Læknablaðið - 01.01.2018, Blaðsíða 34
34 LÆKNAblaðið 2018/104
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
„Dagskrá Læknadaga í ár er fjölbreytt
að vanda en þó má segja að tvennt ein-
kenni hana. Annars vegar er það afmæli
Læknafélags Íslands og hins vegar er
óvenju margt á dagskránni sem ætla má
að höfði til breiðari hóps en alla jafna,“
segir Jórunn Atladóttir formaður stjórnar
Fræðslustofnunar LÍ.
Jórunn tók við formennsku Fræðslustofn-
unar LÍ í byrjun þessa árs af Gunnari
Bjarna Ragnarssyni.
„Þetta eru mínir fyrstu Læknadagar og
það hefur verið einstaklega skemmtilegt
að skipuleggja dagskrána og sérstaklega
magnað að finna hvað áhuginn er mikill
fyrir Læknadögunum og hvað margir vilja
taka þátt og leggja sitt af mörkum. Lækn-
ar geta nú eins og undanfarin ár fengið
CME-símenntunarpunkta fyrir að sækja
Læknadaga og þetta tryggir gæði dag-
skrárinnar því við þurfum að leggja hana
fram á hverju ári og fá hana viðurkennda
sem alþjóðlegt símenntunarþing. Það er
mjög mikilvægt,“ segir Jórunn.
Læknafélag Íslands 100 ára
„Fyrsti dagur Læknadaganna er helgaður
afmæli LÍ með hátíð og skemmtun í Eld-
borgarsal Hörpu. Síðan gengur eins konar
afmælisþráður í gegnum dagskrána þar
sem sögu LÍ verða gerð skil með ýmsum
hætti. Þar má nefna málþing um konur í
læknastétt í 100 ár, sérstakt málþing verð-
ur helgað sögu LÍ og einnig verður þess
minnst með málþingi að 100 ár verða liðin
frá Spænsku veikinni.“
Jórunn nefnir síðan nokkra fasta liði
eins og Tilfelli af barnaspítalanum þar
sem barnalæknarnir lýsa tilfellum og
áheyrendur taka þátt með snjalltækjum
sínum. „Vinnubúðir lækna verða á sínum
stað og í ár verður hermikennsla þar sem
notaðar verða glænýjar brúður til kennslu
á líkamspörtum sem erfitt er að gera sýni-
kennslu á. Almennir læknar verða með
málþing sem helgað er starfsumhverfi
læknisins, þar sem umhverfi, hlutverk
og heilsa læknisins er í forgrunni,“ segir
Jórunn.
„Síðan snúast nokkur málþing um
hitamál og má nefna að fylgt verður eftir
#metoo-baráttunni. Skipulag heilbrigð-
isstofnana verður viðfang málþings sem
forsvarsmenn Landspítala og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins hafa sett saman.
Landlæknir mun meðal annarra taka þátt
í þeirri umræðu. Fíknivandamál aldr-
aðra verða rædd á öðru málþingi sem er
nokkuð viðkvæmt efni. Enn eitt hitamál
er skjánotkun barna og unglinga og heim-
ilislæknar ætla að fara yfir það hvaða áhrif
notkun tölva og snjalltækja hefur á heilsu
barnanna okkar.
Af fleiri föstum liðum má nefna mál-
þing á miðvikudagskvöldi sem opið er
almenningi. Þar verður fjallað um geðheil-
brigði og samfélagið. Á þriðjudagskvöldi
verður skemmtidagskrá helguð Sigvalda
Kaldalóns, lækni og tónskáldi. Þar kemur
„Afmælisþráður í dagskrá
Læknadaganna“
„Nokkur málþing á Læknadögum snúast um hitamál í umræðunni um heilbrigðismál,“ segir Jórunn Atladóttir.
– segir Jórunn
Atladóttir formaður
Fræðslustofnunar LÍ