Læknablaðið - 01.01.2018, Page 47
LÆKNAblaðið 2018/104 47
Árshátíð á aldarafmæli LÍ
í Hörpu 20. janúar
Í tilefni 100 ára afmælis LÍ verður árshátíðin 2018 enn glæsilegri en venjulega og óhætt að fullyrða að dagskráin sé
þannig úr garði gerð að allir eigi að skemmta sér konunglega. Sérstaklega er vandað til matarins sem boðið er upp á
og var Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson, sérstakur ráðgjafi afmælisnefndarinnar við val matseðilsins.
Húsið opnar kl. 19:00, þegar líður á kvöldið mun Ari Eldjárn hrista vel upp í gestum og kitla hláturtaugarnar eins og honum
einum er lagið. Stuttu síðar mun Sigga Beinteins, Selma Björns og Eyþór Ingi koma öllum í stuð áður en ein besta ballhljóm-
sveit landsins, Buffið, stígur á svið og spilar fram á nótt. Dansskórnir þurfa að vera með í för laugardaginn 20. janúar.
Veislustjóri Þórarinn Ingólfsson, heimilislæknir
MIÐAVERÐ Á ÁRSHÁTÍÐINA ER KR. 15.500.
INNIFALIÐ Í MIÐAVERÐINU ER FORDRYKKUR, MATUR OG LÉTTVÍN MEÐ MATNUM
MIÐASALA Á SÍÐU LÆKNADAGA 2018 Á INNRA NETI LIS.IS
Sækja þarf árshátíðarmiðana á þjónustuborð Læknadaga í Hörpu, dagana 15.-19. janúar frá kl. 9:00-16:00.
Gert er ráð fyrir að árgangar haldi sín partý eins og venjulega. Þar sem um standandi borðhald
verður að ræða verða engin sérstök borð frátekin en nægilegt rými er fyrir þá sem vilja sitja meðan þeir matast.
Læknar eru hvattir til að fjölmenna á árshátíð LÍ á aldarafmæli félagsins.
Góða skemmtun.
DAGSKRÁ
ÁRSHÁTÍÐAR
✓ Húsið opnar kl. 19, fordrykkur, Haukur Heiðar
spilar fyrir gesti
✓ Afmælisávarp Reynis Arngrímssonar
formanns Læknafélags Íslands
✓ Ari Eldjárn hristir upp í gestum
✓ Sigríður Beinteins, Selma Björns og
Eyþór Ingi stíga á svið
✓ Milli skemmtiatriða seyðir
Jazzhljómsveitin Guitar Islancio fram ljúfa tóna
✓ Buffið lokar kvöldinu með balli
HLAÐBORÐ AÐ HÆTTI
LÆKNISINS Í ELDHÚSINU
Nautalund Wellington og bernaisesósa
Kryddlögð bleikja með jarðskokkum og rótargrænmeti
Nýlagað sushi úr grænmeti með chilimajó
Villisveppa risottokúlur
Innbakað byggotto með fersku grænmeti og kryddjurtum
Grillað BBQ lamb með sýrðu grænmeti
Kjúklingaspjót með ferskum kryddjurtum
Eldsteiktar tígrisrækjur
Hægeldaðir andaconfit-leggir í djúpsteiktu „sopbrauði“
með chilli og kóríander
Hvít súkkulaðimús með hindberjum
Súkkulaði „brownie“