Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 50
50 LÆKNAblaðið 2018/104 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R LÆKNAR OG UMHVERFI 14:00-14:05 Fundarstjórar bjóða afmælisgesti velkomna 14:05-14:15 Formaður LÍ, Reynir Arngrímsson flytur ávarp 14:15-14:25 Forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson flytur ávarp 14:20-15:00 Dr. Antony Costello flytur erindi um áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi og heilsufar 15:00-15:20 Dr. Karine Nordstrand flytur erindi um störf Lækna án landamæra 15:20-15:30 Læknakórinn, blandaður kór lækna undir stjórn Árna Harðarsonar 15:30-16:00 Afmæliskaffi 16:00-16:25 Andri Snær Magnason rithöfundur, hugleiðing um tímann og vatnið, framtíðina og ísinn 16:25-16:35 Stjórn LÍ – heiðranir félagsmanna 16:35-17:55 Fjölbreytt tónlistaratriði undir stjórn Guðmundar Óskars Guðmundssonar 17:55-18:00 Fræðslustofnun lækna – Læknadagar, Jórunn Atladóttir formaður Fundarstjórn: Ebba Margrét Magnúsdóttir og Michael Clausen UM FYRIRLESARA AFMÆLISHÁTÍÐARINNAR Dr. Anthony Costello er barnalæknir og gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni, World Health Organisation, Department of Maternal, Newborn, Child and Adolescent Health. Hann var áður framkvæmdastjóri University College London Institute for Global Health og er stofnandi NGO – Women and Children First. Hann hefur verið í forsæti fyrir Lancet Commission on Health and Climate Change. Hann mun fjalla um niðurstöður skýrslunnar The Lancet Countdown: tracking progress on health and climate change, ásamt áhrifum loftslagsbreytinga á heilbrigði og stöðu mæðra, barna og ungmenna. Dr. Karine Nordstrand, er formaður norsku samtakanna Lækna án landamæra, Medicins Sans Frontiers – Leger uten grenser. Hún hefur starfað með samtökunum frá 2008 m.a. í Grikklandi, Kongó, Haiti og Indónesíu. Hún mun halda erindi og kynna hlutverk og verkefni Lækna án landamæra og norsku samtökin verða með myndarlega veggspjaldasýningu á Læknadögum til kynningar á starfi sínu. Andri Snær Magnason rithöfundur fjallar um tímann og vatnið, framtíðina og ísinn. Maðurinn hefur haft margvísleg áhrif á jörðina en samkvæmt spám vísindamanna virðast stærstu breytingarnar framundan. Við sem tegund höfum haft áhrif á heilu vistkerfin en nú virðumst við höggva nærri sjálfum grundvelli lífsins, efnasamsetningu lofthjúpsins og sýrustigi hafsins. Jöklar sem hreyfðust á jarðfræðilegum skala, hverfa nú á mannlegum skala. Allar mælingar benda í sömu átt en svo virðist sem ártöl eins og 2080 og 2120 séu of fjarlæg til að tengjast okkur persónulega. Þegar eldur kviknar taka menn höndum saman og slökkva bálið, en nú gjósa 100 eldfjöll samtímis í sprengihreyflum heimsins, og við virðumst ekki geta hægt á okkur þrátt fyrir að afleiðingarnar séu augljósar fyrir afkomendur okkar. Andri Snær fer með okkur í ferðalag um fortíð, samtíð og framtíð í leit að tengingum við tímann. Andri Snær hefur fengist við skáldsagnaskrif, ljóðlist, leikritagerð, almenna hugmyndavinnu og kvikmyndagerð. Verk hans hafa verið gefin út eða sýnd í meira en 30 löndum og þau hafa hlotið margvíslegar innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar. Dagskrá aldarafmælishátíðar Eldborg 15. janúar 2018 Ráðstefnur, fundir og viðburðir Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má nálgast á mice.icelandtravel.is conferences@icelandtravel.is Læknadagar eru í góðum höndum Iceland Travel Ráðstefnur hefur haldið utan um skipulag Læknadaga til margra ára. Iceland Travel Ráðstefnur sérhæfir sig í skipulagningu, undirbúningi og utanumhaldi ráðstefna, funda og viðburða. R ÁÐSTEFNUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.