Fréttablaðið - 29.09.2018, Blaðsíða 114
HENSON
LAGERSALA
Aðeins í 5 da
ga!
Lau. 29/9, Sun
. 30/09, Mán. 0
1/10, Þri. 02/1
0, Mið. 03/10
Opið frá kl. 11
-18
Staðsetning
: Brautarho
lt 24
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
29. september 2018
Tónlist
Hvað? Alheimsfrumflutningur eftir
Gunnar Andreas Kristinsson og Sigurð
Sævarsson
Hvenær? 17.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Bandaríski orgelleikarinn James
David Hicks heldur tónleika á
vegum Listvinafélags Hallgríms-
kirkju laugardaginn 29. septem-
ber kl. 17, þar sem hann frum-
flytur meðal annars verk eftir
tvö íslensk tónskáld, „Lingua“
(2018) eftir Gunnar Andreas
Kristinsson og „Himna smiður“
(2017) eftir Sigurð Sævarsson.
Tónleikarnir eru frábær vitnis-
burður um mikinn áhuga Hicks á
norrænni tónlist, en hann leikur
einnig verk eftir Kristian Blak,
Fredrik Sixten, Nils Lindberg,
Lars Karlsson (frumflutningur),
Anders Börjesson, Jesper Madsen
og „Fantasía um Ísland, farsælda
frón“ eftir Hildigunni Rúnarsdótt-
ur. Miðasala er við innganginn og
miðaverð 2.500 kr. en afsláttur er
fyrir eldri borgara, nemendur og
öryrkja.
Hvað? Sicknature
Hvenær? 20.00
Hvar? Gaukurinn, Tryggvagötu
Danski rapparinn og pródúserinn
Sicknature úr production-teyminu
Snowgoons spilar á sínum fyrstu
tónleikum á Íslandi. Sicknature
hefur verið að gera tónlist síðan
um tíunda áratuginn miðjan og
unnið með mörgum risastórum
nöfnum úr rappbransanum. Auk
hans koma fram margir bestu
rapparar landsins, m.a. Cell7, Kilo,
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
30. september 2018
Cell7 og fleiri hita upp fyrir danska rapparann Sicknature á Gauknum í kvöld. Fréttablaðið/anton brink
Vivid Brain og Class B. Frítt inn og
frír bjór.
Viðburðir
Hvað? Skiptimarkaður með barnaföt
Hvenær? 13.00
Hvar? Gerðuberg
Rauði krossinn í Reykjavík efnir á
ný til skiptimarkaðar með barna-
föt í Gerðubergi. Komdu með
hreinar og heilar flíkur sem nýtast
þinni fjölskyldu ekki lengur og
skiptu fyrir föt í réttum stærðum.
Hvað? Hafmóðir (Mère Océan)
Hvenær? 14.00
Hvar? Alliance Française, Tryggva-
götu 8
Heimildarmynd um Leinu Sato og
köfunarferðar hennar meðal hvala.
Myndin er með frönsku tali og
enskum skýringartextum.
Hvað? Listaháskólinn á Vísindavöku
Rannís
Hvenær? 16.30
Hvar? Listaháskóli Íslands
Lausn á plastvanda, hljóðfærin
Lokkur og Hulda, myndlistarrann-
sókn á íslensku torfi, nýjar leiðir
í tónlistarmenntun og dansrann-
sókn á tjáningu. Allar deildir LHÍ
tefla fram verkefnum og rann-
sóknum sem kynntar verða á vís-
indavökunni.
Sýningar
Hvað? Skúlptúrsýning Korkimon
Hvenær? 16.00
Hvar? Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
Skúlptúrsýning Korkimon (Mel-
korku Katrínar Tómasdóttur) í
listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg
5. Opnun laugardaginn 29. sept-
ember kl. 16.00-18.00. Sýningin
stendur til 24. október og verður
opin á verslunartíma.
Hvað? Birgit Kirke – Øssur Mohr:
Sýningarlok
Hvenær? 11.00
Hvar? Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Birgit Kirke er færeyskur
listamaður sem vinnur
mest abstraktverk.
Kirke er fædd í
Nuuk á Grænlandi
en búsett í Dan-
mörku, en með
móðurmjólkinni
drakk hún í
sig færeyska
landslagið. Með
sjónarhorni
Kirke, er hægt að
sjá hversu stór og
voldug náttúruöflin
geta verið á þessum
litlu eyjum. Fjörugar,
léttar, myndrænar og
svipmiklar strokur ein-
kenna verk Kirke, og endur-
spegla landslagið í Færeyjum;
hrjúfa kletta og stóra steina sem
rísa upp til himna með ógnar krafti.
Andstæður, sterkir litir og fljótandi
form springa út í formi hrauns, elds
og íss sem leika um strigann.
Tónlist
Hvað? Mozart-tónleikar – Guðný
Guðmunds og Jane Sutarjo
Hvenær? 12.15
Hvar? Hannesarholt
Guðný Guðmundsdóttir heldur
upp á sjötugsafmælið sitt með
sinni eigin tónleikaröð árið 2018
þar sem hún mun flytja öll verk
Mozarts fyrir píanó og fiðlu.
Viðburðir
Hvað? Lífsblómið – leiðsögn um
skjölin á sýningunni
Hvenær? 14.00
Hvar? Listasafn Íslands
Sunnudaginn 30. september kl.
14 mun Eiríkur G. Guðmundsson
þjóðskjalavörður leiða gesti um
sýninguna þar sem sérstök áhersla
verður lögð á skjölin á sýningunni.
Hvað? Guð er kærleikur
Hvenær? 20.00
Hvar? Breiðholtskirkja
Tómasarmessan hefur unnið
sér fastan sess í kirkjulífi
borgarinnar, en slík messa hefur
verið haldin í Breiðholtskirkju
síðasta sunnudag í mánuði, frá
hausti til vors, allt frá haustinu
1997. Framkvæmdaaðilar þessa
messuhalds eru Breiðholtskirkja,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra,
Kristilega skólahreyfingin, Sam-
band íslenskra kristniboðsfélaga,
Félag guðfræðinema og hópur
presta og djákna. Tómasarmessan
einkennist af fjölbreytilegum
söng og tónlist, mikil áhersla
er lögð á fyrirbænarþjónustu
og sömuleiðis á virka þátttöku
leikmanna. Stór hópur fólks
tekur jafnan þátt í undirbúningi
og framkvæmd Tómasarmess-
unnar, bæði leikmenn, djáknar
og prestar. Umfjöllunarefni mess-
unnar n.k. sunnudag verður „Guð
er kærleikur“. Sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir prédikar, Matthías
V. Baldursson leiðir tónlistina og
Gospelkór Smárakirkju kemur í
heimsókn.
tómasar-
messan hefur
verið fastur
hluti borgar-
lífsins síðan
1997 og verður
engin breyting
á því þennan
sunnudag.
Fréttablaðið/
GVa
2 9 . S e p T e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r58 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
2
9
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
2
-7
0
E
4
2
0
F
2
-6
F
A
8
2
0
F
2
-6
E
6
C
2
0
F
2
-6
D
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
8
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K