Læknablaðið - 01.01.2018, Page 48
48 LÆKNAblaðið 2018/104
*
• Góð blóðsykursstjórn1
• Marktækt minni hætta á blóðsykursfalli að
næturlagi samanborið við glargíninsúlín2, 3
• Sveigjanleg tímasetning lyfjagjafa þegar þörf
krefur – einu sinni á dag1
TRESIBA
(deglúdekinsúlin)
Grunninsúlín til meðferðar
við sykursýki hjá fullorðnum
og börnum frá 1 árs aldri1
Fl
ex
To
uc
h®
o
g
Tr
es
ib
a
(in
su
lin
d
eg
lu
de
c)
e
ru
s
kr
ás
et
t
vö
ru
m
er
ki
N
ov
o
N
or
di
sk
A
/S
Tresiba® – Ný tegund insúlín
s
– 42 klukkustunda verkun,
gefið einu sinni á dag
1
LÆKKAR
1
* Við meðferð með Tresiba náði yfir helmingur einstaklinga með sykursýki af tegund 2 HbA1c ≤53 mmól/mól (7%).
4 Í heimildum 2 og 3 náðist aðalendapunktur HbA1c.
Heimildir
1 Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Tresiba, www.serlyfjaskra.is.
2 Rodbard HW, Cariou B, Zinman B, Handelsman Y, Philis-Tsimikas A, Skjoth TV, Rana A, Mathieu C on behalf of the BEGIN Once Long Trial Investigators. Comparison of insulin degludec with insulin glargine in insulin-naive subjects with Type 2 diabetes: a 2-year
randomized, treat-to-target trial. Diabetic Medicine 2013;30(11):1298–304.
3 Bode BW, Buse JB, Fisher M, Garg SK, Marre M, Merker L, Renard E,Russell-Jones DL, Hansen CT, Rana A, Heller SR on behalf of the BEGIN Basal–Bolus Type 1 Trial Investigators. Insulin degludec improves glycæmic control with lower nocturnal hypoglycaemia risk
than insulin glargine in basal–bolus treatment with mealtime insulin aspart in Type 1 diabetes (BEGIN Basal–Bolus Type 1): 2-year results of a randomized clinical trial. Diabetic Medicine 2013;30(11):1293–297.
4 Zinman et al Diabetes Care 35:2464-2472, 2012.
Tresiba 100 einingar/ml og 200 einingar/ml stungulyf, lausn í áfylltum lyfjapenna
Heiti virkra efna
Einn áfylltur lyfjapenni inniheldur 300 eða 600 einingar af deglúdekinsúlíni í 3 ml lausn. 1 ml af lausninni inniheldur 100 eða
200 einingar af deglúdekinsúlíni (jafngildir 3,66 eða 7,32 mg af deglúdekinsúlíni).
Ábendingar
Meðferð við sykursýki hjá fullorðnum, unglingum og börnum frá 1 árs aldri.
Frábendingar
Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
Markaðsleyfishafi
Novo Nordisk A/S, Novo Allé, DK-2880 Bagsværd, Danmörk.
Nálgast má upplýsingar um lyfið, fylgiseðil þess og gildandi samantekt á eiginleikum lyfs
á vef Lyfjastofnunar – www.serlyfjaskra.is.
IS
/T
B
/0
71
6
/0
2
8
5
o
k
tó
b
e
r
2
0
17
Hlutverk lækna er margþætt og starfið
sérstakt. Störf lækna hafa lengi verið
óþrjótandi innblástur frásagnarlista og
kvikmynda enda af mörgu að taka. Lækn-
irinn hefur oft verið baðaður dýrðarljóma
og rómantík enda er honum ekkert mann-
legt óviðkomandi í krefjandi og spennandi
starfsumhverfi sínu. En starfið hefur líka
dökkar hliðar. Það hefur breyst mikið á
undanförnum áratugum. Tækniframfarir
og vaxandi einstaklingsfrelsi í mark-
aðshagkerfi Vesturlanda leggur miklar
byrðar á herðar lækna. Hann þarf að sýna
stjórnunarhæfileika, kennslugetu, hafa
viðskiptavit, sinna skipulagi auk þess að
vera jafnvígur á vísindastörf, siðfræði og
lögfræði. Og já, hann þarf auðvitað að
geta sinnt grunnstoðum læknastarfsins og
læknað sjúklinga.
Læknirinn er ekki lengur almanna-
eign sem helgar líf sitt á altrúískan hátt
læknastarfinu og biður ekki neins í stað-
inn. Læknirinn er mannlegur. Jafnvægi á
milli þess faglega og fjárhagslega – þess
kerfislæga og skapandi er ekki auðsótt og
getur verið aflvaki streitu og kulnunar í
starfi. Þá eru til enn dekkri hliðar starfsins
sem lítið er talað um þó mikil þörf sé á.
Þunglyndi, heilsuleysi, misrétti, misnotk-
un vímuefna og sjálfsvíg. Læknar eiga það
til að einangrast og leita sér ekki hjálpar.
Óraunhæfar kröfur, samkeppni, dómharka
og sjálfsásökun eru því miður lýsandi orð
fyrir mörgum í læknastéttinni og mætti
því spyrja þessarar spurningar:
Á þessu stórafmælisári Læknafélags
Íslands mun FAL halda málþing sem er
helgað lækninum. Farið verður yfir sögu
læknisfræðinnar. Hvernig læknastarfið
hefur þróast og breyst og til hvers sam-
félagið ætlast af læknum. Skyldur, fórnir,
gleði, sorgir og framtíðaráskoranir. Tekið
verður á erfiðu málunum. Kulnun, fíkn,
úrræðaleysi og þöggun. Rætt verður sér-
staklega um það vandasama jafnvægi milli
þess að vera læknir, sjúklingur, aðstand-
andi og meðferðaraðili þegar veikindi eða
vandamál bera að garði. Enginn verður þó
skilinn eftir í lausu lofti og verður einnig
leitað að jafnvægi, úrræðum og hamingj-
unni sjálfri. Að lokum verða pallborðsum-
ræður þar sem ráðstefnugestum gefst færi
á að taka þátt í umræðunni og leita lausna.
Hvetjum við lækna til að fjölmenna á
málþingið sem haldið er fyrsta dag lækna-
daga, mánudaginn 15. janúar kl. 9. Það er
mikilvægt að læknar hjálpist að og styðji
hvern annan þegar á móti blæs og gleðjist
saman þegar að vel gengur. Fjölmennum á
atburði Læknafélags Íslands á afmælisár-
inu og fögnum læknahlutverkinu. Lítum
til baka, lærum af reynslunni en horfum
síðan fram á veginn og höldum ótrauð
áfram að gera það sem við gerum best, að
lækna og hafa gaman af því.
Eru læknar læknum verstir?
FAL heldur málþing á Læknadögum helgað læknum
F R Á F É L A G I A L M E N N R A L Æ K N A
Guðrún Ása
Björnsdóttir
læknir
Agnar H.
Andrésson
læknir
agnar.h.andresson@gmail.com
Einar Stefánsson, prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands og yfirlæknir á augn-
deild Landspítala, tók á dögunum við
Peter Watson verðlaunum sem veitt fyrir
framúrskarandi vísindaframlag á sviði
rannsókna í augnlækningum. Einar tók
við verðlaununum í Cambridge en margir
af fremstu vísindamönnum heims á sviði
augnlækninga hafa hlotið þessi verðlaun.
Einar er einnig í hópi afkastamestu
frumkvöðla Háskóla Íslands og hefur
drjúgan part starfsævinnar unnið að
rannsóknum á lífeðlisfræði augna og
augnsjúkdóma og er mjög kunnur á al-
þjóðavettvangi fyrir þau störf sín. Hann
er meðhöfundur að ríflega 200 greinum í
ritrýndum vísindatímaritum og höfundur
um 400 ritverka og útdrátta um augnlækn-
ingafræði.
Viðburðurinn þar sem verðlaunin
voru afhent kallast The Cambridge Opht-
halmological Symposium og hefur hann
verið haldinn árlega í röska hálfa öld.
Á hverju ári er þeim vísindamanni sem
skarar hvað helst fram úr á sviði augn-
rannsókna boðið að stjórna viðburðinum
og flytja erindi um eigin rannsóknir. Einar
Stefánsson var fundarstjóri að þessu sinni
og flutti hann erindi um súrefnisbúskap
sjónhimnu og glerhlaups augans og
hvernig hann hefur áhrif á sjúkdóma og
meðferð þeirra.
Hið virta breska vísindatímarit EYE
mun gefa út sérstakt hefti eftir ára-
mótin sem verður helgað ráðstefnunni í
Cambridge og mun Einar skrifa ritstjórn-
argrein auk vísindagreinar í blaðið.
Einar Stefánsson heiðraður fyrir augnrannsóknir
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson