Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 41
Ótrúlegt en satt, þá
fann ég mun frá
fyrsta degi, öll einkenni
fæðuóþolsins minnkuðu
til muna og mörg jafnvel
hurfu. Aukakílóin eru
einnig farin að losa takið
og greinilegt að Digest
Spectrum verður hluti af
lífi mínu áfram.
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
kennari
Meltingarensímin frá Enzymedica hafa rækilega slegið í gegn á Íslandi og
hafa þau hreinlega umbylt lífi fjölda
fólks. Meltingarensím virka þannig
að þau eru tekin inn við upphaf
máltíðar og virka samstundis. Fyrir
suma dugar að taka þau stundum –
eftir því hvað verið er að borða – og
aðrir nota þau með öllum mál-
tíðum. Ensímin eru náttúruleg og
því engin hætta á því að eitthvað
fari úrskeiðis í meltingunni heldur
þvert á móti, niðurbrot fæðunnar
verður meira og upptaka næringar-
efna eykst ásamt því að ónot og
ýmsir fylgikvillar lélegrar meltingar
minnka eða hverfa.
Fæðuóþol eða
ensímaskortur?
Skortur á meltingarensímum er
í daglegu tali oft nefnt fæðuóþol.
Margir kannast t.d. við mjólkur-
sykursóþol eða laktósaóþol sem
er tilkomið vegna skorts á laktasa,
ensími sem brýtur niður laktósann.
Reyndar er það ekki alltaf svo að
einkenni fæðuóþols komi strax í
ljós og geta liðið allt að 72 tímar
þar til einkenna verður vart. Oft
er það líka svo að þau líkamlegu
einkenni sem koma fram eru þess
eðlis að erfitt er að átta sig á því að
um fæðuóþol sé að ræða. Ástæður
fæðuóþols má oftast rekja til skorts
á ákveðnum meltingarensímum og/
eða að líkaminn getur ekki virkjað
ákveðin ensím. Þetta getur valdið
vandamálum hjá fjölmörgum. Ekki
bara magaónotum, þreytu eða
öðrum kvillum, heldur getur það
gerst að við fáum ekki þá næringu
sem fæðan á að skila okkur.
Einkennin hurfu!
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
hefur ekki átt sjö dagana sæla en
nánast allt sitt líf hefur hún verið
að kljást við vandamál tengd
meltingunni. Hún er skýrt dæmi
um alvarlegt tilfelli fæðuóþols og
það er ekki fyrr en nú eftir að hún
fór að nota Digest Spectrum að hún
sér til sólar og er farin að njóta þess
að borða og líða vel á eftir. Saga
hennar er ótrúleg:
„Ég hef verið með í maganum
síðan ég var lítil stelpa, oft með
útþaninn og harðan maga og
krampaverki eftir máltíðir. Þegar
ég varð eldri bættust við ýmis ein-
kenni eins og ógleði, brjóstsviði,
nábítur og mikil læti í maganum.
Einnig fann ég fyrir ýmsu öðru án
þess að tengja það við meltinguna
og þarmaflóruna en þetta var
höfuðverkur, skapsveiflur, pirr-
ingur, mikið orkuleysi eftir máltíðir,
húðflekkir, bjúgur, liðverkir, vöðva-
bólga, nætursviti, erfiðleikar með
svefn, nefrennsli, augnþurrkur og
aukakílóin festust. Ég hef prófað
næstum allt til að láta mér líða
betur en með misgóðum árangri og
ef ég fann mun þá var það einungis
í stuttan tíma. Einnig hef ég farið
ófáar ferðir til ýmissa sérfræðinga
en lítið komið út úr því nema að
endingu var ég greind hjá ofnæmis-
lækni með óþol fyrir aukefnum
í matvælum og þá bæði náttúru-
legum (náttúruleg rotvarnarefni)
og tilbúnum. Við að sneiða hjá
aukefnum hefur margt lagast en
samt vantaði eitthvað meira til að
mér liði vel. Ég sá auglýsingu um
Digest Spectrum og ákvað að prófa.
Ótrúlegt en satt, þá fann ég mun frá
fyrsta degi, öll einkenni minnkuðu
til muna og mörg jafnvel hurfu.
Þegar ég tek Digest Spectrum verð
ég hvorki uppþembd né fæ ógleði,
brjóstsviða og annað sem ég taldi
upp áður. Ég finn að ég er með mun
meiri orku en áður og þar af leið-
andi minni pirring og skapsveiflur.
Ég ákvað að prófa að hætta tíma-
bundið að taka ensímin til að finna
muninn og þá kom allt til baka
aftur. Óþolið sem ég var greind
með hefur minnkað til muna og ég
þoli fullt af mat sem ég þoldi engan
veginn áður. Einnig eru aukakílóin
aðeins farin að losa takið án þess að
ég hafi breytt öðru en þau hafa verið
blýföst þrátt fyrir lífsstílsbreytingu
og ítrekaðar viðurkenndar aðferðir
til að léttast. Það er greinilegt að
Digest Spectrum verður hluti af
mínu lífi, ásamt Bio Kult Candea og
chia-graut í morgunmat.“
Hollur matur og óþol
Fjölmargir þjást vegna fæðuóþols
af einhverju tagi og hafa ekki hug-
mynd um það. Það er vegna þess
að erfitt getur reynst að tengja
einkennin við meltinguna og þá
staðreynd að kvillarnir eru að
koma fram allt að 42-72 klst. eftir
að matarins er neytt. Fólk getur haft
óþol gegn ýmiss konar hollustufæði
líka og þá getur verið enn erfiðara
að átti sig því að við gerum oftast
ráð fyrir því að þegar við borðum
hollt, þá séum við að gera líkam-
anum gott.
Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og
heilsuhillur verslana.
Einkenni fæðuóþols horfin
Digest Spectrum meltingarensím hjálpa fólki með fæðuóþol og geta einkenni minnkað mikið og
jafnvel horfið. Ensímin vinna á öllum fæðutegundum og eru sérstaklega öflug og skjótvirk.
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir mælir með Digest Spectrum.
Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem geta
gert hárið líflegra og fallegra.
Hair Volume bætiefnið getur hjálpað til við að viðhalda
þykkt hársins og hárvexti. Það inniheldur jurtaþykkni úr
eplum sem er ríkt af Proxyanidin B2 og hirsi sem er bæði
ríkt af steinefnum og B-vítamínum.
Bíótín og sink stuðla að viðhaldi eðlilegs hárs og kopar
stuðlar að viðhaldi húð- og hárlitar.
Hair Volume
– fyrir líflegra hár
New Nordic Hair Volume 5x10 copy.pdf 1 18/09/2018 10:40
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
2
-F
B
2
4
2
0
F
2
-F
9
E
8
2
0
F
2
-F
8
A
C
2
0
F
2
-F
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K