Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.2018, Side 30

Læknablaðið - 01.01.2018, Side 30
30 LÆKNAblaðið 2018/104 „Þær einar fyrirskipanir mun ég gjöra, er séu sjúklingum mínum til gagns og nytsemdar, eftir því sem þekking mín og dómgreind frekast fær ráðið.“ Svo segir í eiði Hippókratesar (ísl. þýð. Vald. Steffensen). Til að ná þessum markmiðum eru skyldur lærdóms og kennslu lagðar á lækninn enda segir: „... kenna þeim lækn- isfræði, ef þeir æskja þess, endurgjaldslaust. Fræðin mín vil ég kenna sonum mínum, sonum kennara míns, svo og þeim læri- sveinum mínum, sem bundnir eru læknalögum og lækniseiði.“1 Þessi afstaða til náms og kennslu hefur litað viðhorf læknisins til starfs síns um aldir. Minningu Hrafns Sveinbjarnarsonar er hampað á góðum stundum. Sennilega eru ekki öll kurl komin til grafar um menntun hans. Hafsteinn Sæmundsson læknir hefur sett fram athyglisverðar og rökstuddar kenningar um nám Hrafns á Englandi í suðurför hans.2 Hrafn var samkvæmt öllum heimildum menntaður evrópskur læknir að þess tíma sið. Til eru heimildir um lækningar sonar hans, Sveinbjarnar, bæði í Sturlungu og í Arons sögu Hjörleifssonar. Fróðlegt er að rifja upp frásögn Heimskringlu eftir orrustuna á Hlýrskógsheiði 1043 þar sem Magnús konungur góði velur menn til að binda um sár sinna manna „en læknar váru ekki svá margir í hernum, sem þá þurfti“. Þreifaði konungur um hendur þeim er honum sýndist „sem mjúkhenztir mundu vera, ok segir, að þeir skyldu binda sár manna. En engi þeirra hafði fyrr sár bundit; en allir þessir urðu inir mestu læknar“. Í þessum hópi voru tveir íslenskir menn, Þorkell Geirason af Lyngum og Atli, faðir Bárðar svarta í Selár- dal, „ok kómu frá þeim margir læknar síðan“.3 Bárður svarti var faðir Sveinbjarnar, föður Hrafns. Atli var sagður „algjör læknir“ og Sveinbjörn „læknir góður“.4 Læknisfræðin lá í ættum og gerir enn. Þorkell Arngrímsson, prestur í Görðum á Álftanesi, var þekktur læknir á 17. öld. Talsverðar heimildir eru um lækningar hans og mikið úr þeim gert en minna vitað um árangur. Börn Þorkels höfðu eftir föður sínum. „Talið er, að sonur séra Þorkels, Þórður læknir Vídalín, hafi, og þá sennilega fyrstur, tekið saman eða lagt út ljósmóðurfræði á vora tungu.“5 Ekki má ríða svo hjá garði í þessum efnum, að Bjarna Pálsson- ar sé ekki getið. Hann hafði 13 læknisefni til heimilis um sína daga og kom fjórum þeirra til prófs. Eins og minnst hefur verið á hafa læknar á öllum tímum tek- ið alvarlega þau fyrirmæli siðareglna sinna að miðla öðrum af þekkingu sinni og kunnáttu. Þau eru fróðleg ummæli Guðmund- ar Hannessonar í Læknablaðinu á fyrri öld og vísa til „læknadaga“ þeirra tíma. „Meðan eg var héraðslæknir var mér það sönn ánægja hve gott samkomulag var hvarvetna milli lækna og góð vinátta við nánari kynni. Þá voru og deiluefnin fá, því heita mátti að hver læknir hefði sinn afmarkaða verkahring og nóg að gera. Það var þá til dæmis venja flestra lækna, er þeir komu á ferðalagi í annan bæ, þar sem læknissetur var, að fyrst fóru þeir að heim- sækja stéttarbróður sinn, og brást þá ekki að tekið var við manni opnum örmum. Það var ekki á hverjum degi sem læknar hittust og skorti því ekki viðræðuefni. Oftast varð þá læknisfræðin efst á baugi, vandamálin, sem komið höfðu fyrir, erfiðar ferðir, sérstök áhugamál o. þvíl.“6 Læknar halda uppteknum hætti og eflast í viðleitni sinni að endurmenntast eftir því sem þeim fjölgar og betra lag kemst á félagsskap þeirra. Fundargerðabækur svæðafélaga lækna geyma merkilegar upplýsingar um þessi efni frá miðri síðustu öld og allt fram á okkar daga. Í aðalfundargerðum Læknafélags Miðvestur- lands frá sjötta áratugnum má finna lýsingar á samkomum hér- aðslæknanna, þar sem þeir koma saman á heimilum hver annars og jafnan er fræðsla stór hluti af fundarefni. Annaðhvort sjá þeir um hana sjálfir eða fá gesti „að sunnan“ eða úr öðrum landshlut- um, nema hvort tveggja sé. Læknadagar alla daga Sigurbjörn Sveinsson heimilislæknir og formaður Læknafélags Íslands 1999-2007 beggja@simnet.is Frá Læknadögum 2017: glaðbeittir læknar drekka í sig alls kyns fróðleik og njóta þess að hitta kollegana.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.