs sjóntaugarkvilla vegna blóðþurrðar án slagæðabólgu; samhliða notkun guanýlat-cýklasaörva eða lífrænna nítrata. Nálgast má upplýsingar um
lyfið, fylgiseðil þess og gildandi samantekt á eiginleikum lyfs (SmPC) á vef Lyfjastofnunar – www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er KRKA, d.d., Novo
mesto. Umboðsaðili er LYFIS ehf. Sími: 534-3500, netfang: lyfis@lyfis.is. SmPC: Apríl og júlí 2017.