Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2018, Síða 34

Læknablaðið - 01.01.2018, Síða 34
34 LÆKNAblaðið 2018/104 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Dagskrá Læknadaga í ár er fjölbreytt að vanda en þó má segja að tvennt ein- kenni hana. Annars vegar er það afmæli Læknafélags Íslands og hins vegar er óvenju margt á dagskránni sem ætla má að höfði til breiðari hóps en alla jafna,“ segir Jórunn Atladóttir formaður stjórnar Fræðslustofnunar LÍ. Jórunn tók við formennsku Fræðslustofn- unar LÍ í byrjun þessa árs af Gunnari Bjarna Ragnarssyni. „Þetta eru mínir fyrstu Læknadagar og það hefur verið einstaklega skemmtilegt að skipuleggja dagskrána og sérstaklega magnað að finna hvað áhuginn er mikill fyrir Læknadögunum og hvað margir vilja taka þátt og leggja sitt af mörkum. Lækn- ar geta nú eins og undanfarin ár fengið CME-símenntunarpunkta fyrir að sækja Læknadaga og þetta tryggir gæði dag- skrárinnar því við þurfum að leggja hana fram á hverju ári og fá hana viðurkennda sem alþjóðlegt símenntunarþing. Það er mjög mikilvægt,“ segir Jórunn. Læknafélag Íslands 100 ára „Fyrsti dagur Læknadaganna er helgaður afmæli LÍ með hátíð og skemmtun í Eld- borgarsal Hörpu. Síðan gengur eins konar afmælisþráður í gegnum dagskrána þar sem sögu LÍ verða gerð skil með ýmsum hætti. Þar má nefna málþing um konur í læknastétt í 100 ár, sérstakt málþing verð- ur helgað sögu LÍ og einnig verður þess minnst með málþingi að 100 ár verða liðin frá Spænsku veikinni.“ Jórunn nefnir síðan nokkra fasta liði eins og Tilfelli af barnaspítalanum þar sem barnalæknarnir lýsa tilfellum og áheyrendur taka þátt með snjalltækjum sínum. „Vinnubúðir lækna verða á sínum stað og í ár verður hermikennsla þar sem notaðar verða glænýjar brúður til kennslu á líkamspörtum sem erfitt er að gera sýni- kennslu á. Almennir læknar verða með málþing sem helgað er starfsumhverfi læknisins, þar sem umhverfi, hlutverk og heilsa læknisins er í forgrunni,“ segir Jórunn. „Síðan snúast nokkur málþing um hitamál og má nefna að fylgt verður eftir #metoo-baráttunni. Skipulag heilbrigð- isstofnana verður viðfang málþings sem forsvarsmenn Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa sett saman. Landlæknir mun meðal annarra taka þátt í þeirri umræðu. Fíknivandamál aldr- aðra verða rædd á öðru málþingi sem er nokkuð viðkvæmt efni. Enn eitt hitamál er skjánotkun barna og unglinga og heim- ilislæknar ætla að fara yfir það hvaða áhrif notkun tölva og snjalltækja hefur á heilsu barnanna okkar. Af fleiri föstum liðum má nefna mál- þing á miðvikudagskvöldi sem opið er almenningi. Þar verður fjallað um geðheil- brigði og samfélagið. Á þriðjudagskvöldi verður skemmtidagskrá helguð Sigvalda Kaldalóns, lækni og tónskáldi. Þar kemur „Afmælisþráður í dagskrá Læknadaganna“ „Nokkur málþing á Læknadögum snúast um hitamál í umræðunni um heilbrigðismál,“ segir Jórunn Atladóttir. – segir Jórunn Atladóttir formaður Fræðslustofnunar LÍ

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.