Læknablaðið - 01.01.2018, Síða 44
44 LÆKNAblaðið 2018/104
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar
í heimilislækningum ásamt sálfræðingi,
hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum og riturum. Hafin er
innleiðing heildstæðrar teymisvinnu í sjúklingamóttöku
sem byggir á náinni samvinnu fagstétta þar sem
samfelld, persónuleg þjónusta við skjólstæðinga er
höfð að leiðarljósi. Um er að ræða spennandi vettvang
fyrir lækni sem áhuga hefur á nýsköpun og framþróun
í heilsugæslu. Nánari upplýsingar um starfsemi
stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar
(www.heilsugaeslan.is).
Nánari upplýsingar
Svava Kristín Þorkelsdóttir - 585 1300
svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is
Ragnar Logi Magnason - 585 7600
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar
Heilsuvernd
Vaktþjónusta
Kennsla nema
Þátttaka í vísindarannsóknum, gæða- og
umbótaverkefnum
Hæfnikröfur
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð
vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af teymisvinnu er kostur
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt gögnum sem staðfesta menntun, fyrri störf og vísinda- og
kennslustörf. Þau gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is), undir laus störf eða á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Sérfræðingur í heimilislækningum
Heilsugæslan Grafarvogi
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Grafarvogi. Um er að ræða
100% ótímabundið starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2018