Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.01.2018, Side 16

Læknablaðið - 01.01.2018, Side 16
16 LÆKNAblaðið 2018/104 R A N N S Ó K N sókn og því erfiðara að bera hana saman við aðrar rannsóknir þar sem einungis var kannað algengi fæðuofnæmis.6,8,19 Líklega má því segja að algengi fæðuofnæmis í þessari rannsókn sé svipað því sem sést í nágrannalöndum okkar. Tíðni fjölfæðuofnæmis í okkar rannsókn var 1,1% og bráðaofnæmis 1%. Fjölfæðuofnæmi í leik- skólum í þessari rannsókn var ekki eins algengt og til að mynda í Danmörku, þar sem það hefur mælst 3,7%.8 Mjólkuróþol var algengast í leikskólunm en því næst ofnæmi fyrir kúamjólk, eggjum og jarðhnetum. Færri (0,1%) voru með greiningu vegna glútenóþols borið saman við það sem erlendar rannsóknir hafa sýnt.21-24 Íslensk rannsókn á 0-1 árs börnum sem var hluti af alþjóðlegu fæðuofnæmisrannsókninni EuroPrevall staðfesti fæðuofnæmi hjá 1,9% barna með húðprófi, blóðprófi og tvíblindu þolprófi.6 Í fyrrgreindri rannsókn var ekki kannað hvort börnin væru með mjólkuróþol eða glútenóþol sem einnig var til skoðunar í okkar rannsókn. Þá hefur dönsk rannsókn sýnt að al- gengi fæðuofnæmis er hæst í kringum þriggja ára aldurinn en lækkar aftur við 6 ára aldur.8 Athyglisvert þykir að aðeins 41% leikskólanna var með við- bragðsáætlun sem fer í gang ef barn fær mat með ofnæmisvaka í og það hlutfall var litlu hærra (46%) þegar leikskólar með börn með bráðaofnæmi voru skoðaðir sérstaklega. Einnig er það alvarlegt að einungis um 61% leikskólanna greindi frá því að allir starfsmenn væru upplýstir og þjálfaðir í hvernig ætti að bregðast við ofnæm- iskasti barns. Þetta hlutfall var svipað þegar einungis leikskólar með barn með bráðofnæmi voru skoðaðir, eða 64%. Þó kom fram að í einungis 55% leikskóla með barn með bráðaofnæmi þekktu allir starfsmenn einkenni ofnæmiskasts barns. Ekki var mark- tækur munur á leikskólum með og án bráðaofnæmis á því hvort starfsfólk leikskólanna var upplýst og þjálfað í viðbrögðum við ofnæmiskasti. Það er áhugavert út af fyrir sig þar sem ætla mætti að leikskólar með barn með bráðaofnæmi væru líklegri til að vera með upplýsta og þjálfaða starfsmenn. Þættir eins og menntun leikskólastjóra og starfsmanns í eld- húsi, stærð leikskóla, bæði eftir fjölda barna og fjölda starfsfólks, skiptu ekki máli í tengslum við hvort viðbragðsáætlun færi í gang ef barn með fæðuofnæmi/-óþol fengi mat með ofnæmisvaka. Það sama mátti segja þegar áðurnefndir þættir voru skoðaðir í tengsl- um við hvort allt starfsfólk væri upplýst og þjálfað í því hvernig bregðast ætti við ofnæmiskasti barns. Einnig var skoðað hvort það væri munur á þekkingu starfsfólk á viðbrögðum við ofnæmiskasti barns eftir fjölda barna með læknisvottorð á hverjum leikskóla (0-3 á móti 4-14 vottorð) og ekki var marktækur munur á fjölda starfsmanna sem voru upplýstir háð fjölda læknisvottorða (gögn ekki sýnd). Rannsókn frá Tyrklandi þar sem skoðað var hvort fyrir lægju viðbragðsáætlanir í leik- og grunnskólum til að koma í veg fyrir og bregðast við ofnæmislosti, sýndi að slíka viðbragðsáætl- un skorti í 84% tilvika. Einnig kom fram í rannsókninni að aðeins 3% kennara sögðust myndu nota adrenalínpenna ef barn fengi of- næmislost.25 Einungis 14 (64%) leikskólar barna með bráðaofnæmi athuguðu reglulega adrenalínpennann og gættu þess hafa hann aðgengi- legan. Fimm stjórnendur leikskóla með barn með bráðaofnæmi sögðu að adrenalínpenninn væri eingöngu á ábyrgð foreldra og þrír stjórnendur töldu að spurningin um adrenalínpennann ætti ekki við. Rannsókn okkar sýnir að ýmsir innri þætti leikskólans, svo sem menntun og stærð, skipta ekki máli í tengslum við viðbragðs- áætlun fyrir börn með fæðuofnæmi og fæðuóþol. Þegar leikskóla- stjórarnir voru spurðir um hvers konar stuðning væri þörf á í þess- um aðstæðum svöruðu margir að gagnlegt væri að fá sérfræðing til að halda fræðslu um fæðuofnæmi/-óþol fyrir starfsmenn leik- skólans. Nokkrir leikskólastjórar nefndu að þeir vildu meira fé til fæðukaupa fyrir börn með fæðuofnæmi en vitað er að sérfæði get- ur verið dýrara en almennt fæði.26 Einnig vildu leikskólastjórar til dæmis námskeið fyrir starfsfólk í eldhúsi og aðgengi að tengilið sem hefði frekari vitneskju um fæðuofnæmi og fæðuóþol. Styrkleikar og takmarkanir Hátt svarhlutfall fékkst í rannsókninni (75%) og spurningalistinn var ítarlegur og gaf góða innsýn í hvernig málefnum barna með fæðuofnæmi og/eða -óþol er háttað í leikskólum í Reykjavík. Spurningalistinn sem notaður var í rannsókninni var ekki staðlaður heldur saminn af höfundum greinarinnar og gæti það talist til takmarkana. Við úrvinnslu sást að sumar spurninganna hefðu getað verið betur orðaðar. Skipta hefði mátt spurningunni um hvort starfsfólk væri upplýst og þjálfað í að bregðast við of- næmiskasti barns upp í tvær spurningar þar sem spurt væri annars vegar hvort allt starfsfólk væri upplýst og hins vegar þjálf- að í að bregðast við ofnæmiskasti barns. Þá skal tekið fram að svör við spurningum voru byggð á upplýsingum frá leikskólastjórum og gæti verið að þær upplýsingar endurspegli ekki endilega raun- verulega þekkingu starfsfólks. Vissulega getur einnig verið um valskekkju að ræða varðandi svörun spurningalistans, að þeir leikskólar sem eru með barn með ofnæmi taki frekar þátt, sem hefur þá áhrif á útreikninga um algengi. Einnig gæti talist til tak- markana á athugun um algengi fæðuofnæmis/-óþols að mismun- andi greiningar liggja að baki læknisvottorðum sem leikskólarnir fá, sem og að mismunandi ferli gætu verið á milli leikskólanna um hversu nýleg vottorðin þurfa að vera og gæti það einnig haft áhrif á niðurstöðurnar. Læknisvottorð vegna fæðuofnæmis er oft- ast byggt á niðurstöðum úr húð- og/eða blóðprófi. Hins vegar er yfirleitt ekki notast við læknisfræðilegt próf þegar mjólkuróþol er staðfest af lækni heldur er greiningin byggð á frásögn foreldris. Gæti það skekkt niðurstöðurnar og hækkað algengi mjólkuróþols og þá í leiðinni algengi fæðuofnæmis og fæðuóþols. Ályktun Rannsóknin sýndi að í nær öllum leikskólum í Reykjavík eru börn með fæðuofnæmi eða fæðuóþol. Samkvæmt læknisvottorð- um voru 5% leikskólabarna með fæðuofnæmi og/eða fæðuóþol í leikskólunum. Ljóst er að bæta þarf fræðslu og áætlanir í tengsl- um við bráðaofnæmi svo að ekki sé vegið að heilsu barna með bráðaofnæmi innan veggja leikskólans. Einnig þarf að samræma verklag milli leikskóla þegar barn með fæðuofnæmi eða fæðuóþol innritast. Margir leikskólastjóranna í rannsókninni óskuðu eftir aðgengi að meiri fræðslu og sérfræðingi um þennan málaflokk.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.