Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 40
Við héldum upp á stækkun stofunnar með pompi og prakt um miðjan ágúst
og erum afskaplega ánægð með
breytingarnar,“ segir Sandra Lárus-
dóttir, eigandi Heilsu og útlits í
Hlíðasmára 17, en stækkunin var
langþráð. „Eftirspurnin eftir með-
ferðum hjá okkur hefur stóraukist
og því þörf á fleiri meðferðarher-
bergjum og vélum en auk þess tók
ég við umboðinu fyrir FitLine víta-
mínin sem njóta mikilla vinsælda,
og einn daginn var ég hætt að geta
snúið mér við á stofunni,“ lýsir hún
hlæjandi.
Söndru og samstarfsfólki hennar
líður afar vel í Hlíðasmáranum þar
sem Heilsa og útlit hefur verið til
húsa frá því stofan var stofnuð fyrir
fjórum árum. Því þótti þeim mikil
lukka að geta fengið aðgang að
aðliggjandi húsnæði. „Við þurftum
bara að brjótast í gegnum vegg og
úr varð mikið ævintýri með frá-
bærri niðurstöðu. Við erum rosa-
lega ánægð með útkomuna.“
Nokkur meðferðarherbergi hafa
bæst við með stækkuninni auk
þess sem fjölgað hefur verið vélum
sem notaðar eru í sogæðameð-
ferðir en þær eru meðal vinsælustu
meðferða stofunnar. „Sú breyting
varð á að nú getum við þjónustað
enn betur fólk sem er hreyfi-
hamlað því við fengum VacuSport
vél með sleða.“
Viðurkennd lækningatæki
Weyergans tækin sem notuð eru til
sogæðameðferða í Heilsu og útliti
eru viðurkennd þýsk lækningatæki
sem notuð eru á heilbrigðisstofn-
unum í Þýskalandi. Sandra segir
að VacuSport og Vacamed séu vel
þekkt í heiminum en hafi upphaf-
lega verið fundin upp fyrir NASA.
Þannig hafi geimfarar verið settir
í meðferð í þessum tækjum þegar
þeir komu úr geimferðum til að
þrýstijafna þá.
„Tækin búa til lofttæmisþrýsting
sem eykur súrefnis- og blóðflæði
um líkamann. Þetta hentar því vel
fólki með bjúg, stíflur og bólgur
og fólki með slæmt blóðflæði.
Þessi tæki hraða mjög bataferli og
endurhæfingu eftir slys, aðgerðir
og meiðsli. Þannig losa þau
líkamann hraðar við bjúg og vökva
sem safnast fyrir í líkamanum og
auka blóðflæði. Þetta virkar alveg
ótrúlega vel og maður er stundum
hissa á þeim undraverða árangri
sem tækin gefa.“ Sandra bendir
á að allt starfsfólk stofunnar sé
faglært og hafi sótt námskeið til að
mega stjórna tækjunum. Sjálf er
hún með leyfi til að kenna á tækin
og útskrifast sem master þjálfari á
næsta ári.
Hróður Weyergans sogæða-
nuddstækjanna sem Sandra hefur
umboð fyrir hefur borist víða og
nú er þau að finna á níu stöðum á
landinu. „Við höfum selt slík tæki
á stofur víða um land og nú má
fara í slíka meðferð á Reyðarfirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Siglufirði,
í Borgartúni, á Selfossi, í Borgar-
nesi, Vestmannaeyjum og hér hjá
okkur í Kópavogi. Ég sé fram á að
við verðum komin með vélar á enn
fleiri staði á þessu ári.“
Þakklátir viðskiptavinir
Hverjir eru það sem sækja helst í
sogæðameðferðirnar hjá Heilsu
og útliti? „Yfirleitt er það fólk með
stoðkerfisvandamál, flugfreyjur,
íþróttafólk, fólk með slæmt æða-
kerfi, fólk sem er að ná sér eftir
aðgerðir eða hreinlega fólk sem
þjáist af síþreytu.“ Sandra segist
finna fyrir miklu þakklæti og tekur
dæmi um að nýlega hafi viðskipta-
vinur gefið stofunni nýja vél vegna
mikillar ánægju með þjónustuna.
„Þessi kona kom til okkar í hjóla-
stól og spilar nú golf á Spáni.“
Svala Björgvinsdóttir söngkona mætti til Eyjólfs Kristjánssonar í tannhvíttun á dögunum. MYND/EYÞÓR
Sandra og Eyjólfur með samstarfskonum sínum, þeim Guðrúnu Diljá og Írisi
Kristrúnu, en í baksýn má sjá eina af Weyergans sogæðanuddsvélum.
Framhald af forsíðu ➛ Tækin búa til loft-
tæmisþrýsting sem
eykur súrefnis- og blóð-
flæði um líkamann. Þetta
hentar því vel fólki með
bjúg, stíflur og bólgur og
fólki með slæmt blóð-
flæði. Þessi tæki hraða
mjög bataferli og endur-
hæfingu eftir slys, aðgerð-
ir og meiðsli.
Ágúst Þórðarson fékk heilablóðfall og lamaðist á vinstri hlið líkamans. Í kjölfarið fékk hann mikinn bjúg
fyrir neðan hné, sér í lagi öðrum megin, og
var að auki stirður í vinstri hendinni.
„Ég sá auglýsingu frá Heilsu og útliti um
sogæðameðferð og hugsaði með mér að
ekki gæti mér versnað við þetta. Ég keypti
því tíu tíma kort hjá henni Söndru og fór
í sogæðanudd í svokölluðum buxum og
höndin fór í tunnu. Það var ekkert öðru-
vísi en það að bjúgurinn rann af mér og
hreinsaðist út í gegnum þvagið. Ég fann
strax mun á mér eftir fyrsta tímann og
svo alltaf meir í hvert sinn, þetta var alveg
stórkostlegt.“
Ágúst þjáðist af töluverðu jafnvægis-
leysi og eftir nokkra tíma ákvað hann að
prófa að hafa buxurnar upp undir bring-
spölum. „Eftir tímann var ég aðstoðaður
í skóna, renndi mér fram af bekknum og
á gólfið og gat gengið án hækju,“ segir
Ágúst en hann notast þó enn við hækju
í dag en líður mun betur en áður. „Með-
ferðin hjálpaði mér mjög mikið. Löppin
var orðin svo þung að ég var í vandræðum
með að ganga með hækju en þetta er allt
annað líf núna.“
Ágúst segir nauðsynlegt að viðhalda
árangrinum en það sé engin kvöð enda
afskaplega gaman að koma í Heilsu og
útlit. „Starfsfólkið er svo jákvætt og þjón-
ustulundað. Ég mæli hundrað prósent
með þessari meðferð og finnst að svona
tæki ætti að vera til á öllum heilbrigðis-
stofnunum.“
Stórkostlegur árangur
bætir við að Kristbjörg, eiginkona
Arons Einars, hafi einnig komið til
hennar á meðgöngunni þegar hún
var bjúguð og þreytt.
Súrefnishjálmur, tannhvíttun
og snyrtimeðferðir
Heilsa og útlit er fyrst og fremst
líkamsmeðferðarstofa og snyrti-
stofa sem býður upp á mjög
fjölbreyttar meðferðir. „Fyrir utan
sogæðastígvél og sogæðatækin
VacuSport og VacuMed erum við
með vafninga fyrir appelsínuhúð
og bólgur. Við fjarlægjum tattú og
bjóðum upp á andlitssnyrtingu svo
fátt eitt sé nefnt. Maðurinn minn,
Eyjólfur Kristjánsson, fór út að læra
tannhvíttun og við höfum verið
að bjóða upp á slíkt með góðum
árangri. Þá hefur súrefnishjálmur-
inn umtalaði verið mjög vinsæll
hjá okkur,“ segir Sandra. Hún lýsir
hjálminum nánar: „Hjálmurinn er
með innrauðum ljósum og hefur
afar góð áhrif á öldrunareinkenni
í húð og aðra húðkvilla á borð við
rósroða og bólur. Þá hjálpar hjálm-
urinn til við asma og mígreni. Þetta
er því algert töfratæki.“
Hjá stofunni má einnig fara í
fitufrystingu sem boðið hefur verið
uppá frá 2015. „Fitufrysting er
náttúruleg meðferð þar sem kuldi
er notaður til að frysta og fjarlægja
fitufrumur. Fitufrumurnar skolast
síðan út með sogæðakerfinu og við
getum flýtt fyrir ferlinu með því
að tvinna sogæðameðferð saman
við fitufrystinguna.“ Sandra tekur
fram að alltaf sé passað að nota
hæfilegan kulda sem valdi engum
skaða.
Fitline, 100% náttúruleg
afurð
Sandra hefur nýverið tekið við
umboði fyrir FitLine vítamínin á
Íslandi. „Þetta eru ein vinsælustu
vítamínin á Íslandi og við erum
með um 500 áskrifendur. Varan
er hundrað prósent náttúruleg
og unnin úr hreinni matvöru.
Vítamínin eru í duftformi sem
blandað er í vatn. Upptakan er
því hundrað prósent. Vítamínin
hjálpa fólki með meltingu, orku
og svefn. Þau eru viðurkennd af
Evrópusambandinu og standast
alþjóðlegar öryggiskröfur um gæði
og hreinleika.“ Sandra bendir á að
hægt sé að fá kynningarpakka. „Þá
getur fólk leitað til okkar og bókað
ráðgjöf bæði varðandi líkamlega
heilsu og fæðubótaefnin.“
Þær stofur sem bjóða upp á
sogæðanudd með Weyergans tækj-
um eru: Heilsustofan Eygló, Selfossi,
Heilsu- og fegrunarstofa Huldu,
Borgartúni, Weyergans Stúdíó,
Siglufirði, Gallery 730, Reyðarfirði,
Nuddstofa Margrétar, Borgarnesi,
Heilsa og Líðan, Akureyri, Heilsu-
eyjan Spa, Vestmannaeyjum, og
Táin og Strata, Sauðárkróki.
Nánari upplýsingar á heilsaogutlit.is.
Þá leitaði Aron Einar Gunnars-
son, landsliðsfyrirliði í fótbolta, til
Heilsu og útlits fyrir HM í sumar.
„Hann var ekki í góðu ástandi,
meiddur á hné og ökkla og ekki
viss um að geta spilað. Hann kom
til okkar í sjö skipti þessa viku sem
hann var heima. Ég veit ekki betur
en að læknirinn hafi síðan gefið
honum grænt ljós á að spila. Hann
var mjög ánægður með okkur
og við hann enda færði hann
okkur stærðarinnar Búddastyttu
og blómvönd,“ lýsir Sandra og
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
F
2
-F
B
2
4
2
0
F
2
-F
9
E
8
2
0
F
2
-F
8
A
C
2
0
F
2
-F
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K